Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1996, Page 9
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
9
I>V
Utlönd
Dauðvona sjúklingur notfærir sér líknardrápslög í Ástralíu:
Fyrstur til aö binda
enda á hérvistina
- stjórnmálamenn og klerkar fordæma verknaðinn
Fyrsti maðurinn til að nýta sér
umdeild lög um líknardráp í Ástr-
alíu stytti sér aldur í borginni
Darwin á sunnudag, að því er
læknirinn sem aðstoðaði hann
skýrði frá. Um var að ræða full-
orðinn mann sem þjáðist af
krabbameini í blöðruhálskirtli.
Fjölmiðlar í Ástralíu sögðu að
maðurinn, Bob Dent, hefði dáið
fyrir tilstilli banvæns lyfja-
skammts sem tölva var notuð til
að gefa honum. Hann hafði áður
sannfært lækna um að staða hans
væri vonlaus og að hann vissi
hvað hann væri að gera.
í tilfinningaþrungnu opnu bréfi,
sem Dent skrifaði kvöldið fýrir
dauða sinn, sagði hann að verkja-
stillandi lyfin sem hann tæki
vegna krabbameinsins vektu með
honum sjálfsvígshugsanir.
„Ef ég héldi gæludýr, sem væri
í sama ásigkomulagi og ég, yrði ég
lögsóttur,“ skrifaði hann.
Stjórnmála- og trúarleiðtogar
brugðust illa við fréttinni af dauða
Dents en margir þeirra hafa barist
fyrir því að lögin, sem gilda aðeins
i nyrsta fylki Ástralíu, verði lýst
ógild, annaðhvort af sambands-
þinginu eða hæstarétti.
„Ég skammaðist mín mjög og
skammast mín enn fyrir að Ástral-
ía skuli vera eina landið í heimin-
um sem hefur lögleitt dráp á sak-
lausu fólki,“ sagði rómversk-kaþ-
ólski erkibiskupinn Edward
Clancy þar sem hann stóð fyrir
utan dómkirkju heilagrar Maríu i
Darwin.
„Virðing og lotning frammi fyr-
ir mannslífinu er hornsteinn
menningar okkar. Þegar því er
ekki lengur að heilsa fer samfélag-
ið að gliðna," bætti Clcmcy við.
Philip Nitschke, læknir í
Darwin, sagðist hafa aðstoðað
dauðvona sjúkling sinn við að
binda enda á hérvistina á sunnu-
dag. Þetta var í fyrsta sinn sem
líknardrápslögum norðurhérað-
anna var beitt frá því þau gengu í
gildi 1. júlí síðastliðinn.
Nitschke sagði fréttamönnum
að andrúmsloftið á heimili Dents,
þar sem atburðurinn átti sér stað,
hefði í fyrstu verið spennuþrung-
ið. Dent hefði síðan fullvissað
hann um að þetta væri kærleiks-
verk. „Sjúklingurinn auðsýndi
þakklæti. Hann var eins ánægður
og nokkur getur verið undir þess-
um kringumstæðum," sagði
Nitschke. Reuter
Sértilbod til
NATTURULAKKRIS
Frá alda öðli hefur sætur safi lakkrísrótarinnar
heillað unga sem aldna. Á Suður Ítalíu er löng hefð
fyrir iakkrísgerð með því að sjóða safann úr
lakkrísrótinni og útbúa stangir eða litlar pastillur.
Hollt og gott,
gott gotterí
I
va
pm
Fyrirsæta sýnir hér verk breska
tískuhönnuðarins Chammans Phak-
deesuks við upphaf tískuviku í Lon-
don í gær. Phakdeesuk virðist lítið
hugsa um að hylja kroppinn og höf-
uðfatið, eins konar þreifarar, er ný-
stárlegt. Um 100 hönnuðir víðs veg-
ar að munu sýna tísku næsta árs á
tískuvikunni í London.
Sfmamynd Reuter
32 fórust
með gamalli
DC-3 flugvél
Allir um borð í gamalli DC-3
Dakota vél, eða 32 menn, fórust þeg-
ar vélin brotlenti í hafinu undan
strönd Hollands síðdegis í gær.
Skömmu áður en vélin fór í hafið
hafði flugstjórinn tilkynnt um vélar-
bilun.
Vélin, sem í voru 26 farþegar á
skemmtiferð og sex flugliðar, var í
eigu hoOenska Dakotafélagsins sem
er félag áhugamanna um flugvélar
af þessari gerð. Hún var 53 ára göm-
ul og hafði verið flogið i seinni
heimsstyrjöldinni. Haföi vélin farið
frá Amsterdam til eyjarinnar Texel
undan ströndum HoUands og var á
leið tU baka þegar slysið varð. Mar-
aði vélin í kafi þegar björgunar-
menn komu að en hún hafði lent á
sandrifi. Einn farþegi fannst á lífi
og var ekið á sjúkrahús en hann lést
þar skömmu síðar.
Flugstjórinn hafði tilkynnt um
vélarbUun og sagðist ætla að reyna
nauðlendingu á herflugveUi í De
Kooy. En eitthvað fór úrskeiðis.
Formaður félagsins sem á vélina
sagði að hún hefði verið í fullkomnu
lagi og nýlega staðist skoðun hol-
lenskra flugyfirvalda. Reuter
hcilsuhúsið
Skólavörðustig og Kringlunni
London
14. október, frá kr.
16.930
*>
Flug og hótel
kr. 19.930
nmmtudfoUóber
Viðbrögðin
við Londontilboði okkar
hafa verið ótrúleg og nú seljum við
síðustu sætin á þessu ótrúlega verði. Þú
getur valið um góða gististaði í hjarta
London og hjá okkur tryggir þú þér
lægsta verðið á íslandi. Butlins-hótelið
er í Bayswater, rétt hjá Oxfordstræti,
öll herbergi með baði, sjónvarpi og
síma, veitingastaður, bar, verslun og
ferðaskrifstofa í hótelinu.
Verð kr.
Síðustu sœtin
7. og 14. okt.
Butlins Grand
16.930
Verð með flugvallarsköttum,
7. okt., 3 nætur.
Verð kr.
19.930
M.v. 2 í herbergi með morgunverði,
7. okt., 3 nætur.
Verð kr.
29.930
Butlins-hótel, 4 nætur, 3. okt.,
2 í herbergi.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600
Þökkum góðar móttökur „
12 " m
16" m
18" m
sprengitilboð Sramlengt til mánaðamóta
Þú kemur og sækir
i
i. 2 áleggjum á
i. 2 áleggjum á
2 áleggjum á
w*
opið 16°° -23 50
alla daga
690 kr.
790 kr.
890 kr.
Pizzahöllin Dalbraut l RVK. (v. ubeygjuna bjá Laugarásbíó )
Ath. einnig góð tilboð í beimsendingum. S. $68 4848