Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 1997
32 *
★
kvikmyndir
The Fifth Element ★★★
Smart höfuðskepnur
Fimmta höfuðskepnan er hin fullkomna geimvera
(og Ijðsmyndafyrirsæta, Milla Jovovich) sem er lífið
sjálft Fullkomnunin felst ekki síst í fegurð stúlkunnar
og er þar kominn lykillinn að leyndardómnum: fimmta
höfuðskepnan gengur út á útlit og fegurð. Franski leik-
stjórinn Luc Besson skrifar sjálfur handritið með Ro-
bert Kamen og er ólíklegt að þeim tveimur hefði getað
tekist ver til, þótt þeir hefðu lagt sig í líma. Hinn al-
geri skortur á söguþræði er stöðugt gerður verri með
ótrúlega klaufalegum og hallærislegum senum.
Árið 2259 lendir Bruce Willis, aftur og nýbúinn (eft-
ir apana 12), í því að bjarga heiminum og tekst betur
upp í þetta sinnið, þó að leiklega séð láti hann í minni
pokann fyrir hinum frábæra Gary Oldman sem ill-
mennið Zorg. Báðir beijast þeir hetjulega við óguðlega
lélegt handrit og sigrast á öllum klisjunum í krafti
þess að þeir skemmta sér greinilega svo vel í finu bún-
ingunum sínum og innanum allt smarta dótið. Og það
er einmitt málið, hér er það útlitiö og stíllinn sem eru
í aðalhlutverkum og gera Fimmtu höfuðskepnuna
ómissandi.
Fatahönnuðtxrinn Jean-Paul Gaultier gerir búning-
ana og útlitið er hannað af teiknimyndasögusköpurun-
um Moebius (Jean Girard) og Jean-Claude Mézirs og
eiga þeir allir ríkan þátt í hversu vel hefúr tekist til.
Hvert smáatriði er úthugsað og þegar litið er á þá stað-
reynd að Luc Besson heimtaöi að hafa puttana í öllu,
aUt niður í það að velja hvert smáhlutverk sjálfur, þá
er ekki undarlegt að handritið hafi ekki oröið burð-
ugra. En yfirlegan borgaöi sig svo sannarlega og út-
koman er án hiks ein alfallegasta og smartasta fram-
tíöarmynd sem ratað hefúr á sýningartjald. Samspil
hljóðs og myndar með eindæmum elegant og til að
njóta þessa alls sem best er vænlegast að keyra heilann
niður og augu og eyru upp.
Leikstjóri: Luc Besson. Handrit: Luc Besson og Robert
Kamen. Tónlist: Eric Serra. Kvikmyndataka: Thierry
Arbogast. Yfirumsjón meö tæknibrellum: Mark Stet-
son. Aðalhlutverk: Bruce Willis, Gary Oldman, lan
Holm, Milla Jovovich, Chris Tucker.
Úlfhildur Dagsdóttir
Framtíðin í stíl
að eina sem kvikmyndagerðar-
menn virðast sammála um með
framtíðina er að hún verður í stíl,
helst einhverjum sem viröist ekki
þessa heims og sem fjarrænastur. Enda er
það rökrétt að þegar lýsa skal öðram
veruleika en þeim sem við sitjum fost í
núna kemur útlitið að góðum notum til
að sýna fram á annarleika og undirstrika
umbreytingar.
Allt frá upphafi kvikmyndarinnar hef-
tn fólk sýnt ótrúlegt hugarflug þegar
birta á mynd af framtíð og geimi og þess-
ar stílfæringar hafa oftar en ekki skilað
sér samviskusamlega inn í tískuheiminn.
Myndir eins og Metropolis, The Day the
Earth Stood Still, A Clockwork Orange,
Star Wars, 2001, Blade Runner, Alien,
Brazil, Johnny Mnemonic, Judge Dredd,
Strange Days og 12 Monkeys hafa allar,
hver á sinn hátt, undirstrikað stíl og útlit
og haft víðtæk áhrif. Níundi áratugurinn
sá sinn skerf af framtíðartísku og hafði
ekki fyr jafnað sig en sá tíundi reið yfir
uppfullur af aðdáun á öllu því sem tengist
tækni og geim og framtíðargeimtækni. Og
nú er það ekki bara kvikmyndin sem hef-
ur áhrif á tískuna heldur er tískuheimur-
inn farinn að grípa inn í stíl hinnar kvik-
mynduðu framtíðar, líkt og sést best í
Borg týndu barnanna og Fimmtu höfúð-
skepnunni þar sem Gaultier hannar bún-
inga. Það vill oft verða að myndir af
þessu tagi séu svo uppteknar af eigin út-
liti að þær gleymi sögu og persónum,
dæmi um þetta er Höfuðskepnan þar sem
handritið virkar sem formsatriði til að
koma leikurunum í gegnum öll flottu
gimmikkin.
Ofuráhersla þessi á útlit og stíl hefur
valdið nokknnn áhyggjum meðal þeirra
sem láta sig slíkt varða og talað hefúr ver-
ið þunglega um nýja kynslóð sem ekki
ber skynbragð á góða sögu. Fólk sem er
alið upp á MTV vill hraða og stil en ekki
hægfara frásögn og þrívíðar persónur. í
þessari hugsun liggur að orðið er yfir-
skipað myndinni, ímyndin eða myndin er
einfóld og auðmelt meðan frásagan er
flókið tjáningarform. Sem befur fer er
þetta rangláta mat farið að láta á sjá og
þótt enn hljóti samspil sögu og myndar að
vera eftirsóknarverðast er meiri meðvit-
und fyrir því að myndin er ekki bara
aukaatriði og skraut heldur talar hún
sínu máli líka.
-úd
rs .......-*rsri—i i' w
r v "' IÉ
Stfllinn skiptlr miklu máli f The Fifth Element.
flukablað ii m
ferðir innanlonds
Miðvikudaginn 25. júní mun veglegt aukablað um ferðir innan-
lands fylgja DV. Blað þetta er annað af tveim aukablöðum um ferð-
ir innanlands sem fylgja DV í sumar, seinna blaðið mun koma út í
lok júlí.
Meðal efnis:
Húsbílaklúbburinn
íslenski fjaHahjólaklúbburi
Útivistarbúnaður
Hvalaskoðun
Gönguleiðir
Veiði o.m.fl.
Þeir sem ókuga hafa á að koma á framfæri efni í blaðið er bent á
að hafa samband við Guðrúnu Gyðu, blaðamann DV, í síma 550-
5821.
Auglýsendum er bent á að hafa samband við Gústaf Kristinsson,
auglýsingadeild DV. í síma 550-5723 fyrir 20. júní.
2D
í Bandaríkjunum
- a&sókn 13.-15. júnf. Tekjur f milljónum dollara og helldartekjur
Stórmyndlrnar koma á marka&lnn vlkulega þessa stundina. f sf&usti vlku
var þaö Con Air og nú er þaö Speed 2: Cruise Control, sem veldur fram-
lei&endum myndarinnar þegar áhyggjum, þvf þótt mesta a&sóknin hafi
veriö á hana um sf&ustu helgi þá eru 16 milljónir Iftiö upp f kostna&inn
viö gerö myndarinnar sem nam 140 mllljónum dollara. Speed 2 fékk af-
leita dóma f Bandarfkjunum og sam-
kvæmt Variety voru þaö a&eins 3 gagn-
rýnendur sem Ifka&i myndin, 33 líka&i
ekki og 9 voru á milli. Enginn önnur ný
mynd ná&l Inn á Top 20 llstann aö þessu
sinni. sem sýnd er viö vinsældir hér á
landi um þessar mundir ná&i þvf aö kom-
ast yfir 100 milljón dollara markifi f síö-
ustu viku, fyrst kvikmynda Cravens.
1.(-)Speed 2: Crulse Control Tekjur 16.158 Helldartekjur 16.158
2.(1) ConAlr 15.674 49.892
3.(2)The Lost World: Jurassic Park 12.477 190.697
4.(3)Addicted to Love 2.297 30.188
5.(7) Austin Powers 2.092 46.043
6.(5) Gone Fishin’ 2.045 13.803
7.(4) Buddy 1.917 6.844
8.(8)The Fifth Element 1.483 57.922
9.(6) Trial and Error 1.343 11.458
10.(9) Breakdown 1.017 46.731
11.(10) LiarLiar 1.007 170.045
12.(-) TheSaint 0.518 60.000
13.(-) Jungle 2 Jungle 0.516 56.265
14.(13) Volcano 0.496 45.429
15.(11)Nlght Falls on Manhattan 0.415 9.070
16.(16) Scream 0.370 101.7.17
17.(17)Romy & Michele’s Hlgh School Reunlon 0.356 27.254
18.(15) Father’s Day 0.342 27.626
19.(14) Anaconda 0.337 60.851
20.(13)Till there Was You 0.320 3.023