Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Page 51
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997
59
Mars Attacks!
Marsbúarnir gera árás!
Leikstjórinn Tim Burton er sá
leikstjóri sem einna best hefur náð
að sameina frumlega kvikmynda-
gerð og vinsældir meðal áhorf-
enda. Fyrsta mynd hans var Pee-
wee’s Big Adventure og í kjölfarið
fylgdi Beetlejuice. Þriðja mynd
hans var síðan stórmyndin Bat-
man, með Jack Nicholson, Michael
Keaton og Kim Basinger í aðalhlut-
verkum, þar sem hann endurvakti
og endurskapaði súperhetjuna Leð-
urblökumanninn. Myndin halaði
inn meira fé en nokkur mynd hafði
áður gert hjá Warner Bros. og sam-
tök kvikmyndahúsaeigenda völdu
Tim Burton leikstjóra ársins.
Næsta verkefni hans var Edward
Scissorhands og síðan framhalds-
myndin Batman Returns. Eftir
teiknimyndafantasíuna Tim
Burton’s The Nightmare before
Christmas gerði hann Ed Wood, óð
til uppáhalds B-mynda-leikstjóra
síns.
Risastór leikhópur
Mars Attacks! kemiu- eiginlega í
beinu framhaldi af Ed Wood. Tim
Burton vildi gera mynd í stíl við
vísindaskáldskapinn sem Ed Wood
og fleiri voru á kafi í á sjötta ára-
tugnum. Hugmyndina að Mars
Attacks! fékk hann frá samnefnd-
um safnkortum sem Topps-fyrir-
tækið gaf út snemma á sjöunda ára-
tugnum og sýndu innrás lítilla
grænna Marsbúa með stór heilabú.
Tim Burton vildi hafa margar mis-
munandi persónur á mismunandi
stöðum og láta þær kljást við sín
persónulegu vandamál á meðan
umheimurinn væri að kljást við
sitt sameiginlega vandamál - inn-
rásina frá Mars. Myndin flakkar
því milli Washington D.C., New
York, Las Vegas, Kansas og
Arizona og leikhópurinn er engin
smásmiði. í aðalhlutverkum eru
hár. Lisa Marie leikur Marsbúa-
launmorðingja sem smeygir sér í
gegnum öryggisvörslu Hvíta húss-
ins með því að tæla fjölmiðlafull-
trúa forsetans.
Stórleikarinn Jack Nicholson.
Gamli stíllinn
endurvakinn
Sérkennilegt útlit og stíll hafa
einkennt myndir Tims Burtons frá
upphafi og Mars Attacks! er engin
undantekning. Fyrirmyndirnar
voru sóttar í safnkortin fyrrnefndu
og Sci-fi myndir sjötta áratugarins
og þess sjöunda. Burton og leik-
myndahönnuðurinn Wynn Thomas
rannsökuðu klassískar B-myndir
eins og The Day the Earth Stood
Still, This Island Earth, Forbidden
Planet og margar fleiri. Mars
Attacks! gerist svona hér um bil í
nútímanum, en hefur þó yfhbragð
30-40 ára gamalla B-mynda.
Tæknibrellur þessara B-mynda
voru eðlilega afar takmarkaðar og
leikmynd með einfaldasta máta, en
Tim Burton nýtir sér fullkomnustu
tækni nútímans til að koma anda
þessara mynda til skila. Fyrir utan
tölvugi-afikina þurfti m.a. að
sprengja upp hinar og þessar sögu-
frægar byggingar (í smækkuðu
formi módela að sjálfsögðu), sýna
fljúgandi diska svífandi um loftin
blá og búa til vélmenni og fleira.
Niðurstaðan er eins konar bastarð-
ur hins gamla og hins nýja, hins
ófullkomna og hins fullkomna. -PJ
Jack Nicholson, Glenn Close,
Natalie Portman, Rod Steiger, Paul
Winfield, Martin Short, Pierce
Brosnan, Jack Nicholson (já, aftur
- hann er í tveimur hlutverkum),
Annette Bening, Danny DeVito,
Jim Brown, Tom Jones, Sarah
Jessica Parker, Michael J. Fox,
Lukas Haas, Sylvia Sidney, Pam
Grier og Lisa Marie.
Litlir grænir
kallar frá Mars
Enn fremur eru heilir herskarar
af trítilóðum, tölvuteiknuðum vand-
ræðagemsum frá Mars í stóru hlut-
verki. Persónuleiki Marsbúanna
var hannaður með illgjama, ofvirka
krakka í huga og allir (utan einn)
tölvuteiknaðir af Industrial Light &
Magic (ILM), sem sá um tölvuteikn-
un í myndum eins og Twister, Ju-
rassic Park, Forrest Gump og Term-
inator 2: Judgement Day. Eini Mars-
búinn í myndinni sem ekki er tölvu-
Ófrýnileg geimvera.
teiknaður er byggður á korti númer
76, sem sýndi Marsbúa með grænan,
bólginn heila og blóðhlaupin augu
lyfta af höfði sér dulargervi sínu
sem þrýstin ljóska með upphleypt
UPPÁHALDSMYNDBANDIÐ MITT
Jón Gnarr
- skemmtikraftur
„Ég á nú erfitt með að finna
uppa-
Þó
einhverja
haldsmynd.
langar mig
að
mæla sér-
staklega
með
kvik-
mynd-
inni
Billy
Madison.
Þetta er
mynd frá
1995 sem fjallar um ofdekraðan
ríkan krakka, Billy Madison,
sem þarf að fara aftur í barna-
skóla til þess að geta tekið við
hótelkeðju fóður síns. Hann
byrjar í 6 sex ára bekk og
heldur trylltar hátíðir í
hvert skipti sem hann lýk- /
ur bekk. Allt endar þetta
síðan mjög vel þar sem
góðu mennimir vinna en
þeir vondu tapa - rétt eins
og í öllum góðum myndum.
Adam Sandler fer með aðal-
hlutverk myndarinnar, en
þar má einnig sjá Chris
Farley í aðalhlutverki og
fleiri leikara úr Saturday
Night Live.
„Annars hef ég óstjóm-
lega gaman af gamanmyndum og
held sérstaklega upp á myndir
Chevy Chase, eins og t.d. Fletch
og National
Lampoon’s-
myndimar.
Þá hef ég
smám sam-
an verið
að upp-
götva áður-
nefhdan Ad-
am Sandler
og af öðrum
myndum
með honum
get ég nefnt
Happy Gil-
more. Loks
vil ég nefna
Naked Gun-
myndirnar
en þær eru
hrein snilld-
arverk.“
r
Ast og stríð
Ást og stríð er byggð á minning-
um rithöfundarins Ernests Hem-
ingways.
Hann var
aðeins
átján ára
gamall þeg-
ar hann
gerðist
sjálfboða-
liði Rauða
krossins á
Ítalíu í
fyrri
heimsstyrj-
öldinni. í
fljótræði
sínu bauð
hann sig Sandra Bullock og
fram til Chris O’Donnell.
starfa í fremstu víglínu. Þai’ særðist
hann alvarlega á fæti og var fluttur
á sjúkrahús. Þar kynntist hann
hjúkrunarkonunni Agnesi von
Kurowsky sem var átta árum eldri
en hann. Þau hófu eldheitt ástar-
samband sem þó varð að fara leynt
vegna reglna sjúkrahússins. En þó
ást þeirra væri heit og fólskvalaus
var þeim báðum ljóst að hér var
ekki um framtíðarsamband að
ræða. Þegar dró að lokum styrjald-
arinnar var komið að Agnesi að
velja. Átti hún að gefast þessum
unga fátæka hugsjónamanni og lifa
þar með í óöryggi og fátækt eða átti
hún að giftast efnuðum og virtum
skurðlækni sem hún hafði áður átt
í sambandi við?
Togstreita
Ekkjan Kathleen Quigley (Helen
Mirren) er kennari og mikill friðar-
sinni.
Kaflaskipti
verða í lífi
hennar þeg-
ar sonur
hennar,
sem er öfga-
fullur
stuðnings-
maður
írska lýð-
veldishers-
ins, er
handtekinn
eftir skot-
bardaga við
enska her- Helen Mirren og Aiden
menn. Gillen.
Helen er þar með hrint inn í hring-
iðu hinna pólitísku átaka Norður-
írlands. Sonur hennar hefur hung-
urverkfall ásamt öðrum fanga í
fangelsinu til þess að krefjast þess
að honum verði sleppt. Stjómvöld
hafa ekki í hyggju að sleppa föngun-
um og þeir eru tilbúnir til að deyja
fyrir málstaðinn. Fyrir Helen snýst
málið ekki um stjórnmál heldur um
líf sonar síns. En getur hún leyft til-
finningum sínum að ráða þegar son-
ur hennar hefur þegar gert upp hug
sinn?
í augum hans og stjórnvalda eru
tilfinningar hennar málinu óvið-
komandi og ekki næg ástæða til að
binda enda á hungurverkfallið.
Grace of My Heart
Þessi mynd er á óbeinan hátt
byggð á ævi lagahöfundarins Carol
King.
Myndin
spannar
fimmtán ár
í lífi laga-
höfundar
að nafni
Denise We-
verly. Hún
kom fram í
lok sjötta
áratugarins
en þurfti
fljótt að
kyngja því
að enginn
plötuútgef-
andi treysti
sér til að
gefa út
plötu með henni. Hún neyddist til
að láta aðra flytjendur flyta lög sín
á meðan hún beið sjálf eftir því að
verða fræg söngkona.
Mörg laga hennar slógu I gegn og
vöktu athygli fyrir bersögla texta
sem byggðir voru á hennar eigin
reynslu. Við fylgjumst meö baráttu
hennar fyrir frægð og frama og
kynnum hennar af mönnum, kon-
um og málefnum.
Illeama Douglas, Matt
Dillon, Eric Stoltz og
John Turturro.