Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST
- heilsusamlegt frí í friðsælu umhverfi
Dagana 2. til 9. október verður í
fyrsta skipti boðið upp á gönguferð
um skosku hálöndin undir íslenskri
leiðsögn. Gengið verður um hin
undurfógru héruð, Loch Lomond og
Trossachs. Þar er fjölbreytni og feg-
urð ómótstæðileg og saga í hverju
spori. Enn fremur verður höfuðborg
Skotlands, Edinborg, heimsótt.
Edinborg stendur á sjö fallegum
hæðum og þar er mikið af tröppum
sem gaman er að ganga. Ferðin er
farin á vegum Úrvals-Útsýnar og
fararstjórar eru þau Árný Helga-
dóttir og Kjartan Trausti Sigurðs-
son.
Ámý er hjúkrunarfræðingur og
íþróttaþjálfi og hefur kennt heilsu-
rækt um árabil, bæði hér heima og
erlendis. Hún er nú leiðbeinandi og
upphafsmaður svokallaðrar kraft-
göngu sem hefur átt vaxandi vin-
sældum að fagna. Kjartan Trausti
er gamalreyndur fararstjóri og hef-
ur mikið verið bæði í Skotlandi og á
Mallorka. Ámý mun sjá um upphit-
un og teygjur og Kjartan Trausti
segja sögurnar og stjórna kvöldvök-
unum.
„Vaxandi áhugi á bættri heilsu og
betri líðan varð kveikjan að þeirri
hugmynd að skemmtilegt væri að
slá saman fríi og heilsurækt. Fólk
gæti gengið víðar en á landi elds og
íss. Víða væri fallegt, ekki síst á
heimaslóðum, en það gæti verið
gaman að sjá sig eitthvað um er-
lendis og fara á öðmvísi slóðir en
dagsdaglega," segir Kjartan Trausti
Sigurðsson fararstjóri.
Kjartan Trausti hefur verið farar-
stjóri viða erlendis í mörg ár, meðal
annars í verslunarferðum í Skot-
landi. Hann þekkir því töluvert til á
þessum slóðum. „Eg var alltaf að
tala um að mig langaði að ganga
með hóp um skosku hálöndin og sló
nú loksins til. Við ætlum að ganga
um fallegu héruðin í nágrenni Loch
Lomond. Þar eru góðar og vel
merktar gönguleiðir og saga í
hverju spori. Nefna má Bravehart
og fleira því til sanninda. Við mun-
um ganga þarna í fótspor feðranna
og heyra sögur og þætti um það sem
þarna hefur gengið á.“
Á kvöldin verður boðið upp á
samveru af ýmsu tagi ef fólk vill.
„Þá ætlum við bara að láta okkur
líða vel og hafa það huggulegt eftir
að hafa svitnað og notið friðsældar
utan við ys og þys. Kvöldin verða
einkum með kvöldvökusniði að
gömlum og góðum skáta-sið.“
Siðasta deginum verður eytt í
Edinborg. Þar verður farið í skoð-
Ferðatilhögun og dagskrá
’S
- Áríöandi er aö allir þátttakendur séu í vel tilgengnum gönguskóm og hafi gengiö á fjöll áöur -
2. október - fimmtudagur
Brottför frá Keflavík klukkan 7.20 og lending I Glasgow klukkan 13.40 (athugið að fiog-
ið er um Amsterdam). Tekið á móti hópnum á flugvelli og ekiö sem leiö liggur til Stirl-
ing þar sem gist verður næstu fjórar nætur. Kvöldverður á hóteli.
3. október - föstudagur
Eftir morgunverð verður kynningarfundur meö fararstjórum. Léttar morgunteygjur tekn-
ar og svo lagt af stað í fyrstu gönguna sem verður um fjórar klukkustundir. Teygjur í
lok göngu. Ekið aftur á hótel og kvöldverður snæddur þar.
4. október - laugardagur
Morgunverður og upphitun. Gengið í 6-8 klukkustundir. í lok göngu verða gerðar teygju-
æfingar og ekið til baka á hótel þar sem kvöldverður verður snæddur.
5. október - sunnudagur
Morgunverður og upphitun. 6-8 klukkustunda ganga og teygjur í lok hennar. Kvöldverð-
ur á hóteli.
6. október - mánudagur
Eftir morgunverð verða gerðar teygjuæfingar og skráð út af hóteli. Lagt af stað áleið-
is til Edinborgar en á leiðinni stoppað og farið í stutta gönguferð (2-3 klst.) auk þess
sem Glenturret-visklverksmiðjan verður heimsótt. Komið á Hótel Apex í Edinborg um
klukkan 18 og kvöldið frjálst.
7. október — þriðjudagur
Morgunveröur á hóteli. Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð um Edinborg, bæði
fótgangandi og í rútu. Kastalinn og fleiri merkar byggingar skoðaðar. Eftir hádegi er til-
valið að nota tímann í borginni, Kvöldið frjálst.
DV-Unnur
unarferð og
eftir hádegi
gefst fólki kost-
ur á að fara í
búðir og skoða
sig um á eigin
vegum. „Edin-
borg stendur á
fallegum sjö
hæðum og þar
er mikið af
tröppum, sem
er ótrúlega
gaman að
ganga."
Loftslagið í
skosku hálönd-
unum hentar
vel til göngu á
þessum árs-
tíma. Ferðin
ætti að vera
við flestra
hæfi. Fólk þarf
ekki að vera
mjög vant
göngum. Eina
skilyrðið er að
það eigi til-
gengna göngu-
skó. „Skosku
hálöndin eru
ekkert hálendi
í sjálfu sér.
Nafnið er frek-
ar sögulegt.
Ferðin er fyrir
alla sem hafa
áhuga á því að
bæta ekki á sig
í fríinu og eru
tilbúnir að
reyna eitthvað
á sig um leið
og þeir hafa
það huggulegt.
Við vonumst
til að slíkar
ferðir verði ár-
viss viðburð-
ur.“
-VÁ
Víöa er fagurt um aö litast í skosku hálöndunum.
Fararstjórarnir Arný Helgadóttir og Kjartan Trausti Sig
urösson á göngu. Myndin er tekin á íslandi.
Sumarhús á Spáni:
Allt árið um
Sumarhúsin á Spáni eru orðin
vinsæll dvalarstaður íslendinga og
sífellt fleiri sækja þangað til dvalar
í lengri eða skemmri tíma í sínum
eigin húsum eða taka hús á leigu.
Svæðin eru flest sunnan Alicante-
borgar á suðurströnd Spánar og er
beint flug þangað á sumrin. Yfir
vetrartímann hafa eigendur og aðr-
ir dvalargestir farið með flugi til
London eða Amsterdam og þaðan til
Alicante. Hverjum þykir ekki eftir-
sóknarvert að komast frá vetrar-
hörkum og hvassviðri í heitara loft-
slag allan ársins hring. Það stendur
því varla undir nafni að kalla þetta
sumarhúsasvæði þar sem dvöl
margra spannar allt árið um kring.
Félag húseigenda á Spáni er fé-
lagsskapur sem stofnaður var árið
1989 af nokkrum húseigendum þar.
Félagsmönnum hefur fiölgað jafnt
og þétt á undanfórnum árum og sí-
fellt eru fleiri að bætast í hópinn.
Tveir dropar
Eitt af þessum svæðum er Las
Mimosas sem er rétt utan við bæinn
Torrevieja sem er skemmtilegur
strandbær. Á síðastliðnu vori var
opnuð þjónustuskrifstofa sem ber
nafnið 2 Gotas eða tveir dropar á ís-
lensku. Þótt nafnið sé spænskt eru
það íslendingar ásamt einum Spán-
verja sem reka skrifstofuna. Þau
eru Ágústa Pálsdóttir, Inga Hall-
grímsdóttir og Paco Sanz. Ágústa er
af mörgum kunn þar sem hún hefur
starfað fyrir félag húseigenda á
Spáni frá 1993 allan ársins hring og
verið íslenskum fasteignaeigendum
mikil hjálparhella.
Ágústa hefur samhliða starfi sinu
fyrir félag húseigenda á Spáni rekið
eigið fyrirtæki í nokkur ár og hefur
sú starfsemi aukist verulega. Allur
rekstur fyrirtækisins og starfsemi
þess var á heimili hennar en þegar
umfangið jókst varð húsnæðið of lít-
ið og starfsemin of mikil fyrir hana.
Það var þá sem Ágústa, Inga og
Paco settu á stofn fyrirtæki í sam-
einingu.
Upplýsinga- og
þjónustumiðstöð
Félag húseigenda á Spáni nýtur
góðs af þessari nýju starfsemi þar
sem Ágústa starfar enn fyrir félagið
og hefur ánægju af. Með opnun
skrifstofunnar geta þær Ágústa og
Inga veitt enn betri og öflugri þjón-
ustu en verið hefur á svæðinu hing-
kring
að til.
2 Gotas býður upp á margvíslega
þjónustu, s.s. útleigu á húsum, sem
íslendingar eru farnir að notfæra
sér í auknum mæli, ræstingar í hús-
um, eftirlit, ráðgjöf og útréttingar
vegna banka, vatns- og rafmagns-
mála eða nánast allt sem viðkemur
þvi að eiga fasteign eða leigja fast-
eign á Spáni. Ágústa og Inga eru vel
kunnugar svæðinu og geta veitt
ýmsar gagnlegar upplýsingar, t.d.
um veitingahús, skemmtanalíf og
þess háttar. Einnig er boðið upp á
ljósritunar- og símbréfaþjónustu.
Þeir sem áhuga hafa á að fylgjast
með gangi mála heima á íslandi
geta sest niður í rólegheitum og lit-
ið í blöðin yfir kaffibolla.
Þörf þjónusta
Þær stöllur hafa tvímælalaust
sýnt það og sannað að brýn þörf er
á þjónustu sem þessari. Sérstaklega
þegar haft er í huga að töluverð
aukning hefur orðið á að eldra fólk
komi og dvelji á staðnum yfir vetr-
artímann. Þjónusta af þessu tagi
veitir þvi mikið öryggi. Markmiðið
er að veita einnig öðrum en íslend-
ingum þjónustu og nú þegar hefur
leitað til þeirra fólk af öðru þjóð-
Á fallegum dögum í Las Mimosas er ákaflega notalegt aö vera þar. Svæöiö
hefur á síöustu árum byggst hratt upp og þar hafa risið hin myndarlegustu
hús.
erni. Þjónustugjöld vegna þeirrar
þjónustu er fellur utan samnings
Ágústu við félag húseigenda á Spáni
eru lág, eins og flest annað á þess-
um slóðum. Ágústa og Inga eru
bjartsýnar á framhaldið og segjast
leggja áherslu á að gera sitt besta,
enda vinna þær flest verk sín sjálf-
ar, sama hvað það heitir. Þær hafa
komið sér upp góðum samböndum
við iðnaðarmenn og önnur fyrir-
tæki á staðnum. Það flýtir fyrir
verkum og auðveldar gang mála á
margan hátt.
Þeir sem hafa áhuga á að heim-
sækja Torrevieja og Las Mimosas
eða hafa áhuga á aða kaupa fasteign
á svæðinu geta snúið sér til 2 Gotas
í síma 346-5328711 á milli klukkan 10
og 13 og 17-20 alla virka daga.
-JKS
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjónusta jyrir
brúðkaupið
(y?) SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 *Sími 568 9066
- Þar fœrðu gjöfina -