Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 Fréttir Menntaskólinn á Akureyri: Glæsileg nýbygging tilbúin til notkunar DV, Akuieyri: „Kjörorð okkar er að gera góð- an skóla enn betri og þaö tel ég að muni tvímælalaust gerast með til- komu þessarar nýbyggingar sem við tökum í notkun nú í upphafi skólaársins. Ég hef talað um að hér hafi risið nýr skóli á gömlum grunni,“ segir Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, en ný og glæsileg bygg- ing við skólann verður tekin í notkun nú í upphafi skólaárs. Nýbyggingin tengist gamla skólahúsinu með gangi en gamla skólahúsið hefur þjónað síðan 1904 og tengingin nær einnig til Möðruvalla sem er raunvísinda- bygging skólans og var tekin í notkun 1969. Aðrar byggingar skólans eru Iþróttahús, sem byggt var 1905, og heimavist sem tekin var í notkun áriö 1966. „Með þessari nýju byggingu fáum við 12 kennslustofur sem all- ar eru 60 fermetrar að stærð. Við höfum haft 26 kennslustofur en meðalstærð þeirra hefur ekki ver- ið nema um 30 fermetrar og fjórar þeirra hafa verið i kjallara gamla skólans þar sem lofthæð er ekki nema 2,30 metrar. Nú munum við hafa 32 rúmgóöar kennslustofur auk 300 fermetra bókasafns, tvö Tryggvi Gislason fyrir framan nýju bygginguna, sem er til hægri á myndinni, en til vinstri sést í gamla skólahúsiö sem þjónað hefur síöan áriö 1904. DV-mynd gk rúmgóð vinnuherbergi fyrir kenn- ara og 600 fermetra sal fyrir fé- lagsstarf nemenda," segir Tryggvi. Hann segir að nemendum MA verði ekki fjölgað, þeir verða 600 í vetur og þar af eru um 200 nýnem- ar. Helmingur nemendanna er að- komufólk. „Skólahúsnæði MA tvöfaldast að stærð, úr 3 þúsund fermetrum í 6 þúsund fermetra, og þetta þýðir byltingu í öllu skólastarfi hér,“ segir Tryggvi. Sem fyrr sagöi er nýja skóla- byggingin hin glæsilegasta. Hönn- uðir hennar eru Gísli Kristinsson og Páll Tómasson og verktaki við bygginguna var fyrirtækið SS- Byggir. -gk Regína Thorarensen, fréttaritari DV til fjölda ára, dvelst nú á elliheimilinu Hulduhlíö. Hún segir gott aö vera þar en þykir verst hversu margt fólk er komiö út úr heiminum. DV-mynd ÞÖK í VILTU KOMAST I GOTT FORM? EINKATIMAR HÓPTÍMAR HJÁ KATÝ Sími 553-5000 á morgnana Höfn í Hornafirði: Óneitan- lega bjart- ara yfir framtíðinni - segir Kristinn skipstjóri „Þetta hefur verið óttalegt skrap á trollinu, svona nudd. Við erum að skipta yflr á netin og ég er bjartsýnn á framhaldið í ljósi þess að verið er að auka þorsk- kvótann. Það er óneitanlega bjartara yfir framtíðinni," segir Kristinn Guðmundsson, skip- stjóri á Bjarna Gíslasyni SF, sem var að koma úr róðri þegar DV ræddi við hann á bryggjunni á Höfn i Homafirði. „Það er frekar rólegt yfir þorsk- veiðinni núna. Aflinn hefur verið í bland ufsi og þorskur,“ segir Kristinn. -rt Kristinn Guömundsson skipstjóri á bryggjunni ásamt Lúövík, syni sínum, sem er stýrimaður með fööur sínum. DV-mynd ÞÖK Regína flutt á Hulduhlíð á Eskifirði: Góð stjórn en verst hve margt fólk er út úr heiminum - segir Regína Thorarensen DV, Eskifiröi: „Ég kann því vel að vera komin heim á Eskifjörð. Ég reikna með að verða alveg hér í Hulduhlíð, hér er góð stjórn á öllu og mikið gert fyrir fólkið. Það er verst að hér er svo margt fólkið komið út úr heimin- um,“ segir Regína Thorarensen, fréttaritari DV til fjölda ára, sem nú býr á elliheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði. Regína flutti nýlega frá Selfossi til Eskifjarðar þar sem hún og maður hennar, Karl Thoraren- sen, sem lést nýlega, höfðu búið um árabil. Hún er ekki ókunnug á Eskifirði því þar bjuggu hún og maður henn- ar lengi áður en þau fluttu á Selfoss. Hún segist vera orðin léleg til heil- sunnar en er eigi að síður ómyrk í máli og með ákveðnar skoðanir á því sem er að gerast í stjómmálun- um. „Mér finnst Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hafa mannast ótrúlega mikið. Davíð Oddssyni hef- ur aftur á móti farið mikið aftur; eins og ég var nú hrifin af honum. Alþingi væri betur sett ef allir þing- menn næðu sama þroska og Þor- steinn," segir Regína. Regína segist ánægð með niður- stöður forsetakosninganna. „Ég er mjög ánægð með það að Ólafur Ragnar skyldi ná kjöri enda var ég aldrei neitt sérstaklega ánægð með Vigdisi á forsetastóli,“ sagði Regína. -rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.