Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Síða 27
MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996
39
DV
Hallbjörn Hjartarson sendir frá sér nýja plötu:
Kantriplata með
trúarlegu efni
Hallbjörn Hjartarson, kántríkóng-
ur á Skagaströnd, er enn með ný
jám í eldinum. Innan tíðar kemur á
markað frá honum fyrsta kántrí-
platan með trúarlegu efni, öllu
frumsömdu af Hallbirni. Sjálfur
kallar hann þetta gospel músík og
segir þetta gjörólíkt því sem frá
honum hefur komið hingað til.
„Ég sagði við Villa Guðjóns, sem
annaðist útsetningarnar, að ég ætl-
aði ekki að fara troðnar slóðir, held-
ur koma með eitthvað nýtt og ég
stend við það. Þessi plata á eftir að
koma ýmsum á óvart,“ sagði Hall-
bjöm. Vilhjálmur Guðjónsson ann-
aðist einnig upptökur laganna og
var það gert í sjálfri vöggu kán-
trítónlistarinnar hér á landi, Kán-
tríbæ. Geisladiskur með þessu nýja
efni kemur á markað um miðjan
október.
Þegar blaðamaður DV var á ferð í
Villta vestrinu á Skagaströnd fyrir
helgina spurði hann Hallbjörn
hvort hann sæi einhver „hit“ lög á
disknum:
„Já, mörg. Ég er mjög bjartsýnn
með þessa útgáfu, eins og reyndar
allt sem ég hef tekið mér fyrir hend-
ur. Ég hef alltaf verið að taka áhætt-
ur í lífinu og geri það einnig nú með
útgáfunni á þessum nýja geisla-
diski."
Talið berst að útvarpsstöðinni
sem Hallbjörn er búinn að starf-
rækja í fjögur ár. Aðspurður hve
margar auglýsingar stöðin hefði
fengið á þessum tíma sagði Hall-
björn að þær væru einungis sex eða
sjö og þar af væri aðeins ein frá að-
ila á svæðinu, hinar allar utan þess.
Það er því greinilegt að ekki kosta
auglýsingarnar útvarpsreksturinn
hjá Hallbirni.
„Ég fékk styrk frá Höfðahreppi,
Blönduósbæ og sveitahreppunum í
grenndinni þegar ég kom upp send-
inum á Blönduósi. Annars er bara
um að ræða þann styrk sem ég hef
fengið frá frelsaranum mínum, her-
ranum mínum, og án hans hjálpar
myndi þetta ekki ganga enn þann
dag í dag. Ég hef þá trú að hann sé
með mér í öllu sem ég geri,“ sagði
Hallbjöm.
Þegar Hallbjöm var spurður
hvemig ferðamannatrafilkin hefði
verið í sumar dimmdi eilítið yfir
svip kempunnar:
„Þetta er ekki búið að ganga vel.
Síðasti vetur var lélegur og ég þurfti
því á góðu sumri að halda viðskipta-
lega séð. Það brást líka og það veld-
ur mér miklum vonbrigðum. Það
voru ekki nema um fimm vikur í
sumar sem voru þokkalegar. Það er
talsvert um að fólk komi hérna inn
og skoði en þakkar síðan fyrir sig
Bergþóra Þorkelsdóttir, gæðastjóri hjá Kjötumboöinu, Guðmundur Gíslason sláturhússtjóri og Ray Pratt, breskur
ráögjafi sem hefur leiöbeint íslenskum sláturleyfishöfum um aöbúnaö og fleira er snertir útflutning dilkakjöts til Evr-
ópusambandsins.
DV-myndir ST
Ný sláturlína í KVH
á Hvammstanga
DV, Hvammstanga:
í haust verður tekinn í notkun
nýr tækjabúnaður í sláturhúsi
KVH. í stað fláningsbekkja, talíu
og blóðbands kemur búnaður fyr-
ir hangandi fláningu og blæðingu
ásamt nýjum gæruafdragara.
Skepnurnar verða deyddar með
rafmagni og síðan stungnar hang-
andi en ekki skotnar með stand-
byssu eins og gert hefur verið til
þessa. Þessi sláturaðferð er einnig
að komast í gagnið í sláturhúsun-
um á Selfossi og á Höfn.
Forsvarsmenn sláturhússins
vonast til þess að geta fækkað
eitthvað starfsfólki i húsinu með
þessum nýju vinnuaðferðum, en á
háannatíma starfa um 100 manns
í húsinu og gera þeir sér vonir
um 10% fækkun í starfsliði. Há-
marksafköst í húsinu ættu að
verða um 300 dilkar á klukku-
tíma.
Fyrirhugað er að hefja slátrun
á næstu dögum en undanfarin ár
hefur verið slátrað um 40.000 dilk-
um í húsinu, þar af er um fjórð-
ungur fé sem kemur ekki úr sýsl-
unni. Sláturhús KVH hefur leyfi
til útflutnings til Evrópubanda-
lagsins og fara flestir dilkar á bil-
inu 11-16,5 kg út fyrir landstein-
ana. Talsvert aukin eftirspurn er
á unnum kjötvörum og úrbeinuðu
en einnig eru fluttir út heilir
skrokkar, ferskir á haustin en
freðnir að lokinni slátrun í októ-
berlok. Allt dilkakjöt, sem ætlað
var í útflutning á síðasta ári,
kláraðist í byrjun sumars og verð-
ur því gert ráð fyrir auknu magni
í ár.
-ST
Fréttir
Hallbjörn Hjartarson í útsendingu hjá Útvarpi Skagaströnd, sem starfrækt
hefur veriö í fjögur ár.
og fer án þess að kaupa minjagripi
eða mat. Það er vitaskuld skemmti-
legt og yndislegt að fá fólk i heim-
sókn en það er bara ekki nóg fyrir
mig. Ef kántríævintýrið mitt á að
ganga verður landinn að hjálpa mér
við það.“
Hvað veldur þessari litlu aðsókn
t.d. varðandi matarsöluna?
„Ég held að ferðavenjur fólks séu
að breytast eitthvað og er raunar
ekki í vafa um það. Fólk er farið að
undirbúa ferðalög sín betur. Ég held
að það taki t.d. mat með sér í ferða-
lagið í meiri mæli en áður,“ sagði
Hallbjörn.
Það var farið að styttast í útsend-
ingu hjá Útvarpi Skagaströnd.
Blaðamaður fór með Hallbirni upp á
loft og var nýi diskurinn settur í
tækið. Af stað fór fjörugt lag með
góðum texta og eflaust á þetta lag og
fleiri lög af disknum eftir að falla
mörgum vel í geð.
„Maður þarf ekki að vera sorgleg-
ur eða mjög andlegur í söngnum þó
trúarsöngur sé. Frelsarinn kann
ábyggilega að meta það að fólk sé
glatt í öllu sem það gerir,“ sagði
Hallbjöm.
Sauðfjárslátrun
lokið í Djúpadal
DV, Hólmavík:
Nú, þegar göngur standa víða
yfir og sauðfjárslátrun er að
fara af stað í flestum sláturhús-
um, hafa bændur i Djúpadal í
Austur-Barðastrandarsýslu nær
lokið sauðfjárslátrun og vantar
aðeins um 20 kindur af ijalli.
Var það gert fyrir september-
byrjun.
„Það var beðið um fé í slátrun
og við ákváðum að verða við
óskum sláturleyfishafans til
þess að losna við útflutning á
kjötinu þetta haustið. Þá verður
betur greitt fyrir innlagt kjöt
sumarsins og fullnaðargreiðslu
er lofað fyrir lok þessa mánað-
ar,“ segir Leifur Samúelsson,
bóndi í Djúpadal. Hann segir
fallþunga nú hafa verið á milli
15 og 16 kg en lógað hefur verið
um 350 kindum. Á hefðbundn-
um sláturtíma fyrir nokkrum
árum var fallþungi dilka frá
Djúpadal oft um 19 kg. Nú komi
á móti að minna af kjöti falli í
verði vegna fitu eða aðeins um
10 prósent i stað 25 prósenta
áöur. Slátrun hófst í Króksfjarð-
arnesi um miðjan júlímánuð en
í litlum mæli þó.
Um síðustu mánaðamót var
búið að slátra um 3 þúsund fjár.
Áætlað er að heildarslátrun
haustsins verði um tíu þúsund
ijár að sögn Sigurðar Bjarnason-
ar kaupfélagsstjóra.
-GF
í tilefm
20 ára afmælis
okkar bjóðum við
Gluggatjaldaefni frá 200 kr./m.
Komið og gerið góð kaup!
Símar 553 1870 & 568 8770
Tjarnargötu 12, Keflavík
Sími 421 2061