Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1997, Side 3
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 1997
3
Fréttir
Miklar breytingar í vændum á starfsemi lögreglunnar:
Óvissuástand meðal
rannsóknarlögreglumanna
- segir Baldvin Einarsson hjá RLR sem verður lögð niður 1. júlí
Baldvin Einarsson, formaður félags íslenskra rannsóknarlögreglumanna,
segir töluvert óvissuástand ríkja meðal stéttarinnar vegna mikilla breytinga
á starfsemi lögreglunnar. DV-mynd S
Ólafsfirðingar í
vinnu á Dalvík
DV, Ólafsfirði:
Nú eru tólf Ólafsfirðingar komn-
ir í vinnu í frystihúsinu á Dalvík.
Sem kunnugt er var frystihúsinu á
Ólafsfirði lokað um áramótin og
við það misstu sextíu manns vinnu.
Fólkið sem nú vinnur á Dalvík
fer saman í rútu héðan og eins
heim. Eftir að fyrsti hópur Ólafs-
firðinga hóf störf á Dalvík kom í
ljós að fimm til viðbótar eiga
möguleika á að fá vinnu á Dalvík.
-HJ
Miklar breytingar eru i vænd-
um á yfirstjórn og skipulagi lög-
reglumála í landinu með stofnun
embættis ríkislögreglustjóra,
samkvæmt lögreglulögum sem
taka gildi 1. júlí nk. Þá verður
Rannsóknarlögregla ríkisins lögð
niður eftir 20 ára starf. Megin-
þorri af rannsókn mála, sem nú
fer fram hjá RLR, mun flytjast til
viðkomandi lögregluumdæma.
Sérstök verkefni falla undir ríkis-
lögreglustjóraembættið, t.d. rann-
sókn skatta- og efnahagsbrota,
landráð og brot gegn stjórnskipan
ríkisins.
Ekki er enn ljóst hvar höfuð-
stöðvar ríkislögreglustjóra verða
en samkvæmt heimildum DV
munu þær að öllum líkindum
verða í Reykjavík en í ekki í sömu
húsakynnum og RLR er nú.
„Það er auðvitað töluvert óvissu-
ástand í gangi meðal rannsóknar-
lögreglumanna vegna þessara
breytinga. Það starfa 43 rannsókn-
arlögreglumenn hjá RLR og menn
eru auðvitað að huga að því hvar
þeir muni lenda,“ segir Baldvin
Einarsson, formaður félags ís-
lenskra rannsóknarlögreglu-
manna. Baldvin hefur starfað í 10
ár sem rannsóknarlögreglumaður
hjá RLR.
„Meginhugmyndin er sú að
rannsóknarlöp^pginmenn skiptist
niður á fiögur embætti, þ.e.
Reykjavík, Kópavog, Hafnarfiörð
og síðan ríkislögreglustjóraemb-
ættið. Það er ekki enn komið i ljós
hversu margir fara hvert. Það hlýt-
ur að vera stefnan að allir hér fái
sambærilega stöðu og þeir hafa
haft hér og þá einnig launalega
séð. Það er mjög mikilvægt því
margir hér hafa mikla starfsþekk-
ingu og reynslu og þetta er mann-
skapur sem ég tel að lögreglan
megi alls ekki missa.
Með þessum breytingum á að
færa meginþunga margra mála-
flokka nær uppsprettunni. Það er
stefnt að skilvirkari og hraðari
rannsókn afbrota. Ef þetta gengur
eftir eins og það lítur út á pappír-
unum ætti það að verða til bóta
fyrir löggæsluna. Það er verið að
stíga skref í átt til að samræma og
efla starf lögreglunnar. Ef hins
vegar illa fer þá er ljóst að það
verður erfitt að snúa við. Það hlýt-
ur því að hvíla mikil vinna á ríkis-
lögreglustjóraembættinu næstu ár-
in að ná þessu markmiði laganna.
Ég er sannfærður um að breyting-
arnar munu falla og standa á
þeirri vinnu sem lögð verður fram
af hendi embættisins í þessum
málum.
Starfiö utan vinnutíma
Baldvin segir að rannsóknarlög-
reglumenn þurfi oft að taka starfið
með sér heim því oft sé unnið í
löngum málum og sama málið geti
jafnvel tekið vikur eða mánuði.
„Nú segir í lögunum að lögreglu-
mönnum sé heimilt að sinna lög-
reglustörfum i frítíma sinum ef því
er að skipta. Við höfum því lög-
regluvald utan okkar vinnutíma og
það er nýmæli. Áður voru lög-
reglumenn á milli lögregluvalds og
borgaralegrar handtöku ef þeir
skiptu sér af lögreglumálum í frí-
tíma sínum.
Aðspurður um stöðu gæsluvarð-
haldsmála sagði Baldvin að nokk-
urrar gagnrýni gætti hjá rann-
sóknarlögreglumönnum vegna
þess. Um væri að að ræða mikil
ferðalög til að yfirheyra gæslu-
varðhaldsfanga. Þeir eru sem
kunnugt er hafðir í haldi á Litla-
Hrauni eftir að Síðumúlafangelsið
var lagt niður. Baldvin segir að
það sé betri aðbúnaður fyrir
gæslufanga á Litla-Hrauni en var í
Síðumúla eri hins vegar fari oft
mikill og dýrmætur tími í það að
keyra fram og til baka vegna yfir-
heyrslna. Baldvin segist vona að
hið nýja fangelsi, sem stefnt er að
að byggja í Reykjavík, verði reist
sem fyrst til að leysa þetta vanda-
mál.
-RR
JAPISS
KRINGLUNNI OG BRAUTARHOLTI SÍMI 562 5200
mmm
•TC-14S1 Panasonic 14“ sjónvarp
áður kr. 36.900 • nú kr. 27.900 stgr.
•TX-14S1 Panasonic 14" sjónvarp m/textavarpi
áður kr. 42.000 • nú kr. 29.900 stgr.
•KV-14M1 Sony 14“ sjónvarp m/fjarstýringu
áður kr. 34.990 • nú kr. 29.900 stgr.
•KV-14T1 Sony 14" sjónvarp m/textavarpi
áður kr. 39.500 • nú kr. 34.900 stgr.
•KV-29X1 Sony 29" sjónvarp NICAM, S-VHS m/textavarpi
áður kr. 129.900 • nú kr. 109.650 stgr.
•T14-G37 Tatung 14“ sjónvarp RC/OSD/Timer
áður kr. 29.900 • nú kr. 19.900 stgr.
•T14-TEXTATatung 14" sjónvarp m/textav., RC/OSD/Timer
áður kr. 34.900 • nú kr. 24.900 stgr.
•T21-PU-N9 Tatung 21" sjónvarp NICAM m/textavarpi
áður kr. 56.800 • nú kr. 38.790 stgr.
•T25-PY-N9B Tatung 25" sjónvarp NICAM m/textavarpi
áður kr. 73.900 • nú kr. 48.990 stgr.
•T28-NE50 Tatung 28" sjónvarp, NICAM m/textavarpi
áður kr. 77.900 • nú kr. 57.900 stgr.
■' '
RAÐGREIÐSLUDÆMI
TATUNG T28-NE50
Staðgreiðsluverð kr. 57.900,-
Euro raðgreiðslur í 36 mánuðu
Engin útborgun
meðalgreiðsla pr. mán: