Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Page 26
#iglingar LAUGARDAGUR 16. AGUST 1997 in hliðin segir Kiddi sem er prímusmótor ásamt Gulla, tvíburabróður sínum Hljómsveitin Vínyli leikur í nýju íslensku kvikmyndinni, Blossa, sem frumsýnd var í fyrrakvöld. Hana skipa bræðurnir Kiddi og Gulli, Arnar Guðjónsson, gítarleikari og bakraddasöngvari, Georg Hólm bassaleikari og Þórhallur Bergmann, á hljómborð. var 1 fyrrakvöld, fyrsta lagið sem hljómsveitin bjó til. Kiddi er prím- usmótor sveitarinnar ásamt tví- burabróður sínum, Gulla, Guðlaugi. Þeir eru bræður söngkonunnar Mó- eiðar Júníusdóttur. Gulli er trommuleikari Vínyls. Aðrir í hljómsveitinni eru Amar Guðjónsson, gítarleikari og bak- raddasöngvari, Georg Hólm bassa- leikari og Þórhallur Bergmann á hljómborð. Kappamir em á aldrinum 19-21 árs. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir verið í hljómsveitabransanum í nokkur ár. Fyrst í Tjalz Gizur og síðan Jetz. Arnar var einnig í Sor- oricide. Kiddi segir að þeir bræður hafi byrjað að spila á hljóðfæri 8 ára gamlir en ekki eignast slík tæki fyrr en sex ámm síðar. Þeir hafi byrjað i poppinu á undan stóm systur, henni Móu, sem til að byrja með hafi numið í klassíkinni. Núna fái þeir góð ráð frá henni og hún frá þeim. Að öðm leyti skipti hún sér ekki mikið af þeirra músík né þeir af hennar. Kiddi segist þó stundum hafa spilað með henni. Þess má geta að önnur systir þeirra, Ásgerður, er óperusöngkona. Sjálfsprottnir hæfileikar „Annars var engin músík í fjöl- skyldunni. Þetta eru eiginlega sjálf- sprottnir hæfileikar nema hvað afi lék á harmoníku á sveitaböllum í gamla daga. Mamma vissi varla muninn á Rolling Stones og Bítlun- um og pabbi safnaði einhverjum gömlum djassplötum en hlustaði lít- ið sem ekkert á þær,“ segir Kiddi með glotti á vör. Hann segir lagið Hún og þær ekki hafa verið samið sérstaklega fyrir Blossa. Þossi á útvarpsstöð- inni X-inu hafi filað lagið og kom- ið þeim í samband við Júlla Kemp, leikstjóra Blossa. Honum hafi einnig líkað lagið og fengið það í myndina. Núna hefur það mikið verið spilað á útvarpsstöðvunum. Um lagið að öðru leyti segir Kiddi að „hún“ sé væntanlega sú eina rétta og „þær“ séu þær sem ekki séu inni í myndinni! íslenskt, já takk Strákarnir í Vínyl eru á fleiri víg- stöðum en í Blossa. í gær lauk upp- tökum á tveimur lögum sem þeir eru með á væntanlegri safnplötu út- gáfunnar Sprota, dótturfyrirtækis Spors. Allir textar hjá þeim eru á ís- lensku, Kiddi segir enskuáráttuna vera út í hött á heimamarkaðnum. „Ef svo fer að við meikum það í útlöndum þá bara snörum við text- unum yfir á ensku. Það er seinni tíma vandamál," segir Kiddi og hef- ur engar áhyggjur af framtíðinni. Til hvers? -bjb Þórarinn Kristjánsson, „gulldrengur" Keflvíkinga: Ætla að ná mér í dömu Gulldrengurinn í Keflavík, Þórarinn Kristjánsson, hefur reynst liöi sínu mikilvægur. DV-mynd ÆMK „Við erum rétt að byrja," segir hljómsveitarinnar Vínyll, sem sveitin leikur lagið Hún og þær í Kiddi, Kristinn Júníusson, söngvari stofnuð var fyrr í sumar. Hljóm- kvikmyndinni Blossa sem frumsýnd Tvíburarnir Kiddi og Gulli Júníussynir, bræöur Móeiöar, eru primusmótorar í Vínyl. DV-mynd E.ÓI. „Það eru allir að skjóta á mig sem ég hitti. Mönnum finnst þetta ótrúlegt," sagði Þórarinn Krist- jánsson, knattspyrnumaður úr Keflavík, sem tryggði liði sínu sæti í bikarúrslitaleiknum gegn Eyjamönnum. Hann skoraði sigur- markið gegn Leiftri með sinni fyrstu snertingu þegar aðeins þrjár mínútur voru eftir af fram- lengingu. Gárungarnir eru famir að kalla Þórarin „gulldrenginn" en eins og frægt er orðið bjargaði hann Keflvíkingum frá falli í 2. deild í fyrra. Þá skoraði hann sig- urmarkið gegn Eyjamönnum í síð- ustu umferðinni með sinni fyrstu snertingu eftir að hafa komið inn á sem varamaöur. Þórarinn er Fullt nafn: Þórarinn Kristjáns- son. Fæðingardagur og ár: 30. des- ember 1980. Kærasta: Engin. Böm: Engin. Bifreið: Nissan Sunny 1992. Starf: Nemi á íþróttabraut FS. Er starfsmaður á íþróttavellinum í Keflavík í sumar. Laun: Þokkaleg. þegar farinn að vekja athygli stærstu knattspymufélaga í heimi. Manchester Utd. vill fá hann til sín til reynslu. Þá fer hann líklega eftir timabilið til Svíþjóðar þar sem Malmo vill fá piltinn. Einnig era fleiri lið á eftir honum, eitt í Þýskalandi og annað í Svíþjóð. „Draumurinn er að komast í at- vinnumennskuna og þangað stefni ég. Hins vegar er mjög gott að spila og æfa í Keflavík. Þar er frá- bær liðsandi og hópurinn mjög skemmtilegur," sagði Þórarinn sem byrjaði ungur að æfa. „Ég var 4 ára og hef æft stanslaust síðan. Ég man eftir fyrstu æfingunni en þá fór ég heim vælandi.“ -ÆMK Hefur þú unnið i happdrætti eða lottói? Aldrei svo ég muni eft- ir. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera? Fyrir utan knatt- spyrnu finnst mér ágætt að hanga með vinum mínum. Einnig að fara snemma að sofa. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Vakna á morgnana. Uppáhaldsmatur: Hamborgari. Uppáhaldsdrykkur: Aquarius. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur i dag? Ian Wright hjá Arsenal. Uppáhaldstímarit: ÖIl sem fjalla um íþróttir. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð? Bróðurdóttir mín sem er flögurra mánaða. Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjóminni? Hlynntur. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Maradona. Uppáhaldsleikari: Jim Car- rey. Uppáhaldsleikkona: Sandra Bullock. Uppáhaldssöngvari: Bono í U2. Uppáhaldsstjóm- málamaður: Davíð Oddsson. Uppáhaldsteikni- myndapersóna: Mikki mús. Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir. Uppáhaldsmatsölustað- ur/veitingahús: Olsen Olsen í Keflavík. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Pass. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? FM-957. Uppáhaldsútvarpsmaður: Ragnar Már Ragnarsson á Brqsinu í Keflavík. Hverja sjónvarps- stöðina horfir þú mest á? Stöð 2. Uppáhaldssjón- varpsmaður: Arnar Björns- son á Stöð 2. Uppá- halds- skemmtistaður: íþróttavallarhús- ið við Sunnubraut. Uppáhaldsfélag í íþrótt- um? Keflavík og Arsenal. Stefiiir þú að ein- hverju sérstöku í framtíðinni? At- vinnumennsku. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ná mér i dömu. Hljómsveitin Vínyll með vinsælt lag í kvikmyndinni Blossa: Erum rátt að byrja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.