Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1996, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
3
DV
Fréttir
Hringirnir við Nesstofu
Rannsóknir liggja niðri
Það eru nú nokkur ár síðan tor-
kennilegir hringir, greinilega gerðir
af mannahöndum, fundust vestur og
norður af Nesstofu á Seltjamarnesi.
Þeir eru hlaðnir úr torfi, eru mis-
stórir og ekki er vitað nákvæmlega
um aldur þeirra, þó svo að þeir séu
taldir vera frá fyrstu öldum land-
náms, eða frá því um 900.
Hringirnir sáust fyrst á loftmynd
árið 1980 en rannsóknir á þeim voru
hafnar árið 1993 af þeim Kristni
Magnússyni, formanni Nesstofu-
safns, og Þorvaldi Friðrikssyni fom-
leifafræðingi. Þá var grafinn prufu-
skurður og kom þá í ljós að í torfi,
sem var í hlöðnum vegg, fannst
greinilegt öskulag, svokallað land-
námslag úr gosi frá því um 900.
Ekkert mannvistarlag fannst við
rannsóknina og var út frá því talið
að ekki hefði verið um mannabú-
staði að ræða.
Rannsóknir hafa nú legið niðri í
nokkurn tíma en Orri Vigfússon
fornleifafræðingur stóð fyrir sýna-
töku í sumar.
Guðmundur Ólafsson fornleifa-
fræðingur sagði að annað hefði ekki
verið gert, enda myndi það kosta
mjög umfangsmiklar fornleifarann-
sóknir ef rannsaka ætti þetta ná-
kvæmar. „Við vitum að þetta er
mannvirki, ekki náttúrusmíð, hlað-
ið úr torfi og grjóthejlur fyrir innan.
Að öðru leyti kom ekkert út úr
skurðinum. Það er erfitt að segja til
hvers hringirnir voru gerðir eða
hver notkunin var.“
Er áhugi fyrir frekari rannsókn-
um?
„Þetta er spurning um forgangs-
röðun, við höfum ekkert fjármagn
til að stunda þarna frekari rann-
sóknir.“
-ggá
Nýjar vörur
\y\\
— frábær verö!
\ <» o
Undrahaldarar frá 990 kr.
Satin-undrahaldarar 1.590 kr.
G-strengsbuxur 290 - 590 kr.
Brjóstahaldarar frá 690 kr.
Satín-hlíranáttkjólar frá 1990 kr.
Vinsælu jogginggallarnir
komnir a;
r. 3.200
sendui
um
COS Glæsibæ
sími 588 5575
COS meö verð fyrir þig!
Síbrotamaður
^ dæmdur:
Akærði
hlaut
þriggja
ára fang-
elsisdóm
- fyrir þjófnaði í júní
Sigurður Hólm Sigurðsson, 33 ára
gamall Reykvíkingur, hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur
í þriggja ára fangelsi auk 455 þús-
und króna skaðabótagreiðslu fyrir
þjófnaði sem hann framdi í lok júní
sl.
Sigurði Hólm var gefið að sök að
hafa brotist inn í hús að Samtúni 16
laugardaginn 29. júní sl. og stolið
þaðan ýmiss konar raftækjum og
skartgripum að verðmæti um 455
þúsund krónur. Þá var Sigurði
Hólm gefið að sök að hafa í félagi
við annan stolið samtals 59 þúsund
krónum af reikningi konu hjá Is-
landsbanka með þvi að nota debet-
kort konunnar og leyninúmer sem
sem hann hafði komist yfir með
þjófnaði.
í dómnum kom m.a. fram að Sig-
urður Hólm á að baki langan feril
afbrota. Frá árinu 1979 hefur hann
hlotið 30 refsidóma og hefur honum
verið gerð tæplega 14 ára refsivist í
þessum dómum. Þá hefúr hann ver-
ið sektáður nokkrum sinnum, ýmist
fyrir ölvun, fikniefna- eða umferðar-
lagahrot. Þá þykir löngu fullreynt
að ákærði lætur ekki skipast við
refsingu og ekki til annars að líta en
hagsmuna almennings af því að
hafa hann óskaðlegan.
Dómsorð eru þau að ákærði, Sig-
urður Hólm Sigurðsson, sæti fang-
elsi í 3 ár. Frá refsingunni dregst 10
daga gæsluvarðhaldsvist hans.
Ákærði greiði 445 þúsund krónur í
skaðabætur vegna þjófnaðar.
Ákærði greiði einnig 20 þúsund í
saksóknaralaun til ríkissjóðs og
verjanda sínum 20 þúsund krónur í
málsvamarlaun.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
-RR
SVARTI
SVANURINN
10ÁRA
AFMÆLISTILBOÐ:
Pylsa +
Súperdós
Coke/Pepsi
175 kr.
2m
WARfú SVANURINN
ir þú kaupir notaðan bí
>kkur fylgir allt þetta:
Vetrardekk
Vetrarskoðun
smurstöðvar Heklu:
• skipt um olíu á vél
• ísvari á rúðusprautu
• frostlögur mældur
• silicone á hurðargúmmí
• smurt í læsingar og lamir
• olíusía athuguð
• loftsía athuguð
• rúðuþurrkur athugaðar
• ljósaperur athugaðar
• reimar athugaðar
• pústkerfi athugað
• drifhosur athugaðar
'4 -SIMI 56!