Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1997, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1997, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 7 Fréttir Fáránlegt að breyta nafni hátíðarinnar - segir Magnús Már Þorvaldsson DV, Akureyri: „Ég hef að vlsu ekki séð álit starfshópsins í heild en það eitt að leggja til að leggja niður nafnið „Halló Akureyri" finnst mér fárán- legt,“ segir Magnús Már Þorvalds- son, sem verið hefur framkvæmda- stjóri hátíðarinnar „Halló Akur- eyri“, um verslunarmannahelgam- ar undanfarin ár. Starfshópur á vegum Akureyrar- bæjar, sem fékk það verkefni að gera tillögin' um á hvaða hátt Akur- eyrarbær gæti komið að hátíðahaldi í bænum um verslunarmannahelg- ina, hefur skilað tillögum sínum. Hópurinn gerir ákveðnar tillögur um hvernig bærinn geti komið að málinu og leggur ýmislegt til varð- andi skipulag hátíðarinnar en Magnús Már segir það stinga mest í augun að lagt skuli til að leggja nið- ur nafn hátíðarinnar sem notað hef- ur verið undanfarin ár. Nafni Manchester United ekki breytt „Aðdáendur enska knattspyrnu- liðsins Manchester United voru fyr- ir nokkrum árum mjög neikvæðir - hreinræktaðar knattspymubullur sem settu svartan blett á félagið. Nafni félagsins var þó ekki breytt en forráðamenn félagsins hafa unn- ið sig út úr þessu vandamáli á ann- an hátt og stuðningsmenn félagsins þykja til fyrirmyndar í dag. Sama er með okkur sem höfum unnið að „Halló Akureyri". Það er varla deilt um það að við höfum gert ýmislegt gott en hins vegar hef- ur annað farið miður. En það leysir engan vanda að leggja niður nafn sem hefur þegar hlotið kynningu og er grípandi. Það er fáránlegt og set- ur okkur á byrjunarreit að nýju. Við þurfum að lagfæra ákveðin at- riði en leiðin til þess er ekki að rífa allt niður sem byggt hefur verið upp,“ segir Magnús Már. -gk Lögfræðingur Skráningarstofunnar hf.: Mismunum ekki viðskiptavinum „Það eru alveg hreinar línur að starfsfólk hér mismunar ekki við- skiptavinum. Stefna fyrirtækisins er skýr og snýst um að veita öllum góða þjónustu. Starfsfólkið er vel meðvitað um þau lög sem eru í gildi og fer eftir þeim. í einstaka tilvik- um virðist hafa borið á tæknilegum samskiptaörðugleikum milli faxtækja og það verður að sjálf- sögðu að laga,“ segir Brynhildur Ge- orgsdóttir, lögfræðingur Skráning- arstofunnar hf., um gagnrýni IBEX/FÍB-trygginga á stofuna í DV á laugardag. Þar var hún sökuð um að vinna gegn hagsmunum IBEX/FÍB-trygginga. Brynhildur segir að samkvæmt lögum beri að leggja fram gögn um að ökutæki hafi verið tryggt. Hér áður hafi þessar staðfestingar frá tryggingafélögunum verið þungar í vöfum og tekið mikinn tíma. Því hafi öll tryggingafélögin skrifað undir samkomulag þar sem þau skuldbinda sig til að tryggja þann sem þess óskar við nýskráningu eða eigendaskipti. Nú þurfi ekki þessa staðfestingu tryggingafélagsins. Að þessu leyti eru IBEX/FÍB-trygging- ar sér á parti því fyrirtækið standi utan þessa samkomulags. „IBEX/FÍB- tryggingum hefur verið boðið að taka þátt í þessu samstarfí tryggingafélaganna en hingað til hafa þær viljað standa utan þess. Þeim er það frjálst en af þeim sök- um verður Skráningarstofan að fara fram á sérstaka staðfestingu á því að fyrirtækið hafi fallist á að tryggja ökutækin,“ segir Brynhild- ur. -sv Athugasemd í DV 13. maí sl., bls. 34, birtist frétt með yfirskriftinni „Hólmavík: Nýr sveitarstjóri". Undirrituð telur nauðsynlegt að koma á framfæri eftirfarandi leið- réttingu á efni fréttarinnar og óskar eftir að hún verði birt. í umræddri frétt er vitnað í um- ræður á aðalfundi Héraðsnefndar Strandasýslu. Þar segir orðrétt: „Hörð gagnrýni kom fram á þá gjörð oddvita héraðsins að örfáum dögum fyrir aðalfundinn hefði verið gengið frá ráðningu nýs fram- kvæmdastjóra, manns sem væri öllu ókunnugur í héraðinu." Hið rétta er að ráðning fram- kvæmdastjóra var leidd til lykta á aðalfundi héraðsnefndarinnar en ekki örfáum dögum fyrir hann. Á aðalfundinum var samþykkt með 6 atkvæðum gegn einu tillaga mn að „fela héraðsráði að leita eftir áfram- haldandi samstarfi við hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps um skrifstofu- hald og framkvæmdastjóm héraðs- nefndar". Fulltrúi Broddaneshrepps í hér- aðsnefndinni, Guðfinnur Finnhoga- son, var sá eini sem gagnrýndi efni tillögunnar og greiddi atkvæði gegn henni. Svo vill til að hann er einnig fréttaritari DV á Hólmavík. Hólmavík 15. maí 1997. Drífa Hrólfsdóttir, oddviti héraðs- nefndar Strandasýslu. DV las athugasemdina fyrir Guð- finn. Hann sagði að hann ætlaði ekki að láta neinn meina sér að brosa pínulítið. -hsím Bækur til sölu Árbækur Espólíns 1.-12. bindi, skb., Flateyjarbók 1.-3. b. (frumútg. 1868), Flateyjarbók 1.-4. b., útg. Sig. Nordals 1944, skb., Maríu saga 1-2, útg. Ungers 1871, Heilagra manna sögur 1.-2. b., útg. sama 1877, Deildartunguætt 1.-2. bindi, Ættarskrá Bjarna Hermanns- sonar og mikill fj. ýmissa ættfræðirita, Alþingishátíöin 1930, Lýöveldishátíöin 1944, bækur um aðrar hátíðir sögunnar og afmælisrit félaga, Árbækur Reykjavíkur 1786-1936 e. Jón bisk- up Helgason, Verkleg sjóvinna e. Ársæl Jónasson kafara, Tímaritið Veiöimaöurinn 1.-80. hefti, ib. eintak, einnig annað eintak, ób.m.k., Náttúrufræðingurinn 1931-1965, ib. sett, Sama verk 1931-1980, ób.m.k., Læknablaðið 1915-1966, ib. eintak, Heilbrigöisskýrslur 1881-1971, ib. sett, Hlynur, tímarit samvinnumanna 1.-19. árg., skb., Leikhúsmál, tímarit Haraldar Björnssonar 1.-10. árg. 1940-1949, vandað handb. skb., tímaritið Líf og list 1.-4. árg. með fylgiblöðum, Hádegisblaðið 1940 (með greinum e. Stein Steinarr), Tímaritiö Óöinn 1.-32. árg., ib. skb., Salomonsens Konversationsleksikon 1.-26. bindi, (náma um íslenzka og norræna menningar- og persónusögu), Tímarit laganema Úlfljótur, 1.-40. árg., allt frum- prent, ób.m.k., Tímaritið Vaka 1.-3. árg. (útg. Sig. Nordal o.fl.), einnig ób. sett, Hver er maður- inn 1-2, frægt ættfræðirit, ób. eintök, Lækningabók Jónassens landlæknis 1884, gamalt skb., Lækningabók Jóns Péturssonar, Kh. 1834, ób., Um eðli og heilbrigði mannlegs lík- ama e. Jónassen, ýmis gömul Sjómannaalmanök, Almanak Þjóðvinafélagsins frá upphafi, ób.m.k., mörg eintök, Frá Djúpi og Ströndum e. Jóhann Hjaltason, Stríð fyrir ströndum e. próf. Þór Whitehead, Kolkrabbinn, ævintýrabók Örnólfs Árnasonar, Það vorar um Austur- Alpa, lofgjörð Knúts Arngrímssonar um Þriðja ríkið, Byltingin á Spáni e. Þórhall Þorgilsson, í styrjöldinni á Spáni e. Hallgr. Hallgrímsson, Bifreiðabókin 1931 (með bílnúmeraskránni gömlu), Strandamannabók e. Pétur frá Stökkum, Flóra 1-6, tímar. um grasafræði, ísl. tunga 1-6, tímarit um ísl. málvísi, Tímarit Halldóru Bjarnadóttur, Hlín 1.-40. árg., kplt, Hagskýrslur íslands 1.-75. hepti, ib. Weilbachs Kunstner Leksikon 1.-3. bindi, skb., Ljós yfir landi, hirðisbréf dr. Sigurbjarnar Einarssonar og ýmsar aðrar af bókum hans herradóms, Skrá um prentaðar íslenzkar bækur 1874 (aleina bókaskráin, sem Landsbókasafn íslands hefur út gef- . ið), Skýrslur um landshagi á íslandi 1.-5. bindi, ib., Palæografisk Atlas, öll bindin þrjú, Ant- iquités Russes d’aprés les monuments historiques des Islandais..., útg. C.C. Rafn 1850-1852, ób. sett, Prozessbericht uber die Strafsache des sowjetfeindlichen trotzkiistischen Zentr- ums, Moskva 1937 (heimildaútgáfa sovéskra yfirvalda um réttarhöldin, sem Laxness prísaði í Gerska ævintýrinu 1938), Iðnsaga íslands 1-2 (þar í ísl. byggingasaga), Úr landsuðri e. Jón Helgason, frumútg. 1938, vandað handb. skb., Öll verk Augusts Strindbergs á sænsku 1.-238. hepti, ób. (fyrsta heildarútg.) Gyldendals bibliotek 1.-53. bindi, skb., Frumútgáfa á mynd- og textaverki e. Andy Warhol, 1967, Þjóðsagnabók Ásgríms Jónssonar, Þjóðsögur og ævintýri útg. Einars Ól. Sveinssonar og margar af bókum þess höf., íslenzk myndlist 1-2 e. Björn Th. Björnsson, Örnefni í Vestmannaeyjum e. Þorkel Jóhannesson, Leyndardómar Parísarborgar 1.-5., ób., Eldur og regn e. Vigdísi Grímsd., Þangað vil ég fljúga, Ijóð Ingi- bjargar Haraldsdóttur, Corda Atlantica e. Karl Einarsson Dunganon, hertoga af Skt. Kildu, Sælueyjan á ísl. e. Strindberg, Síðasti bærinn í dalnum e. Loft Guðmundsson og fjöldi gam- alla ísl. barnabóka, Barn náttúrunnar e. Halldór frá Laxnesi, frumútg. fyrstu bókar skáldsins, 1919, ób.m.k., Kaþólsk viðhorf e. sama, Sjö töframenn, ób.m.k., frumútg., auglýsingaskjal um Vefarann mikla frá Kasmír, undirritað af nóbelsskáldinu 1927, Pað blæðir úr morgunsár- inu e. Jónas E. Svafár, frumútg., ób.m.k., Kvæði Eggerts Ólafssonar, Kh. 1832, gamalt skb., Alfinnur álfakóngur, Stofnunin e. Geir Kristjánsson, Tæmdur bikar e. Jökul Jakobsson og tugþúsundir annarra bóka í fræðum og fagurfræðum frá öllum tímabilum íslenzkrar prentsögu. í bóka- og reykelsisilmi að Vesturgötu 17, ríkir jákvæður andi þjóðmenningar og alþjóðlegrar sögu og menningar. Þar koma saman virðulegir prófessorar, blásaklausar skólameyjar af ýmsum þjóðernum, snar- borulegir háskólanemar, harðsvíraðir fjölmiðlamenn og konur, rænuskert og ofsótt ungskáld, menningarelítuviðurkenndir tízkuhöfundar, misvitrunarlegir stjórnmálamenn og ráðherrar af ýmsu tagi. Þar prýða veggi myndir af Julie Christie, Davíð Oddssyni, Hindenburg, og Adolf Hitler, Birni Bjarnasyni, Hedy Lamarr og Jósep Stalín, Doris Day, John Lennon, Friðrik Sophussyni og ótal öðrum gengnum og lífs. Við kaupum og seljum íslenzkar og erlendar bækur frá öllum tímum, heil bókasöfn og stakar bækur, fornmuni og eldri myndverk eftir íslenzka málara. Metum bækur og bókasöfn fyrir opin- berar stofnanir og einkaaðilja. Gefum út bóksöluskrár sem sendar eru til þeirra sem þess óska utan Reykjavíkursvæðis án endurgjalds. Vinsamlega hringið - skrifið - eða lítið inn. Bókavarðan - Bækur á öllum aldri Vesturgötu 17 S. 552 9720 (I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.