Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1996, Síða 11
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
11
r>v_______________________________Fréttir
Stöð 3 127,2 milljónum undir núllinu:
Var boðinn aðgangur
að Ijósleiðaraneti
P&S en hafnaði
- heföum leigt þeim aöganginn ásamt
afruglaraþjónustu, segir talsmaður P&S
- hentaði okkur ekki, segir talsmaöur Stöövar 3
„Póstur og sími hefur boðið sjónvarpsfyrirtækjunum
upp á að leigja hluta af ljósleiðaranetinu en um það hafa
ekki tekist samningar enn. Þegar Stöð 3 var að fara af
stað í fyrra þá sögðum við þeim strax að þeir ættu að
koma inn á netið hjá okkur og byrja hægt og rólega. Við
höfum síðan endurtekið boðið og að við sæjum um alla
þá afruglara sem þyrfti í kerfinu,“ segir Jón Þóroddur
Jónsson, yfirverkfræðingur fjarskiptadeildar Pósts og
síma, í samtali við DV.
Meöal vinsælla þátta Stöövar 3 eru spjallþættir Davids
Lettermanns. Stöö 3, sem starfað hefur í tæpt ár, hefur
tapaö gríðarlegu fé á þeim tíma. Samkvæmt milliuppgjöri
fyrir tímabilið 1. janúar til 31. júlí 1996 er rekstrartapið
268,8 milljónir króna. Afruglarar hafa engir fengist enn og
áskriftartekjur því sáralitlar og auglýsingatekjur sömu-
leiöis. Eigiö fé er neikvætt um tæplega 127,3 milljónir
króna. Söfnun viöbótarhlutafjár stendur nú yfir og ef
markmið hennar nást gengur Stöö 3 í endurnýjun lífdaga
sinna.
Jón Þóroddur segir að Ijósleiðaranetið sé i stöðugri
uppbyggingu en enn þá sé ekki kominn á neinn samn-
ingur um útsendingar á sjónvarpsefni um það heldur
aðeins bráðabirgðaleyfi til að senda út dagskrá Sjón-
varpsins inn á netið í tilraunaskyni. Þar sem netið er
komið í hús geti fólk notað það og borgar ekki fyrir það
annað en hið venjulega afnotagjald.
DV spurði Gunnar M. Hansson, stjómarformann
Stöðvar 3, hvort ekki hefðu verið mistök að þekkjast
ekki tilboð Pósts og síma og komast
hjá hinum gríðarlegu byrjunarerfið-
leikum Stöðvar 3 og kostnaðarsömum
vandræðum með afruglara. Gunnar
vísar því á bug að mistök hafi verið
gerð og segir:
„Við vorum búnir að vera í við-
ræðum við Póst og sima í alllangan
tíma um að fara inn á ljósleiðaranet-
ið áður en Stöð 3 tók til starfa. Póst-
ur og sími treysti sér hins vegar ekki
til að skuldbinda sig fyrir tiltekinni
útbreiðslu á tilteknum tímapunktum.
Það eina sem þeir gátu sagt var að
möguleikar væm á að tíu þúsund
heimili gætu átt aðgang að því um
síðustu áramót.
Við eyddum fjöldamörgum mánuð-
um í viðræður við þá til að reyna að
fá einhvem botn í þetta en þeir
treystu sér ekki til að staðfesta neitt
annað en um þennan fyrsta áfanga
sem þeir vora að vinna við á síðasta
ári,“ segir Gunnar M. Hansson.
Gunnar segir að þessu til viðbótar
sé kostnaður verulegur fyrir heimilin
að tengjast ljósleiðaranétinu því ekki
sé nóg að leiðarinn sé í götunni heldur þurfi að leggja
inn í húsin. Að öllum þáttum athuguðum hefði ékki þótt
fýsilegt að tengjast ljósleiðaranetinu.
Rugliö meö afruglarana
Upphafið að vandamálum Stöðvar 3 eru að framleið-
andi afraglaranna sem upphaflega var ætlunin að nota
gat ekki staðið við að framleiða afraglara sem afragluðu
allar útsendar rásir samtímis, að sögn Gunnars M.
Hanssonar.
Hann segir að því miður hafi bandaríska fyrirtækið
Veltek Industries, sem átti að smíða myndlyklana,
brugðist, sem hafi verið mjög miður. „Myndlyklafram-
leiðandinn sem við erum í sambandi við nú veit að
hverju var stefnt i upphafi. Menn eru að velta fyrir sér
hvernig við getum mætt þessari þörf, þó að á annan hátt
sé, en upphaflega var ætlað, í það minnsta í byijun,“
segir Gunnar M. Hansson.
Vandræði þau sem Stöð 3 rataði í vegna myndlykla-
málanna hafa haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir fyr-
irtækið og hefur stöðin verið rekin án áskrifenda með
opinni dagskrá frá því í fyrrahaust. Að sögn Gunnars er
mánaðarlegur rekstrarkostnaður stöðvarinnar um 40
milljónir króna þannig að tapið er geigvænlegt þótt ein-
hverjar auglýsingatekjur og aðrar tekjur hafi stöðin að
vísu haft.
127 milljónir í mínus
Samkvæmt efnahagsreikningi íslenska sjónvarpsins,
rekstrarfélags Stöðvar 3, þann 1. ágúst sl. voru skuldir
félagsins samtals rúmlega 508,3 milljónir króna þannig
að upphaflegt 250 milljón króna hlutafé er uppurið og
gott betur. Eignir félagsins era rúm 381 milljón króna
þannig að rúmar 127 milljónir vantar til að koma fyrir-
tækinu upp á núllið. Stöð 3 er því í raun gjaldþrota.
Verið er að safna nýju hlutafé 1 fyrirtækið upp á 300
milljónir og mun það langt komið þannig að stöðin er í
raun að komast á byrjunarreit, og ríflega þó, þar sem út-
sendingartæki og aðstaða er þegar fyrir hendi, ásamt
umtalsverðri reynslu í að starfrækja stöðina.
„Við erum að róa lífróður að því að fá aðila til liðs við
okkur og núverandi hluthafar eru tiibúnir að setja
meira fé inn en áframhaldið ræðst af því hvort okkur
tekst að ná inn þessu fjármagni. Til þess að geta haldið
áfram þurfum við 300 milljónir," segir Gunnar M. Hans-
son.
Núverandi hluthafar í Stöð 3 era SAM-bíóin og Holta-
búið með 35 milljónir hvor aðili. Síðan koma Árvakur,
útgáfufélag Morgunblaðsins, Nýherji, Skurn og Japis
með 25 milljónir hver. Aðrir minni hluthafar, en mis-
stórir, eru m.a. Vífilfell, Háskólabíó og Birkir Baldvins-
son í Lúxemborg o.fl.
Hallgrímur Geirsson, framkvæmdastjóri Árvakurs,
segir í samtali við DV að áhugi sé fyrir áframhaldandi
þátttöku í rekstri Stöðvar 3, að því tilskyldu að 300 millj-
óna markið í endurfjármögnuninni náist. „Við bíðum
því átekta til að sjá hvort markmið hlutafjársöfnunar-
innar næst og ef svo verður þá teljum við góðar forsend-
ur fyrir framhaldinu," segir Hallgrímur.
-SÁ
381.026.603
Skuldir
og eignir
Stöövar 3
Skuldir
DVI
K.-ÚtiVG! aöBO 12U0W 12-18 bolla
s:
Umboðsmenn um allt land
UJ
j <C Brauðrist, i—s .
dll C3 Profil 230 870w. Ristar tvær sneiðar í senn
B R Æ Ð U R N
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Reykjavík: Hagkaup. Byggt og Búiö Kringlunni, Magasín, Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Guöni E.Hallgrímsson, Grundarfirði.Blómsturvellir Hellissandi.
Vestfiröir:. Geirseyrarbúöin, Patreksfirði.Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafiröi.
Norðurland: Kf. Steingrfmsfjaröar, Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauöárkróki.
KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA Hrísalundi, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga,
Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaups-
staö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi.
Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Fjarðarkaup, Hafnarfiröi.
11///^
(f Grænt r
%
Grænt númer
Sím>fal í grœnt númer er
ókeypis fyrir þann sem hringir*
*Gildir fyrir símtöl innanlands. Ef hringt er úr
farsíma, greiðir sá sem hringir farsímagjald.
PÓSTUR OG SlMI
r Kynningarfundur N
verður í Sálarrannsóknarskólanum í kvöld
kl. 20:30
í kennsluhúsnæði skólans að Vegmúla 2.
Húsið stendur á horni Vegmúla og Suðurlandsbrautar (16).
Á kynningarfundinn er öllu áliugafólki um vandaðan og metnaðarfullan
skóla í sálarrannsóknum og skyldum málum boðið að koma og skoða
skólann - og að hlusta á stutta samantekt um hvað kennt er þar, og
hvemig námi við skólann er almennt háttað. Nú þegar eru um tvö
hundruð nemendur í námi við skólann í fjórum bekkjardeildum.
Kennsla er aðeins eitt kvöld í viku eða eitt laugardagssíðdegi í hverjum
bekk í skólanum. Síðustu tveir kynningarfundir skólans á þessu ári eru
í kvöld og á sunnudaginn, 29 sept. kl. 14.00.
AHir velkomnir meðan húsrúm leytir.
_
- Mest spennandi skóli í bænum
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050
KARATE-
OG JÚDÓ-
GALLARNIR
Karate Shiro Trad,
stærðir 120-170 cm„ verð frá kr. 3.690 til 4.400.
Karate Katana
stærðir 175-195 cm„ verð frá kr. 8.680 til 9.900.
Tokaido-Final,
verð frá kr. 16.900 til 17.900.
Júdó Yamanashi,
stærðir 140-170, verð frá kr. 3.900 til 4.800.
3SS CmúF HK
Ts
2£
Glæsibæ, sími 581 29 22
Hðnnun: Gunnar Sleinþðrsson / FlT / ÐO-06.96-031-TEFAL