Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1996, Qupperneq 32
19
fi
18X20X33
%
13X24Y26
'I
Vlnningar Fjöldl vlnnlnga Vinningsupphxð
l.teft 4 11.432.500
2. 5 ef í + 0 620.590
3. s oft 8 29.740
4.toft , 208 1.820
5. 3 eft' + '817 190
20) 126) (30)
KIH
Heildanrinninnupphxð Á Itlandi
47.122.300 1.392.300
FR ETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
i hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996
Lögregla átti f vök að verjast.
DV-mynd S
Meistaravellir:
Kveikti í
■* og fleygöi
munum út
um glugga
Lögregla og slökkvilið voru köll-
uð að húsi við Meistaravelli í
Reykjavík í gærmorgun. Hjónum
hafði sinnast í íbúð á annarri hæð
og í bræði sinni tók húsbóndinn
upp á því að fleygja sjónvarpi,
^„.hljómtækjum og ýmsu lauslegu út
um rúðumar í stofu og eldhúsi. Þeg-
ar lögreglumenn kom á vettvang
hafði hann í hótunum við þá, sagð-
ist vera vopnaður byssu og hótaði
að ef hann yrði ekki látinn í friði
myndi hann skjóta á þá. Síðan tók
hann sig til við að brenna gardínur
og ýmislegt fleira innandyra.
Lögreglan þurfti að búa sig með
hjálmum og skjöldum til þess að
verjast skothríð innanstokksmuna
og á endanum var táragasi beitt til
þess að yfirbuga manninn.
Einhverjir lögreglumenn fengu
táragas í augu en varð að öðru leyti
ekki meint af átökunum við mann-
inn sem er geðsjúklingur og hefur
áður komið við sögu lögreglunnar.
-^Jfjónin voru bæði handtekin og er
inálið í rannsókn. -sv
Sjóvá kaupir
Húsatrygging-
ar Reykjavíkur
Frestur til að skila inn tilboðum í
Húsatryggingar Reykjavíkur rann
út í gærkvöldi og samkvæmt heim-
ildum DV mun tilhoð Sjóvár- Al-
mennra vera hagstæðast og því lík-
legt að það félag hreppi hnossið.
Borgarstjóri mun fara yfir tilboð-
in í dag ásamt embættismönnum
^borgarinnar. Ekki náðist í borgar-
stjóra vegna málsins áður en hlaðið
fór í prentun. -SÁ
Starfsmaður vistheimilis fyrir þroskahefta:
Kærður fyrir nauðgun
á þroskaheftri stúlku
- hrottalegur glæpur, segir móðir stúlkunnar - RLR rannsakar málið
„Þetta er með eindæmum
hrottalegur og alvarlegur glæpur
og að hann skuli vera framinn af
starfsmanni á vistheimili fyrir
þroskahefta. Stúlkan mín gat á
engan hátt varið sig fyrir þess-
um hrottalega glæp. Veröld
hennar er algerlega hrunin eftir
þetta og hún mun aldrei bíða
þess bætur. Hún hefur grátið
nær látlaust síðan þetta gerðist
og ég þarf að vaka yfir henni
hverja mínútu," segir móðir tutt-
ugu og eins árs gamallar þroska-
heftrar stúlku sem hefur kært
starfsmann vistheimilis fyrir
nauðgun. Nauðgunin er sögð
hafa átt sér stað á vistheimilinu
sl. föstudagskvöld.
Að sögn móðurinnar mun
starfsmaðurinn hafa tekið stúlk-
una með valdi út úr íbúð sinni og
farið með hana yfir í aðra íbúð á
vistheimilinu. Þar hafi hann afk-
lætt hana með valdi og síðan
nauðgað henni. Að því loknu
hafi hann hótað að drepa hana ef
hún segði frá atvikinu. Engin
vitni munu vera að þessum at-
burði.
Stúlkan var flutt til Reykjavik-
ur og færð á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur. Móðirin segir
að greinilegir áverkar hafi verið
við kynfæri stúlkunnar en ekki
náðist í lækna sem skoðuðu
stúlkuna. Eftir að hún var út-
skrifuð af sjúkrahúsinu á mánu-
dag hefur hún búið heima hjá
foreldrum sínum. Stúlkan var
aðeins búin að dvelja í rúman
mánuð á vistheimilinu.
„Ég mun aldrei láta hana í
hendurnar á ókimnugu fólki aftur
meðan ég lifi. Ég mun berjast af
öllum mínum krafti til að þessi
maður verði dæmdur fyrir gjörðir
sínar,“ segir móðirin.
Hörður Jóhannesson hjá Rann-
sóknarlögreglu ríksins staðfesti
við DV í gær að nauðgunarkæra
hefði borist þangað vegna málsins
en hann varðist allra frétta af
rannsókn þess.
Framkvæmdastjóri vistheimil-
isins vildi ekki tjá sig um málið
þar sem það væri á afar við-
kvæmu stigi. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur starfsmaðurinn,
sem sakaður er um hinn hrotta-
lega glæp, ekki unnið á vistheim-
ilinu eftir að kæran var lögð
fram.
-RR
Sæmundur Pálsson rakti blóðslóðina heim til þjófsins þar sem hann lá sof-
andi. DV-mynd S
Miklu af lyQum stolið í Nesapóteki:
Blóðslóðin rakin heim
til mannsins
„Ég fór út á meðan rannsóknar-
lögreglan var að taka fingraför og
fann blóðslóðina eftir manninn.
Hann hafði skorið sig illa á hendi
og þrátt fyrir að hafa vafið bleiu og
plastpoka um hana var auðvelt að
sjá hvert hann fór. Ég rakti slóðina
heim tO mannsins og kom að hon-
um þar sem hann lá sofandi. Þar
jámaði ég hann og kallaði eftir að-
stoð,“ sagði Sæmundur Pálsson,
lögreglumaður á Seltjamamesi, í
samtali við DV í gær.
Á leið sinni til vinnu um áttaleyt-
ið í gærmorgun fékk Sæmundur til-
kynningu um að brotist hefði verið
inn í Nesapótek, apótekið á Eiðis-
torgi. Aðkoman var ljót því blóð var
um allt og greinilega mikið horfið
af lyfjum.
„Maðurinn haföi greinilega hent
steini inn um stóra rúðu til þess að
komast inn á torgið og síðan öðrum
í gegnum rúðu á apótekinu til þess
að komast þar inn.“
Sæmundur segir að það hafi ver-
ið virkilega ánægjulegt að hafa upp
á kauða svona snemma því hann
hafi haft á brott með sér gríðarlega
mikið af lyfjum úr apótekinu og að
hann hafi greinilega vitað að
hverju hann hafi átt að leita.
„Ég get vel ímyndað mér afleið-
ingamar af þvi ef allt þetta lyfja-
magn hefði komist í umferð. Þær
hefðu orðið mjög víðtækar og allt
annað en góðar. Magnið heföi ef-
laust nægt mörgum í langan tima
og víman heföi ömgglega kallað á
ofbeldi og frekari glæpi. Það var
gott að ná stráknum áður en hann
kom þessu í umferð," segir Sæ-
mundur.
Þetta er í annað skipti sem brot-
ist er inn í Nesapótek því fyrir
nokkrmn árum gómaði Sæmundur
mann sem hlaupið hafði frá apótek-
inu og falið sig undir bíl við KR-
völlinn. En þyrfti öryggisgæsla ekki
að vera öflugri í apótekum?
„Vissulega er alvarlegt að menn
skuli eiga svona auðvelt með að
komast inn í apótek og þetta brot
kallar að sjálfsögðu á að menn
skoði hvemig búið er að öryggis-
málum í apótekum."
Maðurinn játaði brot sitt og var
vistaður í fangageymslum lögregl-
unnar í gær.
-sv
L O K I
Veðrið á morgun:
Þurrt og
léttskýj-
að syðra
Á morgun verður norðaust-
ankaldi eða stinningskaldi. É1
verða um norðanvert landið en
þurrt og víðast hvar léttskýjað
syðra.
Veöriö í dag er á bls. 36
V
-5'
w * :
‘-r
CO
-51-1
f I
. (
■■■ ..■•■■ ■ ,r’ ' V
IRÍÍilÍiiii
-T-
■V
■5°
*
V
'I'
V
m
*
m
|oJL
iÆ
•pei
Verð frá 980.000.-
Bílheimar ehf.
jg 13 ® ©
Sœvarhöfba 2a Sími: 525 9000