Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 1997 Fréttir Samkvæmt venju flutti fjallkonan Ijóö á Austurvelli f gær. Aö þessu sinni var þaö Halldóra Geirharös- dóttir sem var fjallkonan. voru í fangageymslum lögreglu klukkan níu í morgun og þykir það ekki mikið. Þá telur lögregla að hjálpað haíi til að það fór að rigna upp úr klukkan 4 í nótt. Við það héldu þeir sem enn voru í bænum heim á leið. Fóru öll hátíöarhöld vel fram þegar á heildina er litið. -sf Gífurlegur mannfjöldi var á tónleikum f Lækjargötu f gærkvöldi. Aö sögn lögreglu er taliö aö 12 þúsund manns hafi veriö f miöbæ Reykjavfkur þegar mest var. DV-mynd Hilmar Þór Friðsæll 17. júní Friðsamt var í miðbæ Reykja- víkur í gærkvöld og nótt. Skemmt- anahald fór vel fram. í gærkvöldi er giskað á að um 12 þúsund manns hafi verið í bænum, stærsti hlutinn á tónleikunum í Lækjargötu. ölvun var ekki áberandi og fór ekki aö bera á henni fyrr en eftir klukkan tvö í nótt. Eftir tónleik- ana héldu þó flestir heim á leið. Þrír voru fluttir á slysadeild af lögreglu. Athyglisvert er að frá klukkan 20 í gærkvöldi til 6 í morgun var fjöldi bókana lögreglu 60 en í fyrra voru þær 81 þannig aö rnn verulega fækkun er að ræða. Mun færri mál vegna lík- amsárása komu til lögreglu en í fyrra. Eins var fækkun á málum vegna eignaspjalla. Níu manns Forseti íslands lagöi, ásamt stúdent og iönnema, blómsveig aö minnisvarða Jóns Sigurössonar á Austurvelli í gær. Er þetta í fyrsta skipti sem iönnemi aöstoöar forsetann viö þetta tækifæri. DV-mynd Hilmar Þór Mun betra en í meðal- ári „Viðbúnaðurinn sem slíkur er hinn sami. í nótt gistu 9 manns fangageymslur en í fyrra voru þeir 35,“ segir Haukur Ásmundsson, aöal- varöstjóri hjá Lögreglunni í Reykjavík. Hátíðarhöldin hafa róast nokkuð undanfarin ár. Þó voru nokkur læti í fyrra. Þá urðu átök milli lögreglu og fólks í Lækjargötu er maður klifraði upp á hliðið á Austur- stræti. Mér finnst yfirbragðið á þessu hafa verið mjög gott, bæði í gærdag og gærkvöldi. Ég fór sjálfur og labbaði um bæinn í gærkvöldi. Það var ekki hægt að segja að fólk væri undir áhrifum víns. Þetta var svona smá ærslagangur sem fylgir þessu alltaf og er ekkert viö því aö segja. Þegar á heildina er litið var þetta mun betra en í meðalári," sagði Haukur. -sf Mikill fjöldi fólks var samankominn í miöbæ Reykjavíkur í gærdag. Mannhafiö viröist óendanlegt þegar horft er frá Hljómskálagaröi og inn Frfkirkjuveg. DV-mynd Hilmar Þór Akureyri: 102 stúd- entar braut- skráðir DYAkuieyri: Menntaskólanum á Akureyri var slitiö í 117. skipti í íþróttahöllinni á Akureyri í gærmorgun. Nú voru brautskráðir 102 stúdentar, 42 piltar og 60 stúlkur. Dúx útskriftamema að þessu sinni var Sigurður Tómas Þórisson frá Ak- ureyri með ágætiseinkunnina 9,32. Semí-dúx er Ingibjörg Birta Sigurð- ardóttir frá Akureyri með ágætisein- kunnina 9,10. Sigurður Tómas hlaut margar við- urkenningar og verðlaun fyrir frá- bæran námsárangur í ýmsum grein- um raunvísinda, m.a. Stjömu-Odda verðlaunin. Ingibjörg Birta hlaut viðurkenningar fyrir frábæran námsárangur í félagsgreinum. Hæstu einkunn við skólann hlaut Amhildur Eyja Sölvadóttir frá Húsa- vík, sem stundaði nám í 1. bekk, en hún fékk bekkjareinkunn 9,7. Alls vora 558 nemendur skráöir til náms í upphafi skólaárs. Enda þótt skólinn geri strangar kröfur um inn- töku er brottfall úr skólanum mikið, um 25% á fyrsta ári, um 20% á öðra ári og um 10% á þriðja ári. Brottfall nemenda á 4. ári er 2-3%. Tryggvi Gíslason skólameistari sagði í skóla- slitaræðu sinni að í þróunaráætlun fyrir Menntaskólann á Akureyri til ársins 2002 væru áætlanir um að minnka brottfall nemenda. Fyrsta skrefið í þeirri áætlun væri að breyta og bæta stærðfræðikennslu á fyrsta ári og verði þeirri breytingu komið á í haust. -gk Stuttar fréttir Ósamkeppnisfær Háskóli íslands þarf sveigjan- legra launakerfi og auknai- fjár- veitingar til launa eigi hann að verða samkeppnishæfur við at- vinnulífið um góða kennslu- krafta, sagði Sveinbjöm Bjöms- son, fráfarandi háskólarektor, við útskrift kandídata í gær, 17. júní. Stöð 2 sagði frá. Ágætur gerningur „Sáttmálinn um Evrópusam- bandið er vafalítiö einn ágæt- asti gerningur í samskiptum þjóða á þessari öld. Það réttlæt- ir þó ekki að sífellt sé gengið lengra i samrunaferlinu,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráð- herra í þjóöhátíðarræðu sinni á Austurvelli. 8 fengu fálkaorðuna Forseti íslands sæmdi átta manns fálkaorðunni að Bessa- stöðum í gær. Þeirra á meöal var Elín Pálmadóttir blaðamað- ur sem hlaut riddarakross fyrir blaðamennsku og ritstörf. Hærri kennaralaun Ef laun kennara verða ekki hækkuð geta menn gleymt öll- um umbótum í skólakerfinu, sagöi Tryggvi Gíslason, skóla- meistari MA, í skólaslitaræðu í gær. Stöð 2 sagði frá. 13.000 ára hvalbein Hvalbein, sem fundust í mal- arnámu i Melasveit nýlega, hafa verið send utan til aldursgrein- ingar. Þau era talin geta verið um 13.000 ára gömul. Stöð 2 sagöi frá. Grænir skattar koma Mengunarskattar, svokallaðir grænir skattar, verða lagðir á hér á landi á næstu árum, segir fjármálaráðherra í sjónvarpinu. Borgarlistamaður Hörður Ágústsson listmálari var útnefndur borgarlistamaður ársins í gær. Jafnframt nafnbót- inni fær hann 500 þúsund kr. heiðurslaun. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.