Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997 11 Fréttir Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaöar: Auknar tekjur en skuldir á hættusvæði DV, Akranesi: Fjárhagsáætlun Akraneskaup- staðar fyrir 1997 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness í sið- ustu viku. Gert er ráð fyrir að tekj- ur bæjarins aukist um 10%. Verði 751 múlj. króna. Ástæöa tekjuaukn- ingar er uppgangur hjá Haraldi Böðvarssyni, Jámblendiverksmiðj- unni, Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts og þá hafa Hvalfjarðargöng- in einnig áhrif til aukningar á tekj- um bæjarins. Útgjöld bæjarins 1997 eru áætluð 595 milljónir og verða heldur meiri en 1996. Stærsti gjaldaliður er skóla- mál. í þau fara 256 milljónir. Til ný- framkvæmda eru áætlaðar 166 millj- ónir, þar af 25 milljónir sem fara i að undirbúa sameiginlegan sorpurð- unarstað fyrir sveitarfélögin á Vest- urlandi. 17 milljónir fara í gólf í íþróttahúsinu á Vesturgötu, auk þess verður ráðist í nokkrar gatna- framkvæmdir, endurbætur á lóða- málum grunnskólanna og bókhlöð- unnar. Gert er ráð fyrir að kaupstaður- inn taki 50 milljónir að láni í ár og samkvæmt heimildum eru skuldir Akraness komnar á gráa svæðið. Næstu 3-4 ár verða mjög erfið fyr- ir kaupstaðinn. Þá koma inn þær skuldbindingar sem kaupstaður- inn hefur gert, svo sem stúkan á íþróttavellinum, stækkun golfvall- arins og fyrir liggur að byggja við Grundaskóla og Brekkubæjarskóla á næstu árum til að tryggja ein- setningu grunnskóla. Þá er bygg- ing nýs leikskóla fyrirhuguð og ekki má gleyma að fyrirhugað er að byggja rennibraut við Jaðars- bakkalaug á Akranesi sem mun kosta á annan tug milljóna. Miklu er varið til íþróttanna á Akranesi sem hefur skilað sér margfalt til baka að mati margra en aðrir eru á þeirri skoðun að íþróttirnar taki alltof mikla peninga frá bænum. -DVÓ Reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins: Friðun hrygning arþorsks í apríl - þorskveiðar óheimilar í 15 daga Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um friðun hrygn- ingarþorsks í aprílmánuði. Sam- kvæmt henni eru allar veiðar óheimilar á þeim svæðum sem sjást á meðfylgjandi korti frá því klukk- an 20.00 þriðjudaginn 8. april til klukkan 10.00 árdegis miðvikudag- inn 23. apríl 1997. Þrátt fyrir ofangreint bann eru grásleppuveiðar, innfjarðarrækju- veiðar, hörpudisksveiðar og ígul- keraveiðar heimilar þeim sem hafa til þeirra tilskilin leyfi innan svæð- isins. Þá er og heimilt að stunda rauðmagaveiðar á grynnra vatni en 10 fóðmum á innanverðum Faxa- flóa. Bannið er efnislega samhljóða reglugerð þeirri sem gefin var út fyrir vetrarvertíðina í fyrra nema hvað bannið hefst nú 6 dögum fyrr og lýkur þar af leiðandi 6 dögum fyrr en í fyrra. -S.dór Akureyri: Umhverfisdagur í Menntaskólanum DV, Akureyri: Huginn, skólafélag Menntaskól- ans á Akureyri, hefur boðað til um- hverfisdags í skólanum í dag. Boðað er til fundar á sal skólans kl. 16.15 þar sem fram fara pallborðsumræð- ur um stóriðju á íslandi með álver í fararbroddi. Þeir sem taka þátt i umræðunum eru Hjörleifur Guttormsson alþing- ismaður, Ólafur Öm Haraldsson, formaður umhverfisnefhdar Alþing- is, Jón Sigurðsson fyrir hönd „Ál- ver, já takk“ og Einar Valur Ingi- mundarson verkfræðingur. Þeir munu kynna allar hliðar stóriðju hér á landi. Umræðumar eru öllum opnar og fyrirspumir úr sal verða leyfðar. Samtímis fer í gang í skólanum allsherjar umhverfisátak og er tak- markið að hugarfarsbreyting eigi sér stað hjá nemendum. Rusl verður flokkað og sett verður í reglur skól- ans að það skuli gert framvegis og komið verður á laggimar umhverf- ishóp meðal nemenda til að fylgja þessu máli eftir. -gk Fylgi borgarstjórnarflokka: Munurinn ekki marktækur segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir „Út af fyrir sig held ég að við megum vel við una. Fylgið stefnir í rétta átt, ekki sist miðað við síð- ustu könnun blaðsins í fyrra. Ég lít svo á að munurinn sé ekki marktækur þannig að þetta segir manni sem maður kannski veit, að það eru tvær jafnstórar fylk- ingar í borginni. Það getur auðvit- að farið á ýmsa vegu en við höf- um frekar möguleikana á að vinna á eftir þvi sem nær dregur kosningum heldur en hitt,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri við DV vegna niðurstaðna skoðanakönnunar blaðsins á fylgi borgarsfjómarflokkanna. -bjb Árni Sigfússon: Jákvæð vísbending „Þetta heldur áfram að vera já- kvæð visbending. Eins og kann- anir hafa sýnt þá er mjótt á mun- um. Við ætlum okkur að halda þessu meirihlutafylgi sem við höf- um fundið fyrir í síðustu könnun- um,“ sagði Ámi Sigfússon, odd- viti sjálfstæðismanna í borgar- stjórn, við DV um niðurstöður skoöanakönnunar blaðsins á fylgi borgarstjórnarfLokkanna sem birt var í gær. Þar fengu sjálfstæðis- menn nauman meirihluta í borg- arstjórn. -bjb Reykjavík: Tveir teknir með fíkniefni Tveir menn voru handteknir á bifreið í miðborg Reykjavíkur í nótt. Fíkniefhi fundust í bílnum og voru mennimir fluttir í fanga- geymslur. Þeir verða yfirheyrðir vegna málsins í dag. -RR Aðalfundur Islandsbanka hf. Aðalfundur íslandsbanka hf. 1997 verður lialdinn í Súlnasal Hótel Sögu múnudaginn 17. mars 1997 og hefst kl. 14:00. Dagskrá 1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta bankans. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út þriðjudaginn 11. mars n.k. kl. 17:00. Framboðum skal skila til bankastjórnar, Kirkjusandi. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í fslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð, 13. og 14. mars frá kl. 9:15 - 16:00 og á fundardegi frá kl. 9:15-12:00. Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins fyrir árið 1996 verður hluthöfum til sýnis á sama stað frá og með mánudeginum 10. mars 1997. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi. 4. mars 1997 Bankaráð fslandsbanka hf. ISLANDSBANKI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.