Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1997, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1997
9
DV
Utlönd
Peter Jon Angelsen veröur sjávarútvegsráöherra Noregs:
Refur frá Lofoten
- séra Kjell Magne Bondevik kynnir konungi stjórn sína í dag
DV, Ósló:
„Jú, það hefur verið talað við
mig en konungi verður ekki gerð
grein fyrir ráðherralistanum fyrr
en síðar í dag. Ég get ekki byrjað á
yfirlýsingum fyrr en ég hef form-
lega fengið embættið," sagði Peter
Jon Angelsen, verðandi sjávarút-
vegsráðherra Noregs, í samtali við
DV í morgun. Eftir annasama nótt
hjá séra Kjell Magne Bondevik,
næsta forsætisráðherra Noregs,
hefur hann nú fundið ráðherra í
alla stólana við borð konungs.
Sendiherrann Knut Vollebæk
verður til dæmis utanríkisráð-
herra. Angelsen sjávarútvegsráð-
herra er gamali refur frá Vestur-
vogey í Lofoten. Nafn hans má
auðveldlega þýða sem Öngulsson á
íslensku. Hann er fæddur árið 1935
og er því orðinn 62 ára gamall.
Hann hóf sjómennsku á báti föður
síns 17 ára gamall og tók þar við
skipsstjórn rúmlega tvítugur. Eig-
in bát eignaðist hann svo 1966, 31
árs gamall.
Þetta er dæmigerð saga sjó-
manns í Lofoten. Það sem er
óvenjulegt er að Öngulsson leidd-
ist út í pólitík, fyrst hreppapólitík,
þá sjómannapólitík en frá árinu
1981 og þar til í haust hefur hann
verið þingmaður. Hann fylgir Mið-
flokknum að málum en tapaði
þingsæti sínu við afhroð flokksins
í haust. Miðflokksmenn hafa jafn-
an viljað ganga lengst í aðgerðum
gegn íslendingum og það hefur
verið draumur þeirra að loka
Smugunni með útfærslu norsku
landhelginnar. GK
Nóbelsverðlaun
til Evrópu og
Bandaríkjanna
Nóbelsverðlaunin í eðlis- og
efnafræði skiptust milli banda-
rískra og evrópskra vísinda-
manna í gær.
Bandaríkjamennirnir Steven
Chu og William Phillips og
Frakkinn Claude Cohen-Tannou-
dji fengu eðlisfræðiverðlaunin
fyrir að þróa aðferð við að kæla
atóm með leysigeisla.
Efnafræðiverðlaunin komu í
hlut Danans Jens Skous, Bretans
Johns Walkers og Bandaríkja-
mannsins Pauls Boyers fyrir
rannsóknir þeirra á ensímum
sem stjóma líkama okkar og
heilsu. Reuter
Ungur piltur bregður sér á leik í
rústum húsa sem hrundu til grunna
í jarðskjálfta f Chile í fyrradag.
Skjálftinn mældist 6,8 stig á Richter
og varð átta manns að bana. Hund-
ruð heimila eyðilögðust.
Stækkun
Nato getur
orðið kostn-
aðarlaus
Margt bendir til að aðildarriki
Atlantshafsbandalagsins, Nato,
þmfi ekki að greiða neitt vegna
stækkunar samtakanna í austur.
Óopinberar kannanir sýna að kostn-
aðurinn við að taka ný aðildarríki
inn í bandalagið verði miklu lægri
en ýmsar bandarískar kannanir
hafa sýnt. Talið er að peningar fyr-
ir kostnaðinum séu til, að því er
norska blaöið Aftenposten greinir
frá.
Javier Solana, framkvæmdastjóri
Nato, sagöi nýlega að kostnaðurinn
yrði viðráðanlegur. Hann gaf sam-
tímis í skyn að óþarfi væri að hafa
áhyggjur af útreikningum Banda-
ríkjamanna.
Neyðarfundur
um barnaníð-
ing í Belgíu
Belgíska þingnefndin, sem rann-
sakar hvort bamaníðingurinn Marc
Dutroux hafi notið vemdar hátt-
settra embættismanna, var kölluð
til neyðarfundar á þriðjudagskvöld,
að því er sænska blaðið Dagens Ny-
heter greinir frá.
Belgískt vikurit hafði þá greint
frá því að Dutroux heföi veriö hand-
tekinn vegna bílþjófnaðar nokkmm
dögum áður en litlu stúlkumar
Julie og Melissa hurfu sumarið
1995. Þrátt fyrir að Dutroux væri á
sakaskrá vegna siðferðisbrota var
hann látinn laus án frekari rann-
sóknar. Hálft ár leið þar til Dutroux
var yfirheyrður vegna hvarfs
stúlknanna. Litlu stúlkumar fund-
ust myrtar árið eftir á heimili
Dutroux. Rannsókninni á því hvers
vegna lögreglan sýndi honum svo
litinn áhuga verður haldið áfram.
CRASH
cool, pigoPOBS fflm eHpfofing a link ttetwieeii..
eftir Oavid Cronenberg
ER KOMIN
Á MYNDBANDALEIGUR
James Spader, Holly
Hueter, Elias Koteas,
Deborah Kara Ueger
og Rosanna Arquette
í einni umtðluðustu
ársins.
"Ómissandi! Þetta er mynd sem þú annað
hvort forðast... eða sérð tvisvar11
***** - EMPIRE
MYNDFORM
MYNDBOND