Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1997, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 1997
Fréttir ______________________________________________»2?
Margrét Frímannsdóttir á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins:
Verðum að hafa augun
opin og ræða Evrópumálin
- tengslin við Evrópusambandið eru veruleiki sem verður að vera í sífelldri endurskoðun
Ræða Margrétar Frímannsdótt-
ur, formanns Alþýðubandalagsins,
á miðstjórnarfundi flokksins um
helgina hefur vakið mikla athygli.
Sérstaka athygli vekur að hún
sagði að Evrópumálin yrði að ræða
opið og af hreinskilni, hjá því yrði
ekki komist, hvort sem mönnum
líkaði betur eða verr. Hún sagði að
það væri staðreynd sem ekki yrði
horft fram hjá að löggjafarstarfíð
færi nú að miklu leyti fram í Bruss-
el. Það væri aðeins á afmörkuðum
sviðum sem við værum óbundin af
lagasetningu Evrópusambandsins.
„Við verðum að hafa augun opin
og ræða Evrópumálin af hrein-
skilni. Tengslin við Evrópusam-
bandið eru veruleiki sem við verð-
um að hafa í sífelldri endurskoð-
un,“ sagði Margrét.
Þá ræddi hún um aðild íslands
að NATO á þann hátt að athygli
vekur.
„Höfum við trú á að Atlantshafs-
bandalagið geti breyst? Við þurfum
að ræða þessi mál og taka afstöðu
til þeirrar þróunar sem nú á sér
stað. Meta á hvern hátt við getum
best barist fyrir friði í heiminum.
Gerum við það með því að standa
utan allrar starfsemi NATO eða
eigum við að taka þátt í einhverj-
um hluta starfseminnar og reyna
að koma okkar áherslum og sjónar-
miðum á framfæri þar? Þetta þarf
að ræða af hreinskilni. Meðal ann-
ars hvort við eigum að senda þing-
menn okkar á þingmannafundi
NATO og taka þátt í starfi þjóða í
þágu friðar," sagði Margrét.
Hún ræddi einnig um ríkisrekst-
ur og bankakerfið. „Ég tel nauðsyn-
legt að fram fari uppstokkun á rík-
iskerfinu öllu. Það verði gert með
það að markmiði að efla velferöar-
kerfið. Hlutverk ríkisins er ekki
endilega að vera í atvinnurekstri
sem á breyttum tímum er eins vel
kominn hjá öðrum...,“ sagði Mar-
grét. Hún bætti því við að stokka
þyrfti upp bankakerfið og að kanna
ætti sameiningu Búnaðarbanka og
Landsbanka, fækka lánasjóðum og
láta þá renna inn í einn sterkan
banka.
Loks ræddi hún nokkuð um sam-
starf og samvinnu félagshyggju-
flokkanna og það starf sem unnið
hefur verið og það sem er fram und-
an. Hún tók skýrt fram að þama
væri um samvinnu að ræða, ekki
sameiningu.
-S.dór
Evrópumálið og Alþýðubandalagið:
Gerir flokkinn tortryggilegan
- eins og formaðurinn lagði málið upp, segir Hjörleifur Guttormsson
„Að tala um að það þurfi að taka
málið á dagskrá tel ég fráleita full-
yrðingu. Evrópuinálið hefur verið
á dagskrá og rætt í mörg ár. Það er
á grundvelli þeirrar umræðu sem
Alþýðubandalagið hefur hafnað að-
ild en Alþýðuflokkurinn vill sækja
um hana. Eins og Margrét setti
þetta fram tel ég að það geri flokk-
inn tortryggflegan og skaði hann.
Alþýðubandalagið verði ótrúverð-
ugt í málinu,“ sagði Hjörleifur
Guttormsson alþingismaður í sam-
tali við DV.
Hann gerði verulegar athuga-
semdir við þann þáttinn í ræðu
Margrétar Frímannsdóttur, for-
manns flokksins, á miðstjómar-
fundinum sem fjallaði um Evrópu-
málið.
„Samþykktir landsfunda flokks-
ins lúta að því að við eram andstæð
aðild að Evrópusambandinu og sú
stefna er því í gildi. Þessi túlkun
sem kemur fram hjá Margréti að
ræða þurfi málið þýðir að taka mál-
ið á dagskrá. Það er verið að gefa
þeirri túlkun á hennar ræðu þann
svip að menn vflji fara að skoða ein-
hverja breytingu hjá flokknum. Ég
er seinastur manna tfl að andæfa
því að menn ræði sem lengst og best
um Evrópusambandið vegna þess
að það styrkir þá sem em andvígir
því að við göngum í það. En að gefa
þessu þann svip að Alþýðubandalag-
ið sé orðið opið fyrir því að taka að-
ild á dagskrá, við það geri ég mjög
alvarlegar athugasemdir," sagði
Hjörleifur.
Hann hafnar því alfarið að nokk-
ur nálgun við stefnu Alþýðuflokks-
ins, sem vill sækja um aðfld, hafi átt
sér stað í Alþýðubandalaginu.
-S.dór
Flokksráðsfundur Alþýðuflokksins:
Samstarf jafnaðar-
manna komið á skrið
- segir Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins
„Það er ljóst að samstarfsmál
jafnaðarmanna eru komin vel á
skrið. Á fundinum var greint frá
því hvernig þau standa í sveitar-
stjórnum úti um land og virðist
sem þessi mál séu komin lengst á
veg í Reykjanesbæ. Þar er komið
sameiginlegt bæjarmálaráð A-
flokkanna. Á fundinum var greint
frá því hvað er að gerast í nefnd-
inni sem vinnur að aukinni sam-
vinnu jafnaðarmanna en þar eru
menn að ráðgera sameiginleg
fundahöld eftir páska,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson, formaður Al-
þýðuflokksins, sem hélt flokksráðs-
fund á laugardaginn.
Margrét Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins, mætti á
flokksráðsfundinn og ávarpaði
hann en Sighvatur Björgvinsson
hafði daginn áður mætt á mið-
stjórnarfund Alþýðubandalagsins
og ávarpað hann. Sighvatur var
inntur eftir því hvernig þetta hefði
komið út:
„Ég held að þetta hafi verið mjög
gagnlegt. Margrét fékk feikflega
góðar móttökur þegar hún kom til
okkar og ég tel þessi samskipti spor
í rétta átt,“ sagði Sighvatur.
Hann sagöi að aðalmálin á
flokksráðsfundinum hefðu veriö
samstarfsmál jafnaðarmanna og
málefni Alprents hf. og Alþýðu-
blaðsins og endurskipulagning
flokksstarfsins. Þeir sem unnið
hafa í samstarfsmálunum skýrðu
frá því hvað þar hefði verið að ger-
ast. Rætt var um endurreisn á
flokksskrifstofunni og fjárhags-
stöðu flokksins. -S.dór
Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýöubandalagsins, mætti á flokksráös-
fundinn og ávarpaöi hann en Sighvatur Björgvinsson haföi daginn áöur mætt
á miöstjórnarfund Alþýöubandalagsins og ávarpaö hann. DV-mynd Hari
E
Sighvatur Björgvinsson:
Vinningar sem dregnir voru út í HAPPI í HENDI síðastliðið
föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Berglind Ólafsdóttir, Halldór Guðmundsson, Margrét Magnúsdóttir,
Úthlíð 9, Víðimel 59, Kirkjubraut 1,
Reykjavík Reykjavík Seltjarnarnesi
Brandís Benediktsdótir, Ingibjörg Ingimarsdóttir, Ólöf Gunnlaugsdóttir,
Raftahlíð 40, Norðurvegi 19, Heiðargerði 45,
Sauðárkróki Hrísey Reykjavík
Guðný Bjarnadóttir, Jóhannes Halldórsson, Rannveig Ólafsdóttir,
Heglafellsbraut 23e, Norðurgötu 41 a, Búlandi 32,
Vestmannaeyjum Akureyri Reykjavík
Vinningsheijar gera v*;* 3 vinninga bja HdppdfÆ'
íslands. Tjarnargclu iqí Rcykjavík, simi 563 ■iQQ
Alprent hættir útgáfu
Alþýðublaðsins
- óvíst með framhaldið
„Það var samþykkt á flokksráðs-
fundinum að Alprent hf., sem hefur
annast útgáfu Alþýðublaðsins, hætti
starfsemi og eignir þess og skuldir
verði gerðar upp. Síðan var fram-
kvæmdastjóm flokksins veitt um-
boð til þess að taka ákvarðanir um
framhaldið. Samþykkt var að menn
leituðu leiða til að gefa Alþýðublað-
ið út áfram ef einhver möguleiki
væri á því. Framkvæmdastjómin
hefur sem sagt fullt umboð til að
ljúka því máli hvernig svo sem nið-
urstaðan verður," sagði Sighvatur
Björgvinsson, formaður Alþýðu-
flokksins, í samtali við DV.
Hann segir að það verði allt reynt
til að gefa blaðið út áfram en mönn-
um sé það ljóst að það sé ýmsum
erfiðleikum bundið. Hann sagði að
ekki hefði verið ákveðið hvenær Al-
prent hættir útgáfu Alþýðublaðsins
en það sé ákveðið að svo verði.
Skuldir Alprents em á bilinu 8 til 10
milljónir króna.
-S.dór