Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Síða 29
ME)V1KUDAGUR 18. JÚNÍ 1997
33
Myndasögur
Veiðivon
í
T3
s
:0
w
,0
^cð
Ö)
O
cð
w
>-l-l
I' .2
O)
u>
co
•Ft»
Stangaveiðifélag A- Húnavatnssýslu:
Lífi haldið í fé-
laginu lengur
„Við ætium að kaupa hjólhýsi og
setja upp við silungasvæðið í Svartá
og Fossá. En við höfum tekið svæð-
ið á leigu í sumar og eigum von á að
veiðimenn á öllum aldri fjölmenni
þangað," sagði Þorvaldur Ólafsson,
formaður Stangaveiðifélags Austur-
Húnvatnssýslu, í gærkvöld. Hann
var endurkjörinn formaður á fjör-
legum fundi um framtíð félagsins í
fyrradag. Það kom sterklega til
greina að leggja félagið niður vegna
áhugaleysis félagsmanna.
„Næsta sunnudag verður haldinn
veiðidagur fjölskyldunnar við Lax-
árvatn en þessi veiðidagur er hald-
inn um allt land þennan dag,“ sagði
Þorvaldur.
Margt kom fram á þessu fundi,
eins og áhyggjur félagsmanna að
banna eigi veiðiskap unga veiði-
manna með sjávarkambinum á
Blönduósi. En bæjarstjóm Blöndu-
óss er með málin inni á sínu borði
og þar gæti ýmislegt gerst.
-G.Bender
Skolað af fiski við Laxá á Ásum, en þar hafa veiöst 15 laxar.
Vatnsdalsá:
Veiddu 60
silunga, flesta
með netaförum
„Við vorum að koma af silunga-
svæðinu í Vatnsdalsá og fengum 60
Umsjón
GunnarBender
silunga. Það er í sjálfu sér ágæt
veiði en flestir silungarnir voru
með netafórum og sum þeirra voru
slæm,“ sagði veiðimaður í samtali
við DV í gærkvöld en bleikjan hefur
verið að gefa sig meir og meir fyrir
Norðurlandinu síðustu daga.
„Það stórsá á nokkmm fiskum
sem við veiddum, forin á þeim voru
slæm. Þessi fiskur er að koma beint
úr sjó, svo hann ætti ekki að vera
með þessi netaför. Nema eitthvað
verði á vegi hans á leiðinni upp í
ána,“ sagði veiðimaðurinn.
Stóra-Laxá í Hreppum:
Egill veiddi fyrsta laxinn
„Egill Guðjohnsen veiddi fyrsta
laxinn í Stóm-Laxá í Hreppum og
þetta var 9 punda fiskur, fiskinn
veiddi Egill á svæði eitt og tvö.
Nokkrar bleikjur veiddust á svæði
þrjú,“ sagði Bergur Steingrímsson
framkvæmdastjóri Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur í gærkvöld er við
spurðum frétta af veiðiskapnum.
„Elliðaámar era komnar með 5
laxa og í gærmorgun veiddust 4 lax-
ar. Það er bara töluvert líf við El-
liðaárnar núna. Sogið var opnað um
helgina og veiddust bleikjur og ur-
riði en ekki lax enn þá,“ sagði Berg-
ur í lokin.
-G.Bender