Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Síða 7
7 I- . MANUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 Fréttir » I » I I I I I I I i I Saltaö og fryst hjá Gunnarstindi á Stöövarfirði: Jafnvægi eftir samstarfs- slit við Breiðdalsvík DV, Stöðvarfirði: „Það er rótgróinn hrepparígur á bóða bóga. Það er trúlega hluti ástæðu þess að samstarfið gekk ekki upp,“ segir Þorsteinn Krist- jánsson, starfsmaður fiskvinnslu Gunnarstinds á Stöðvarfirði, um ástæöu þess að samstarf fiskverkun- ar Gunnarstinds á Stöðvaríirði og frystihússins á Breiðdalsvík gekk ekki upp á sínum tíma og upp úr því slitnaði. í dag er Gunnarstindur á Stöðvarfirði að miklu leyti í eigu Kaupfélags Eyfirðinga og er lögð áhersla á saltfiskverkun. En Breið- dælingar reka sitt frystihús undir merki Búlandstinds á Djúpavogi. Starfsfólk sem DV ræddi við á leið um Stöðvarfjörð sagðist ánægt með atvinnustigið á staðnum þó það mætti vera meiri yfirvinna. „Það er teygjanlegt hvað er næg atvinna en það er ekki hægt að segja að hér sé atvinnuleysi," sagði einn starfsmanna. Fiskvinnsla Gunnarstinds fer fram á tveimur stöðum á staðnum. í öðru húsinu er frysting og hefð- bundin flakavinnsla en í hinu er saltfiskvinnsla. -rt Athafnasvæöi Sand- gerðishafnar stækkað DV, Suöurnesjum: Framkvæmdir hafa staðið yfir í sumar við athafnasvæði Sandgerð- ishafnar þar sem löndunarkranar eru við norðurgarðinn. Eftir fram- kvæmdirnar mun svæðið stækka um helming og verður löndunar- krönum fjölgað um einn. Þekjan, eða bryggjugólfið, hefur verið steypt og var lagt í hana snjóbræðslukerfi sem á eftir að draga verulega úr þeirri hættu sem vill oft verða á bryggjum yfir veturinn þegar klaka- bungur myndast. Á næsta ári verður lokið við að steypa norðurgarðinn og verður þekjan 25 metra breið. Síðan verður það svæði sem eftir er að sjóvamar- garðinum lagt klæðningu. -ÆMK Nokkrir úr starfsliði Gunnarstinds á Stöðvarfirði voru í pásu þegar DV átti leið um í síðustu viku. Frá vinstri eru Lilja Jóhannsdóttir, Ólafur Guttormsson, Þorsteinn Kristjánsson, Bogustawa Wisniewska og Halldóra Jónsdóttir. DV-myndir ÞÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.