Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 JL>V 6 útlönd stuttar fréttir I Mótmæltu Lögregla í Istanbúl beitti vatnsbyssum og kylfum til að dreifa um 2 þúsund manns sem mótmæltu lengingu skólaskyld- unnar. Það mundi aftur leiða til lokunar forskóla þar sem trúarkenningar múslíma eru kenndar. Beitir þrýstingi Boris Jelts- ín, forseti Rússlands, hyggst beita leiðtoga Tsjetsjeníu þrýstingi til að fá rúss- neskan blaða- mann og fleiri Rússa lausa úr gíslingu. í viðbragösstööu Tugþúsundir lögreglumanna í Þýskalandi eru í viðbragðs- stöðu fyrir helgina vegna þess að nýnasistar munu fara í göngur tO að heiðra minningu nasistaforingjans Rudolfs Hess. Drukknuöu Fjórir drukknuðu er Iskemmtibáti hvolfdi nærri Manila á Filippseyjum. Mega skjóta Ný lög í Louisianaríki í Bandaríkjunum heimila öku- mönnum, sem finnst sér ógnað af ræningjum, að skjóta á þá. Dæmdur Þjóðveiji, sem reyndi að kúga fé út úr Nestle-stór-fyrirtækinu, var dæmdur í þriggja ára fangelsi. Hann hafði hótað að smita framleiðslu fyrirtækisins með kúariðu-veiru. Vill tefja Kofi Annan, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að UNITA-skæruliðar í Angóla fullnægðu ekki skil- málum friðarsamninga. Dipló- matar sögöu að hann vildi tefja fyrir refsiaðgerðum gegn þeim. Rifust heiftarlega Tilraunir Sameinuðu þjóðanna til að stilla til friðar á Kýpur enduðu með því að leiðtogar Grikkja og Tyrkja rifust heiftarlega fyrir opnum tjöldum. Meö fullt umboö Bandaríkja- menn sögðu að Biljana Plavsic, forseti Bosníuserba, hefði haft fullt umboð til að leysa upp þingið. Fordæma þeir tilraunir þar sem dómstólar eru kúgaðir til að úrskurða gegn henni. Reuter Stafrænt sjónvarp Stjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Sky í Bretlandi áforma að hefja staf- rænar útsendingar á sjónvarpsefni næsta vor. Sérstökum gervihnetti verður skotið á loft innan tíðar og þegar hann kemst í gagnið verða í boði um 200 sjónvarpsrásir. Auk hefð- bundinna sjónvarpsrása með fastri dagskrá verða í boði gagnvirkar sjón- varpsrásir þar sem notendur geta val- ið sér kvikmyndir á þeim tima sem þeir sjálfir óska. Er verið að semja við helstu kvikmyndaframleiðendur um þau mál. Notendurnir munu greiða fyrir þær myndir sem þeir velja með þessum hætti. Ennfremur verða í boði gagnvirkar rásir þar sem notendur geta keypt inn og stundað bankaviðskipti. Áskrifendur að Sky- sjónvarpsstöðinni eru nú um 5,9 milljónir í Bretlandi, eða um fjórð- ungur breskra heimila. Reuter Geimfararnir í Mir-geimstöðinni í hættuför: Fóru í kringum Mir og mynduðu Geimfaramir í Mir-geimstöðinni lögðu upp í skoðunarferð í Soyuz- björgunargeimfari í gær og tóku myndir af geimstöðinni. Svifu þeir í kringum geimstöðina og náðu myndum sem auðvelda eiga viðgerðarstarf sem hefst í næstu viku. Ferðalagið tók 45 mínútur og lentu geimfararnir björgunarfarinu hinum megin á Mir, skammt frá þeim hluta stöðvarinnar sem er einangraður frá henni vegna skemmda. Fólk í stjórnstöðinni nærri Moskvu varp öndinni léttar þegar Anatoly Solovyov, foringi áhafn- arinnar, tilkynnti að björgunar- farið hefði tengst geimstööinni. Hin nýja áhöfh um borð í Mir, sem kom þangað í vikunni, mun reyna að gera við miklar skemmdir sem urðu I árekstri í júní, þegar birgðaflaug rakst á stöðina. Er það alvarlegasta óhapp sem orðið hefur í 11 ára geimsögu stöðvarinnar. Geimfararnir sögðu í gær að engar skemmdir hefðu sést utan á stöðinni en eftir væri að skoða myndirnar nánar. Áhöfnin sem fór frá Mir á dögunum lenti heilu og höldnu á jörðu niðri á fimmtudag. Á sama tima tókst núverandi áhöfn að gera við súrefniskerfi geimstöðvarinnar. Reyndar slökktu geimfararnir á súrefniskerfinu meðan ferðin í gær stóð yfir en þeir voru ekki vissir um að komast inn í stöðina aftur. Næsta skref í viðgerðunum er að tengja þann hluta stöðvarinnar sem sér um að nýta sólarorkuna. Reuter Hann stóðst ekki freistinguna þessi ítali aö hella fullri fötu af ísköldu vatni yfir stúlkurnar sem voru orönar brennheitar í sólinni á Adríahafsströnd Ítalíu. Varö aö vonum mikill gauragangur andartaki eftir aö myndin var tekin. í gær var almennur frídagur á Ítalíu og flykktist fólk niður á strandirnar viö Adríahaf og Miðjaröarhaf. Voru borgirnar hálfmannlausar en flestir reyndu aö verja deginum viö hafiö í hitanum. sfmamynd Reuter 70 yfir tírætt flugu til London Sjötíu manns, allir 100 ára og eldri, flugu frá Antwerpen i Belgíu til London í gær. Ferðin var til að kynna átak undir slagorðinu ung í anda en yfir tírætt. Hópurinn fór frá flugvellinum í London í hesta- kerrum í fylgd lögreglu. Mikill fiöldi fiölmiðlafólks tók á móti hópnum. Belgíska flugfélagið Sabena gaf ferðimar en flogið var með hópinn í tveimur vélum. Er þetta stærsti hópur yfir tirætt sem flogið hefur með nokkurri flugvél. Með hverjum farþega voru tveir sjúkraliðar. Um borð voru einnig læknir og hjúkrunarfræðingur. Til að komast með varð hver öldunganna að hafa vottorð frá lækni um að hann hefði heilsu til að fljúga. Um 30 breskir öldungar tóku tilboði flugfélagsins, flugu til Belgíu á fimmtudag og slógust þar í hóp hollenskra, þýskra og belgískra jafnaldra sinna. Hugmyndin að ferðalagi öldunganna kviknaði þegar flugfreyja hjá Sabena bað um að fá að bjóða móður sinni með til London vegna 100 ára afmælis hennar. 101 árs bresk kona var í skýjunum eftir ferðalagið en hún fagnaöi 100 ára afmæli sínu með ferð í þyrlu. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis New York 8200 Oow Jones 8000 ; ' 7800 ! 7600 : 7400 7200 i 7 aaa —————— 7000 68004:--, '.' ;84«M8 Á M J J Hmm '\ Sykur oea 325 OAA f\ >jUU 275' 250 322 $/t A M J ' J London 5000 4800 /CAA 1 FT-SE100 HOw 4400 4200 5031,90 4 M J J Kaffi OCAA zDUU 2000 á. 1500' 4 AAA '«:=a> ÍUUU CAA t)UU msm íftgR $/t A M J J Frankfurt 1 sf ' 4500 0AX4° ^ 4000 3500* 3000 4333,13 A " M J J ! Bensín95okt. 1 230 m P 1 2« 129 Vt A M J J j Tokyo 01AIYI Nikkel fllgjfff clwli : 20500 200001 19500 18500 1882448 Bensín 98 okt.l 230 220 210* 200 190 180 /s ÍF II 233 */t A M J J Hong Kong Hang Seng 16000 15000 14000 13000 Æ 16460,47 Hráolía 25 20, 15 V */ tunna A 18,94 M J J Mikil hægri- sveifla í Noregi Framfara- Sflokkur Carls I. Hagens fengi 21,2-23 prósent atkvæðanna færu þing- kosningar ;3 fram í Noregi í * dag. Þar með I yrði Framfaraflokkurinn annar stærsti stjórnmálaflokkur Noregs, næstur á eftir Jafnaðar- mannaflokknum. Þetta er | niðurstaða tveggja nýrra 3 skoðanakannana um fylgi flokkanna í Noregi. Framfara- flokkurinn fékk einungis 6,3 prósent fylgi í síðustu ý kosningum en i kosningunum S 15. september lítur út fyrir byltingu í pólitísku landslagi 3 Norðmanna. Framfaraflokkur- inn, sem vill m.a. stöðva straum í innflyljenda til landsins, virðist j höfða til stórs hóps óánægðra j kjósenda. Grænfriðungar syntu í veg fyrir borpall j Grænfriðungar syntu í kring : um olíuborpall breska í olíufélagsins BP í gær, sjötta j daginn í röð. Vilja þeir koma í veg fyrir að borpallurinn nái á j áfangastað, borunarsvæði 220 km norður af Skotlandi. Hópur 3 grænfriðunga reyndi sömuleiðis 3 að stöðva flutning olíuborpalls | undan ströndum Alaska. Barátta Grænfriðunga við j olíufelögin er ein sú kostnaðar- samasta í sögu samtakanna. j Tilgangurinn er að stöðva '{■ gróðurhúsaáhrifin. Vilja græn- j friðungar banna alla olíu- 3 vinnslu úr jörðu og að olíu- | félögin einbeiti sér frekar að | öðrum orkugjöfum. Stríð gegn spillingu á Indlandi Indverjar minntust þess í gær | að hálf öld er liðin frá því landið fékk sjálfstæði. í miklum hátíða- höldum boðaði Inder Kumer Gujral forsætisráðherra stríð ; gegn hvers kyns spillingu. Hann 3 sagði spillingu vera að éta þjóðfélagið innan frá. Sagði j hann að landsmenn yrðu að j sameinast um að beijast gegn spillingu í stjórnmálum og daglegu lifi og spilltum j stjórnmálamönnum. Trúa loks að Elvis rokki ekki framar ; Tugþúsundir manna hafa lagt leið sína til Memphis í Tennesee-ríki Iundanfarna daga til að minnast þess að í dag eru nákvæmlega 20 ár síðan rokk- stjarnan Elvis Presley fannst j látin á heimili sínu, Graceland. Ejölmargir aðdáendur hafa trúað því að Elvis væri lifandi, hann færi huldu höfði eða | jafnvel að hann væri fangi um borð í geimskipi. Þessi trú I virðist þó vera að dvína. Veðmangarar í Englandi segjast ekki hafa tekið á móti veðmáli 1 um að Elvis væri á lífi síðan í i ágúst í fyrra. Þá veðjaði einn aðdáandi 10 þúsund krónum um að Elvis héldi brátt tónleika. Í Líkumar eru 2000 á móti einum 1 að Elvis birtist aftur en fyrir nokkrum árum voru þær 25 á móti einum. Veðmangarar segja aðdáendur loks vera komna á þá skoðun að Elvis rokki ekki lengur heldur rotni. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.