Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 5 DV Sandkorn Fréttir Samkeppni " * Friðrik Sop- husson fjár- málaráðherra og forráða- menn ÁTVR boðuðu til blaðamanna- fundar i gær, þar sem kynnt- ar voru ýmsar breytingar á vín- og áfengis- sölu ríkisins. Mesta athygli vakti að þeir töluðu um að lækka verð á vini og bjór um 10 prósent og jafnvel eitthvað á áfengi lika. Eins var orðaður sá möguleiki að heija sölu á víni og bjór í matvöruverslunum. Mörgum þótti það skondiö aö þessar hug- myndir skyldu kunngerðar daginn eftir að lögreglan skýrði frá því að þeir Jenkins-menn hefðu ekki flutt inn 25.000 flöskur af Jenkins vodka heldur líklega nærri 50.000 stykki. Sögðu gárungar greinilegt að ÁTVR tæki málið fostum tökum og ætlaði í samkeppnina af fuilum krafti og þannig reyna að kæfa gámasöluna. Ölafur HaD- dórsson tók saman gaman- sögur af lækn- um og gaf út. Ein sagan úr þeirri ágætu bók segir frá því að Jóhann- es Snorrason, sá kunni flug- stjóri, hafi eitt sinn nauðlent svifflugu sinni í kirkjugarðinum á Akureyri og var fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Læknirinn, sem tók á móti honum þar, var Guðmundur Karl. Hann spurði sjúkraberana hvaðan þeir kæmu með sjúklinginn. Þeir sögðu sem var að þeir kæmu ofan úr kirkjugaröi. „Ja, hver and- skotinn," sagði Guðmundur Karl, „traffikin hefur nú frekar verið héð- an í garðinn en ef það á að snúast viö þá er ég hættur héma!“ Ein flaska ein hurð Það var fyrir nokkrmn árrnn að tveir þjóð- kunnir at- hafnamenn af Vestfjörðum þurftu til Reykjavíkur að sinna erindum eins og gengur. Þeir gistu á Hótel Sögu eins og margir athafhamenn utan af landi gera þeg- ar þeir koma til borgarinnar. Vest- firðingarnir luku erindum sínum og um kvöldið settust þeir niður og borðuðu og fengu sér síðan í glas eins og er góðra manna siður. Samt sem áður voru þeir uppi fýrir ailar aldir næsta morgun, báru sig karl- mannlega og litu vel út. Þegar þeir mættu í morgunmat á hótelinu voru þar fyrir nokkrir Vestflrðing- ar sem vissu að þeir höfðu fengið sér i glas kvöldið áður. Þeir höfðu orð á því við þá félaga hvað þeir litu vel út og væru hressir eftir svail næturinnar. Þá svarar annar athafnamannanna: „Iss, þetta var nú ekki neitt neitt. Það lágu ekki nema ein flaska og ein hurð.“ Næsti fundur eftir ár Fyrir nokkrum árum kvaddi' séra Svavar A. Jónsson, prest- ur á Akureyri, sér hljóðs á að- alfúndi Presta- félags Hólastift- is og sagði far- ir sinar ekki sléttar í sam- skiptum við bíla. „Daginn sem prestafélagsfundurinn var í fýrra velti ég bílnum mínum og komst ekki á fundinn af þeim sök- um. Ég keypti mér nýjan bíl. Hann er núna á verkstæði, það er farin í honum heddpakkning." Harmsög- una endaði hann með þessari visu: Einn er horfinn, annar sár, eg er nauðir líðandi. Næsti fundur eftir ár. Eg fer þangað ríðandi. Umsjón Sigurdór Sigurdórsson Ur kirkju- garðinum Útgerðarfyrirtækið Enni hf. í Ólafsvík til sölu: Gerir út tvo báta með tæplejga þúsund lesta þorskígildiskvota - sala verið rædd en ekki ákveðin, segir Magnús Guðlaugsson framkvæmdastjóri „Það hefur verið rætt um sölu en ekki er víst á þessari stundu hvort af þvi verður. Að öðru leyti vil ég ekki ræða um málið,“ sagði Magnús Guðlaugsson, framkvæmdastjóri út- gerðarfyrirtækisins Ennis hf. í Ól- afsvík. Enni hf. er fj ölskyldufyrirtæk i sem fiórir bræður eiga ásamt móður sinni. Fyrirtækið á tvo báta; Auð- björgu SH og Auðbjörgu II SH og 916 lesta þorskígildiskvóta. Þar af eru 650 tonn af þorski. I fyrra var leigð- ur kvóti þannig að samtals veiddu bátar fyrirtækisins um 1700 lestir. Talið er að fyrirtækið og kvótinn séu rúmlega 500 milljóna króna virði. Samkvæmt heimildum DV er það ósamkomulag milli eigenda sem veldur því að til stendur að selja fyr- irtækið. Tveir bræðranna vildu skipta því þannig að þeir fengju annan bátinn og 45 prósent af kvót- anum. Hinir vildu það ekki og held- ur ekki kaupa hlut hinna og leggja því til að selja fyrirtækið. Þrír bræðranna eiga 27 prósent hver í fyrirtækinu, sá fjórði á 16 prósent og móðir þeirra 3 prósent. í Ólafsvík sjá menn ekki að þar sé neinn aðili sem geti keypti fyrirtæk- ið og óttast þvi að bátarnir og kvót- inn verði seldir úr bænum. Það væri áfall fyrir Ólafsvík því alls munu um 70 manns hafa lífsviður- væri sitt af fyrirtækinu. -S.dór SkattframtaMð berist Ertuekki ! Póstnr telja fram til skatts ? pappirssnepiunum ^ íhcírí hugarangnnu ° ”remarqi ?remargerð um eignabreytm 4| (sem ekki eru tengdar eígin atvinnurekstn f eða sjálístæðn staifsemi) Tölvuvætt skattframtal ems tölvJbg MieröSoft Excel 5.0 fxrirWihdowseða nýrra ; Vm»n rt/r aaIa A»m*A * og skapið Frá og með mMude^mirm^. febrúar gefum við þér tölvudiskling með þessu öllu. Já við ætlum að gefa þér disklinginn. Það eina séift<þú þarft að gera er að framvísa Viðskiptablaðinu í verslun EJS við Grensásveg 10 í 60 Fjárfestmg m e^a á skrifstofu Viðskiptablaðsins í Þverholti 9. Ó*- Þejr sem ekki eiga heimangengt geta náð í gögnin á heimasíðu EJS: Fenginn arfiu tejá leiðbsimncai) ® ® ® ® ® www.ejs.is. TeMeðaei^rkc, Þetta getur ekki verið einfaldara. Athugið að skattíramtal launamanns þarf að b»r»- -'kattyfirvóldum eigi síðar en 10. febrúar en skattframtai atvinnutekauda eigi síðar en 15. mars.Beri«* — inan iUskilins frests kann framteljandi að sæta álagi á skattstofna. e‘97 Ath: uérdíhoðaMiw . l0 K'',n"tuuji0sGteI' .... cuistaklíngai skulu oaðii undinita íramtalið). Undirskrift BKAR | A næsta blaðsölustað skúiason hf SKl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.