Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1997, Page 37
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 1997
45
DV
Guörún Katrín Þorbergsdóttir
er ein þriggja kvenna sem flytur
óvarp í dag.
Afmælishátíð
I dag er Kvenréttindafélag ís-
lands 90 ára og verður margt
gert af því tilefni. í Skála á Hót-
el Sögu og í Tjamarsal Ráðhúss
Reykjavíkur verður sérstök há-
tíðardagskrá í dag. Hátíðarhöld-
in hefjast með morgunverðar-
fundi í Skála. Ber hann yfir-
skriftina Kosningar og lýðræði.
Dr. Ólafur Þ. Harðarson mun
flytja erindi og að því loknu
verða umræður. Fundarstjóri
verður Drífa Sigfúsdóttir, for-
seti bæjarstjómar Reykjanes-
bæjar. Síðar í dag, eða á milli kl.
17.00 og 18.00, er svo afmælishá-
tíð í Ráðhúsi Reykjavíkur þar
sem Guðrún Katrín Þorbergs-
dóttir, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir og Inga Jóna Þórðardóttir
munu flytja ávörp. Einnig verða
sýnd atriði úr dagskrá Lista-
idúbbs Þjóðleikhússins og fleira
skemmtilegt. Þrjár konur verða
tilnefndar heiðursfélagar en þaö
em þær Vigdís Finnbogadóttir,
Sigríður Th. Erlendsdóttir og
Björg Einarsdóttir.
Þjóðgarðar
í Bandaríkjunum
í kvöld kl. 20.30 verður fyrsti
fræðslufyrirlestur Hins íslenska
náttúrufræðifélags á nýju ári.
Fundurinn er haldinn í stofu 101
í Lögbergi. Þóra Ellen Þórhails-
dóttir, prófessor í grasafræði,
flytur erindi sem hún nefnir
Þjóðgarðar í Bandaríkjum Norð-
ur-Ameríku.
Hádegisverðarfundur
Hvers vegna hafna Svíar aðild
að EMU? Geta Svíar sniðgengið
EMU, þrátt fyrir aðild að ESB?
Hver er staða EFTA/EES-land-
anna gagnvart EMU? Á hádegis-
verðarfundi í Skála, Hótel Sögu,
kl. 12.00 verður leitað svara við
þessum spurningum. Stefan Ing-
ves, aðstoðarbankastjóri Seðla-
banka Sviþjóðar, flytur erindi og
situr fyrir svörum.
Samkomur
Skákþing Reykjavíkur
Nú stendur yfir Skákþing
Reykjavíkur og verður 7. um-
ferð tefld í dag kl. 19.30 tU 24.00.
Gaukur á Stöng
í kvöld leikur hin efnilega
hljómsveit, Plunge frá Siglu-
firði, á Gauknum. Á morgun
mun svo Trío Jón Leifssonar
leika.
ETC-deildin Kvistur
Fundur verður haldinn að
Litlu-Brekku, Bankastræti 2, í
kvöld kl. 20.00. Allir em vel-
komnir.
Kvenfélag Hreyfils
Fyrsti fimdur ársins verður
annað kvöld kl. 20.00 í Hreyfils-
húsinu. Línudanskennsla.
Kynning á
krabbameinsr áðgj öf
Ema Haraldsdóttir hjúkrun-
arfræðingur og Nanna Friðriks-
dóttir hjúkmnarfræðingur
flytja fyrirlesturinn Kynning á
krabbameinsráðgjöf Krabba-
meinsfélags íslands í dag kl.
12.15 í stofu 6 á 1. hæð í Eir-
bergi, Eiríksgötu 34. Fundurinn
er öllum opinn.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans:
Konur með penna
I tilefiii 90 ára afmælis Kvenréttindafélags ís-
lands verður í Listaklúbbi Leikhúskjallarans
bókmenntadagskrá þar sem flutt verður úr
verkum nokkurra ólikra skáldkvenna frá síð-
ustu aldamótum. María Sigurðardóttir leikkona
hefur tekið saman dagskrána. Meginuppistaðan
í dagskránni er skáldkonumar Guðný frá
Klömbrum og Ólöf frá Hlöðum en sagt verður
frá ólíkum uppvexti þeirra og lífshlaupi. Ólöf
var alin upp í mikilli fátækt en Guðný á efnuðu
menningarheimili, en endaði ævi sína í sárri
Skemmtanir
niðurlægingu eftir að eiginmaður hennar hafði
yfirgefið hana og ráðstafað bömum hennar og
eignum. Þá verða fluttar vísur eftir tvíburasyst-
umar Herdísi og Ólínu Andrésdætur og einnig
úr verkum Guðfinnu frá Hömrum, Kristínar
Sigfúsdóttur og Jarþrúðar Jónsdóttur.
Auk Maríu taka þátt í dagskránni leikkon-
umar Kristbjörg Kjeld, Edda Heiðrún Backman
og Halldóra Geirharösdóttir. Bókmenntalegur
ráðunautur er Soffia Auður Birgisdóttir. Dag-
skráin hefst kl. 21.00.
Skáldkonur fyrri tíma eru til meöferöar í Listaklúbbi Leikhú-
skjallarans I kvöld.
Kjarvalsstaðir:
Skúlptúr í leir
Þrjár sýningar standa nú yfir á
Kjarvalsstöðum, yfirlitssýning á
verkum Hrings Jóhannessonar,
Kjarvalssýning, sem ber heitið Lif-
andi land, og skúlptúrsýning á leir-
verkum eftir Jónínu Guðnadóttur.
Jónína Guðnadóttir er fyrir löngu
orðin einn þekktasti leirlistarmaður
Sýningar
hér á landi. Síðastliðin þrjátiu ár
hefur listakonan unnið að listsköp-
un sem ýmist hefur tengst nytja-
hlutum eða sjálfstæðum form- og
efnisrannsóknum. Að þessu sinni er
listunnendum boðið til móts við ný
verk sem sérstaklega hafa veriö
gerð fyrir rýmið á Kjarvalsstöðum.
k
Þar gefur að líta afrakstur áralangr-
ar listsköpunar, sjálfstæða skúlpt-
úra, sem oftar en ekki hafa sterka
skírskotun í íslenska náttúru.
í tengslum við sýninguna hefur
verið gefin út sýningarskrá með lit-
myndum af verkum listakonunnar
og grein eftir Eirík Þorláksson, list-
fræðing. Kjarvalsstaðir eru opnir
daglega frá kl. 10.00-18.00.
Jónína Guönadóttir viö verk sem eru á sýningu hennar á Kjarvalsstööum.
Sonur Aðalheiðar
og Halls
Litli drengurinn, sem á
myndinni tottar snuðiö
sitt, fæddist á fæðingar-
deild Landspítalans 21.
janúar kl. 17.39. Hann var
Barn dagsins
við fæðingu 3830 grömm
að þyngd og mældist 53
sentímetra langur. For-
eldrar hans eru Aðalheið-
ur Hanna Björnsdóttir og
Hallur Kristmundsson og
er hann fyrsta barn
þeirra.
Dustin Hoffman leikur verjanda
piltanna tveggja.
Pörupiltar
Pörupiltar (Sleepers), sem Há-
skólabíó hefur sýnt að undan-
fómu, er byggð á sönnvun atburð-
um. Um er að ræða sögu um
drengi sem voru settir á betrun-
arhæli þar sem þeim var mis-
þyrmt og nauðgað. Það er mikill
og góður leikarahópur sem skip-
ar hlutverkin og má nefha Kevin
Bacon, Robert de Niro, Dustin
Hoffman, Jason Patrick, Brad
Pitt, Brad Renfro og Minnie Dri-
ver. Leikstjóri er Barry Levinson.
dags||jpi
£
Kvikmyndir
Pörupiltamir eru fjórir og
koma þeir allir frá heimilum þar
sem mikið er unnið og fátækt er
mikil og era því mikið á götunni
innan um alls konar lýð. Einn <
heitan sumardag ákveða þeir í
leiðindum að stríða pylsusala og
færa til pylsuvagninn hans. Þetta
prakkarastrik tekst þó ekki betur
en svo að þeir verða næstum
manni að bana. Drengimir em
allir ákærðir fyrir glæp og dæmd-
ir til níu til átján mánaða vistar á
betrunarhæli fyrir drengi. Sú
dvöl á eftir að verða afdrifarík
fyrir þá alla.
Nýjar myndir:
Háskólabió:Leyndarmál og lygar
Laugarásbíó: Samantekin ráð
Kringlubíó: í straffi
Saga-bíó: Lausnargjaldið
Bfóhöllin: Dagsljós
Bíóborgin: Kvennaklúbburinn
Regnboginn: Banvæn bráðavakt
Stjörnubíó: Ruglukollar
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
ÍÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5752
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 27
24.01.1997 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 69,000 69,360 67,130
Pund 112,690 113,270 113,420
Kan. dollar 51,280 51,590 49,080
Dönsk kr. 11,0810 11,1400 11,2880
Norsk kr 10,4910 10,5490 10,4110
Sænsk kr. 9,5470 9,5990 9,7740
Fi. mark 14,1390 14,2230 14,4550
Fra. franki 12,5360 12,6070 12,8020
Belg. franki 2,0514 2,0638 2,0958
Sviss. franki 48,8000 49,0700 49,6600
Holl. gyllini 37,6300 37,8600 38,4800
Þýskt mark 42,3000 42,5200 43,1800
ít. lira 0,04325 0,04351 0,04396
Aust. soh. 6,0090 6,0470 6,1380
Port. escudo 0,4222 0,4248 0,4292
Spá. peseti 0,5016 0,5048 0,5126
Jap. yen 0,58030 0,58380 0,57890
írskt pund 110,620 111,310 112,310
SDR 96,23000 96,81000 96,41000
ECU 81,9600 82,4500 83,2900
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270 Y