Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 Fréttir Fyrrverandi sveitarstjóri á Flateyri pakkar saman og flytur í burtu: Fólk virðist vera mjög óánægt og hrætt - líst ekki á framtíð svæðisins, segir Kristján J. Jóhannesson DV, Flateyri: „Því er ekki að leyna að það tek- ur okkur sárt að þuifa að flytja héð- an þar sem ég og öll fjölskyldan höf- um búið alla okkar tíð. Við eigum bara ekki annara kosta völ því ég missti vinnuna við sameininguna og hér er ekkert að hafa þrátt fyrir leit,“ segir Kristján J. Jóhannesson, fyrrverandi sveitarstjóri á Flateyri, sem var ásamt fjölskyldu sinn að pakka saman búslóð sinni þegar DV ræddi við hann í gær. Kristján hefur starfað sem sveit- arstjóri á Flateyri undanfarin 25 ár og er fæddur og uppalinn á staðn- um. Eins og fram kom í DV í gær er um þriðjungur íbúa fluttur af staðn- um síðan á sama tíma í fyrra og fleiri eru á fórum. „Ég hef ekki fundiö annan eins móral hjá fólki síðan ég tók við starfi sveitarstjóra. Mér finnst andinn afskaplega und- arlegur og fólk virðist mjög óánægt og hrætt, það er einhver slík tilfinn- ing í gangi. Það er mjög undarlegt að slíkt skuli koma upp nú á þess- um tímamótum þegar verið er að opna jarðgöngin, mestu samgöngu- bót sem orðiö hefur á þessum slóð- um. Ég á mjög erfitt með að skilja þetta og er ekki með á nótunum varðandi hvað er að gerast," segir Kristján. „Það eru allt of margir að fara héðan í burtu og það hefur ver- ið mjög sárt að sjá á eftir rótgrónum fjölskyldum héðan. Við förum með miklum söknuði og ætluðum okkur ekki að fara,“ segir hann. Hann seg- ir vandann vera um alla Vestfirði og ekki bundinn við Flateyri eina. „Mér líst ekki vel á framtíð þessa svæðis. Það er ekki bara þessi andi hér á Flateyri. Mórallinn er um allt og fólk er að fara allt frá Patreks- firði og norður úr. Mér líst ekki á þá þróun sem er í gangi. Það eru greinilega miklir erfiðleikar alls staðar og ég veit ekki hvemig fólk ætlar að komast út úr þeim,“ segir Kristján. „Þessi hræðilegu snjó- flóð hafa haft sín áhrif á fólk og það er eflaust ein skýringanna. Kvótakerf- ið hefur síðan haft hér gífurleg áhrif og ger- breytt öllu útgerðar- mynstri. Það má svo spyrja hvort við höf- um spilað rétt og hvort við höfum of lengi verið á móti kvótanum," segir hann. „Afnám línutvöföldunar hefur haft gífur- leg áhrif auk þess sem breyt- ingar á reglum um smábáta- kvóta og stein- bítskvótinn hafa haft mikil áhrif. Það er búið að taka nán- ast allt af þessu svæði. Það er alveg ljóst að svæðið þolir ekki svona áfram- hald. Byggðastofnun spáði fyrir nokkrum árum eyðingu byggðar eftir alda- mót. Hingað til hefur sú spá gengið eftir og ef menn ætla ekki að sjá þetta fara í eyði verður að bregðast strax við og snúa þróuninni við,“ segir Kristján. -rt Kristján J. Jóhannes- son, fyrrverandi sveit- arstjóri, var að pakka niður búslóð sinni þegar DV ræddi við hann í gær. Hann seg- ist hafa áhyggjur af framtíð Vestfjarða og að fólk sé að flýja allt svæðið. Hann segir fólk vera bæði óá- nægt og hrætt og mórallinn á Flateyri sé óskiljanlegur í Ijósi þess að Vestfjarða- göngin, mesta sam- göngubót síðari tíma, séu nýkomin í gagnið. DV-mynd BG Fólskuleg árás á 16 ára pilt viö Rimaskóla: Sleginn og sparkað hrottalega í höfuð hans - enn ein árásin í Rimahverfi í Grafarvogi Sindri Fannar Knútsson, 16 ára gamall, varð fyrir fóiskulegri árás jafnaldra síns fyrir utan Rimaskóla f fyrrakvöld. Hann er með stóran og Ijótan skurð fyrir ofan vinstra auga. DV-mynd S „Ég var að tala við vinkonu mína þegar strákurinn kom að en ég hafði aldrei séð hann áður. Hann var með hótanir og sagðist ætla að berja mig þar til hann væri búinn að ganga frá mér. Því næst sló hann mig í höfuðiö og við það missti ég gleraugun. Ég beygði mig niður og ætlaði að ná í þau en þá sparkaði hann fast í höfuðið á mér,“ segir Sindri Fannar Knútsson, 16 ára gamall, en hann varð fyrir fólsku- legri árás við Rimaskóla í Grafar- vogi í fyrrakvöld. Þetta er enn ein árásin sem á sér stað í Rimahverfi að undanfórnu. Árásarmaðurinn var jafnaldri Sindra en hann var handtekinn hjá vini sínum i Kópavogi síðar um nóttina. Sindri segist aldrei hafa séð árásarmanninn áður og árásin hafi verið algerlega að tilefnislausu. Sindri fékk stóran og ljótan skurð fyrir ofan vinstra auga og var flutt- ur í sjúkrabO á slysadeild. Sindri var heppinn að hann skyldi ekki slasast meira en raun ber vitni mið- að við að sparkað var af afli á við- kvæman stað á höfði hans. Hljóp í burtu „Ég náði að komast á lappir og hljóp í burtu. Ég tók stefnuna á verslunina Rimaval sem er rúmlega hundrað metra í burtu. Ég sá að hann elti mig og ég var smeykur við að hann næði mér. En ég náði að komast inn í búðina og þar var af- greiðslumaður sem hjálpaði mér og hringdi á lögregluna. Það blæddi mikiö úr höfðinu á mér og ég var hræddur um að ég myndi jafnvel missa sjónina á auganu. Það fóru óteljandi hugsanir um huga minn á þessum stutta tíma sem árásin og eftirfórin stóð yfir. Síðan kom lög- reglan og þá varð ég rólegri. Ég er ákveðinn í að kæra árásar- manninn og mun gera það þegar ég er kominn með lögfræðing. Ég tel hann hafa verið undir áhrifum ein- hverra vímuefna. Það voru fleiri strákar með árásarmanninum og þeir voru inni í sendiferðabíl þegar hann réðst á mig,“ segir Sindri. -RR Þú getur svarað þessari spurningu með því að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Já 1 Noi 2 j rödd FOLKSINS 904 1600 Á að leyfa sölu á áfengum gosdrykkjum í matvöruverslanir? i>v Kristján Einarsson, starfsmaður Orkubús Vestfjarða. DV-mynd BG Flateyri: Sárt að sjá á eftir vinum og vandamönnum DV, Flateyri: „Það vantar hér fjölbreyttara at- vinnulíf. Það er sárt að sjá á eftir vinum og vandamönnum í burtu," segir Kristján Einarsson, starfsmað- ur Orkubús Vestfiarða á Flateyri. Hann segir ákveðinn tómleika fylgja því að sjá á eftir fólki burtu úr plássinu og margir séu enn óráðnir hvað varðar áframhaldandi búsetu á staðnum. „Það er að vísu næg atvinna hér en hún er bara svo einhæf,“ segir Kristján. -rt Stuttar fréttir Stækkun frestað Stjóm Jámblendiverksmiðj- unnar á Gmndartanga ákvað í gær að fresta áformum um stækkun verksmiöjunnar. Emma að koma Emma Bonino, sjávarútvegs- stjóri Evrópusambandsins, er væntanleg í opinbera heimsókn til íslands í dag. Samkvæmt RÚV ætlar hún m.a. að leita stuðnings forseta íslands við hugmyndum um alþjóðlegan mannréttindadómstól. Met hjá islandsflugi íslandsflug hefur slegið met í farþegaflutningum það sem af er árinu. Flutningamir hafa aukist um 17% miðað við sama tíma í fyrra. Farþegum í ágúst sl. fiölg- aði um 31% milli ára. HÍK mótmælir Stjórn Hins íslenska kennai-a- félags, HÍK, hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er öll- um áformum um niðurskurð í menntamálum. Vænleg síldarsala Mikil bjartsýni ríkir um síld- arsölu á vertíðinni í haust og vetur. Samkvæmt Mbl. er búist við aukinni eftirspum og verð- hækkunum. Hækkandi ávöxtun Meðalávöxtun í þremur flokk- um spariskírteina ríkissjóðs hækkaði í útboði í gær um 0,06-0,44% frá síðasta útboði. Mest var hækkunin í 10 ára skír- teinum. Teikningar afhentar Teikningar af 2 þúsund fer- meti-a nýrri virkjunarbyggingu að Nesjavöllum voru afhentar Hitaveitu Reykjavíkur í gær- morgun. Samkvæmt Stöð 2 er allt til reiðu og löngu búið að bora þær holur sem til þarf. Hvammsvík seld Veitustofnanir Reykjavíkur hafa keypt Hvammsvík í Kjós af Lögreglufélagi Reykjavíkur fyrir 26,2 milljónir króna. Sjálfstæðis- menn í stjóm Veitustofnana eru andvígir kaupunum. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.