Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997
11
Fréttir
Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaöar:
Auknar tekjur
en skuldir á
hættusvæði
DV, Akranesi:
Fjárhagsáætlun Akraneskaup-
staðar fyrir 1997 var samþykkt á
fundi bæjarstjórnar Akraness í sið-
ustu viku. Gert er ráð fyrir að tekj-
ur bæjarins aukist um 10%. Verði
751 múlj. króna. Ástæöa tekjuaukn-
ingar er uppgangur hjá Haraldi
Böðvarssyni, Jámblendiverksmiðj-
unni, Skipasmíðastöð Þorgeirs og
Ellerts og þá hafa Hvalfjarðargöng-
in einnig áhrif til aukningar á tekj-
um bæjarins.
Útgjöld bæjarins 1997 eru áætluð
595 milljónir og verða heldur meiri
en 1996. Stærsti gjaldaliður er skóla-
mál. í þau fara 256 milljónir. Til ný-
framkvæmda eru áætlaðar 166 millj-
ónir, þar af 25 milljónir sem fara i
að undirbúa sameiginlegan sorpurð-
unarstað fyrir sveitarfélögin á Vest-
urlandi. 17 milljónir fara í gólf í
íþróttahúsinu á Vesturgötu, auk
þess verður ráðist í nokkrar gatna-
framkvæmdir, endurbætur á lóða-
málum grunnskólanna og bókhlöð-
unnar.
Gert er ráð fyrir að kaupstaður-
inn taki 50 milljónir að láni í ár og
samkvæmt heimildum eru skuldir
Akraness komnar á gráa svæðið.
Næstu 3-4 ár verða mjög erfið fyr-
ir kaupstaðinn. Þá koma inn þær
skuldbindingar sem kaupstaður-
inn hefur gert, svo sem stúkan á
íþróttavellinum, stækkun golfvall-
arins og fyrir liggur að byggja við
Grundaskóla og Brekkubæjarskóla
á næstu árum til að tryggja ein-
setningu grunnskóla. Þá er bygg-
ing nýs leikskóla fyrirhuguð og
ekki má gleyma að fyrirhugað er
að byggja rennibraut við Jaðars-
bakkalaug á Akranesi sem mun
kosta á annan tug milljóna. Miklu
er varið til íþróttanna á Akranesi
sem hefur skilað sér margfalt til
baka að mati margra en aðrir eru
á þeirri skoðun að íþróttirnar taki
alltof mikla peninga frá bænum.
-DVÓ
Reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins:
Friðun hrygning
arþorsks í apríl
- þorskveiðar óheimilar í 15 daga
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út reglugerð um friðun hrygn-
ingarþorsks í aprílmánuði. Sam-
kvæmt henni eru allar veiðar
óheimilar á þeim svæðum sem sjást
á meðfylgjandi korti frá því klukk-
an 20.00 þriðjudaginn 8. april til
klukkan 10.00 árdegis miðvikudag-
inn 23. apríl 1997.
Þrátt fyrir ofangreint bann eru
grásleppuveiðar, innfjarðarrækju-
veiðar, hörpudisksveiðar og ígul-
keraveiðar heimilar þeim sem hafa
til þeirra tilskilin leyfi innan svæð-
isins. Þá er og heimilt að stunda
rauðmagaveiðar á grynnra vatni en
10 fóðmum á innanverðum Faxa-
flóa.
Bannið er efnislega samhljóða
reglugerð þeirri sem gefin var út
fyrir vetrarvertíðina í fyrra nema
hvað bannið hefst nú 6 dögum fyrr
og lýkur þar af leiðandi 6 dögum
fyrr en í fyrra. -S.dór
Akureyri:
Umhverfisdagur
í Menntaskólanum
DV, Akureyri:
Huginn, skólafélag Menntaskól-
ans á Akureyri, hefur boðað til um-
hverfisdags í skólanum í dag. Boðað
er til fundar á sal skólans kl. 16.15
þar sem fram fara pallborðsumræð-
ur um stóriðju á íslandi með álver í
fararbroddi.
Þeir sem taka þátt i umræðunum
eru Hjörleifur Guttormsson alþing-
ismaður, Ólafur Öm Haraldsson,
formaður umhverfisnefhdar Alþing-
is, Jón Sigurðsson fyrir hönd „Ál-
ver, já takk“ og Einar Valur Ingi-
mundarson verkfræðingur. Þeir
munu kynna allar hliðar stóriðju
hér á landi. Umræðumar eru öllum
opnar og fyrirspumir úr sal verða
leyfðar.
Samtímis fer í gang í skólanum
allsherjar umhverfisátak og er tak-
markið að hugarfarsbreyting eigi
sér stað hjá nemendum. Rusl verður
flokkað og sett verður í reglur skól-
ans að það skuli gert framvegis og
komið verður á laggimar umhverf-
ishóp meðal nemenda til að fylgja
þessu máli eftir.
-gk
Fylgi borgarstjórnarflokka:
Munurinn ekki
marktækur
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
„Út af fyrir sig held ég að við
megum vel við una. Fylgið stefnir
í rétta átt, ekki sist miðað við síð-
ustu könnun blaðsins í fyrra. Ég
lít svo á að munurinn sé ekki
marktækur þannig að þetta segir
manni sem maður kannski veit,
að það eru tvær jafnstórar fylk-
ingar í borginni. Það getur auðvit-
að farið á ýmsa vegu en við höf-
um frekar möguleikana á að
vinna á eftir þvi sem nær dregur
kosningum heldur en hitt,“ sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri við DV vegna niðurstaðna
skoðanakönnunar blaðsins á fylgi
borgarsfjómarflokkanna. -bjb
Árni Sigfússon:
Jákvæð vísbending
„Þetta heldur áfram að vera já-
kvæð visbending. Eins og kann-
anir hafa sýnt þá er mjótt á mun-
um. Við ætlum okkur að halda
þessu meirihlutafylgi sem við höf-
um fundið fyrir í síðustu könnun-
um,“ sagði Ámi Sigfússon, odd-
viti sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn, við DV um niðurstöður
skoöanakönnunar blaðsins á fylgi
borgarstjórnarfLokkanna sem birt
var í gær. Þar fengu sjálfstæðis-
menn nauman meirihluta í borg-
arstjórn. -bjb
Reykjavík:
Tveir teknir
með fíkniefni
Tveir menn voru handteknir á
bifreið í miðborg Reykjavíkur í
nótt.
Fíkniefhi fundust í bílnum og
voru mennimir fluttir í fanga-
geymslur. Þeir verða yfirheyrðir
vegna málsins í dag.
-RR
Aðalfundur
Islandsbanka hf.
Aðalfundur íslandsbanka hf. 1997 verður lialdinn
í Súlnasal Hótel Sögu múnudaginn 17. mars 1997
og hefst kl. 14:00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein
samþykkta bankans.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út
þriðjudaginn 11. mars n.k. kl. 17:00.
Framboðum skal skila til bankastjórnar, Kirkjusandi.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í
fslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð,
13. og 14. mars frá kl. 9:15 - 16:00 og á fundardegi frá
kl. 9:15-12:00.
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins
fyrir árið 1996 verður hluthöfum til sýnis á sama stað
frá og með mánudeginum 10. mars 1997.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja
aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12:00
á hádegi á fundardegi.
4. mars 1997
Bankaráð fslandsbanka hf.
ISLANDSBANKI