Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 &lk » Alan Alda, leikarinn góðkunni úr Spítalalífi (MASH), skaust til íslands: DV, Sudumesjum:_________________ „Ég elska þetta land og átti yndis- legan tíma hér þótt ég hafi stoppað stutt. Náttúran heillaði okkur. Við sáum mjög athyglisverða staði og meðal annars Geysi. Við vorum mjög heppin að koma í hitabylgj- una. Ég naut þess mjög að vera á Is- landi og skemmti mér vel. Mig lang- ar svo sannarlega að koma aftur hingað. Fólkið hér er afar indælt. Við hjónin eignuðumst íslenska vini sem ég er ánægður með,“ sagði bandaríski kvikmyndaleikarinn og leikstjórinn Alan Alda I samtali við helgarblaðið rétt áður en hann steig upp i flugvél Flugleiða síðdegis á þriðjudag. Yfirvegaður húmoristi Alan leit ekki á sig sem neina stórstjörnu á meðan á dvöl hans stóð. Hann var mjög yfirvegaður og með góðan húmor. Það voru margir hér á landi sem könnuðust við kappann og nokkrir þeirra tóku í hönd hans. Alan og eiginkona hans til margra ára, Arlene, komu til landsins á mánudagsmorgun. Hún er ljósmyndari að mennt og var að sjálfsögðu með myndavélina með- ferðis. Alan Alda á fjölmörg ár að baki sem leikari og leikstjóri. Hann er þekktastur fyrir MASH-þættina, Spítalalíf, sem sýndir voru fyrst í Sjónvarpinu og endursýndir nú alla virka daga á Sýn. Þar lék hann hinn léttgeggjaða skurðlækni, Hawkeye Pierce, auk þess að leikstýra mörg- um þáttanna sem framleiddir voru á árunum 1972-1983. Þeir eru með vinsælustu sjónvarpsþáttum allra tíma. Þá hefur Alan m.a. leikið í nokkrum kvikmyndum Woodys Allens. Alan er af ítölsku bergi brotinn, fæddur í New York árið 1936. Faðir hans, Robert Alda, var vel þekktur leikari. Hann lék m.a. George Gers- hwin í myndinni Rhapsody in Blue og kom fram í nokkrum MASH- þáttum. Alan smitaðist af leikara- bakteríunni og gat sér gott orð sem sviðsleikari á Broadway á sjötta og sjöunda áratugnum áður en hann gerðist kvikmyndaleikari. Alan var staddur hér á landi við gerð sjónvarpsþáttar. Hans hlutverk er að taka viðtöl og sjá um kynning- ar. Bandarískir kvikmyndatöku- menn hafa verið hér á landi í nokkurn tíma við að mynda efni í þáttinn sem er klukkutímalangur. Hér á landi voru tekin upp tvö verk- efni í þáttinn. Annars vegar um Surtsey og hins vegar um fyrirtæk- ið íslenska erfðagreiningu sem Kári Stefánsson prófessor stýrir. „Þetta er bandarískur þáttur að nafni Scientific American Frontiers sem byggist á vísindatímaritinu Sci- entific American. Við fjöllum ekki einungis um vísindaiðkanir í Bandaríkjunum. Á hverju ári heim- sækjum við land utan Bandaríkj- anna. I ár gerum við þátt frá þrem- ur löndum á Norðurlöndum; ís- landi, Sviþjóð og Danmörku. Á ís- landi fjöllum við um íslensk vísindi. Við tókum upp gott viðtal í þáttinn við Kára Stefánsson. Þá vekur mikla athygli hversu stóran skerf ísland hefur lagt til vísinda. Fólk lít- ur gjarnan á ísland sem smáríki. Hér er vissulega fámennt samanbor- ið við önnur lönd en stundaðar mjög athyglisverðar vísindaiðkan- ir,“ sagði Alan. Kom síðast fyrir 45 árum Hann hefur áður komið til ís- lands. Það var fyrir 45 árum. „Ég var á flugi yfir norðurpólinn, frá Kaupmannahöfn til Los Angeles þegar við millilentum hér til að taka eldsneyti. Ég fór út úr vélinni á meðan og þá var snarvitlaust veð- ur. Við héldum að við myndum ekki komast á loft aftur en það tókst loks- ins,“ sagði Alan og man greinilega vel eftir atvikinu. Hann gisti í gömlu flugstöðinni á Keflavíkur- flugvelli á meðan verið var að dæla eldsneyti á vélina. „Þú segir ekki! Það er frábært,“ sagði Alan þegar blaðamaður upp- lýsti hann um að MASH-þættirnir væru enn sýndir hér á landi. Þrjár helstu stjörnurnar í Spítalalífi, þau Alan Alda, Lore'da Swift, sem lék Hotlips Houluhan, og Wayne Rogers, eöa skurölæknirinn Trapper John. „Tíminn þegar þættirnir voru teknir upp var yndislegur. Ég hef farið á milli 90 og 100 landa þar sem þeir hafa verið sýndir og þeir eru enn sýndir sums staðar. Ég eldist aldrei, er alltaf á sama aldri og í þáttunum," sagði Alan, eldhress og hlæjandi að vanda. En gæti hann hugsað sér að búa til kvikmynd hér á landi? Já, hann segir erfitt að hugsa um ís- land án þess að fá þá hugdettu að kvikmynda. Hér sé frábært lands- lag og margir tökustaðir komi til greina. „Það yrði skemmtilegt að gera kvikmynd hér síðar,“ sagði Alan. I mynd með Travolta og uustin Hoffman En hvað er fram undan hjá honum fyrir utan gerð vísindaþáttarins? „Ég þarf að vera kominn til Bandaríkjanna eftir nokkrar vikur. Það þarf að taka upp eina aukatöku i kvikmynd sem ég leik í undir stjóm Casta Capras. Þeir vilja taka aðra töku á einu atriðanna. Mynd- in heitir Mad City og kemur út eftir nokkrar vikur. Einnig leika þeir John Travolta og Dustin Hoffman í myndinni," sagði hinn 61 árs gamli Alan Alda, greinilega ekki að setjast í helgan stein. Við svo búið steig hann upp í flugvélina og kvaddi ísland í bili. -ÆMK/bjb Alan Alda í Leifsstöö, skömmu áður en hann hélt af landi brott sl. þriðjudag. DV-mynd Ægir Már SHARP 72AS18 29" Super Black line 100Hz 2x25 Surround magnari • Zoom ? Scart tengi Islenskt textavarp Nicam Stereo Allar aSgerSir á skjá Sjálfvirk stilling á litaskerpu Myndimynd^^^ < > v \n Nú er lag að eignast ódýr og góð tæki meðan birgðir endast! 20-50% afsláttur Eitt vero SHARP 70CS06 28" Super Black line 2x20 Surround piagnari • Zoom 2 Scart tengi • Islenskt textavcrp Nicam Stereo Allar aðgerSir á skjá Sjálfvirk stilling á litaskerpu Cö PIOIMEER -20%-5Ö% H/jómteefc/ Verð áöur Útvarpsmagnari 2x30w........... 34.900.- Tónjafnari..................... 36.380,- Segulbandstæki................. 28.047,- Hátalarar CS 7030 180w..........33.222,- Hljómtækjastæða PRO-LOG........110.000,- HljómtækjastæSa J 25/25D 2x50w 65.000,- HljómtækjastæSa J1500/ 2x30w... 49.900,- Útvarpsmagnari 2x110w/4x80w... 49.900,- Geislaspilari 1 diskur......... 19.900,- Geislaspilari lOOdiska......... 88.778,- Verð nú 24.900, - 25.000,- 19.900, - 25.900, - 84.900, - 37.900, - 32.900, - 39.900, - 15.900, - 59.900, - •m v-v Blástursofn, keramik- A fWí helluborð og vifta, A.CU alltþetta á aðeins: SHARR23%: Hljómtaeki Verð áður Hljómtækjastæða 3D 2x25w... 34.900.- HljómtækjastæSa 6D 2x30w... 75.600,- Myndbandstæki 4 h.Nicam ste 59.900,- FerSatæki m/geislaspilara 17.900,- fsláttur Verð nú 24.900, - 39.900, - 44.900, - 13.900, - LUXOR Sjómrörp Verð áður Sjónvarp 28"Fast text 99.900,- Sjónvarp 29". 100Hz Fast text.. 154.900,- Verð nú 89.900,- 139.900,- Oll önnur smáraftæki á 15% afslætti TEFAL -20%-40% Heimilistæki Verð áður Verð nú Orkryrigiuofnoir Verð óður Orb. RJ58/17 Itr. digital. 19.895.- Örb. R4G17/24 Itr. grill...32.000,- Örb. 4P58/24 ltr.grifí,pizza. 36.737,- Verð nú 15.900. - 24.900-, 29.900, - Straujárn verð frá: . 4.790,- 3.492,- Pönnuköku partísett 6.282,- 3.769,- Djúpsteikingarpottur. 8.849,- 6.194,- Djúpsteikingarpottur 400 g... 5.990,- 3.596,- Sítrónupressa 3.199,- 2.239,- Safapressa 10.750,- 7.525,- Safapressa Juicer. 5.399,- 3.779,- Mininakkari 3.789,- 2.652,- Hakkavél 5.299.- 3.709,- Matvinnsluvél 5.994,- 3.900,- Kaffikönnur verS frá..1.900,- Lágmúla 8 • Sími 533 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.