Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997
Fréttir
Polyfosfat til bjargar einstökum fiskvinnslufyrirtækjum:
Vatn selt sem fiskur
Nokkur fyrirtæki í flskvinnslu
nota, samkvæmt heimildum DV, þá
aðferð að baða flskflök upp úr efna-
flokknum polyfosfat til að fiskurinn
taki í sig vökva og sé þannig þyngri
en raunveruleg efhi standa til. Að
auki fær fiskurinn fallegri áferð og
verður hvítur.
Aukin nýting
Aðferðin byggist á því að flskur-
inn er baðaður upp úr efnablönd-
unni og þegar um frystingu er að
ræða er hráefnið keyrt á fúllu í gegn
áður en vatnið byrjar aö leka úr
fiskholdinu. Með þessari aðferð ná
fyrirtækin upp aukinni nýtingu um
aUt að 5 prósentum. Helsta vanda-
málið er að hafa ekki blönduna of
sterka sem þýðir að fiskurinn verð-
ur svampholda og þannig ólystugur.
Við rétta efhablöndu verður fiskur-
inn hvítur og fallegur í stað þess að
vera ókræsilegur. Til dæmis um
verömætaaukningu má nefna að
fyrirtæki sem selur slíkar afurðir
fyrir 500 milljónir á ári hagnast um
25 milijónir króna með því að nota
polyfosfataðferðina án þess þó að
gefa slíkt upp.
Feimnismál
Þessi vinnsluaðferð er þeim sem
hana stunda mikiö feimnismál og
menn eru ófúsir að tjá sig um hana
opinberlega. Polyfosfat er ekki leyft
við flskvinnslu hérlendis en það er
raunar ekki bannað heldur. Engin
leið er, samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknastofnun fiskiðnarins, til
að komast að því með efnagreiningu
hvort efnið sé í fiski þar sem fiskur-
inn ber sambærileg efni í sér þegar
hann er veiddur.
Aöferöin bönnuö
Rétt er að taka fram að það er að-
eins hluti fyrirtækja í fiskvinnslu
sem notar þessa aðferð til að ná upp
þyngd á fiski. Þekkt hefur verið í
rækjuvinnslu um árabil að nota efn-
ið til að minnka vökvatap og fá
betri áferð. Þannig hafa sjómenn
sem veiða ferska rækju dýft rækj-
unni í slíka efhablöndu. Flest flsk-
vinnslufyrirtæki banna aðferðina
alfarið. Mikil freisting er þó til að
auka verömæti afuröa en eins og
þekkt er hefur bolfiskvinnsla verið
rekin með botnlausu tapi um árabil.
Sigurður Viggósson, framkvæmda-
stjóri fiskvinnslunnar Odda hf. á
Patreksfirði, segir fyrirtæki sitt
ekki nota þessa aöferð en hafa haft
til skoðunar að grípa til þeirra ráða.
„Við höfum skoðað þetta mál en
aldrei notað efnið. Viö vitum að
þetta eykur nýtinguna en markaðs-
sjónarmið ráða því að við höfum
ekki farið út í þetta. Við höfum af
samkeppnisástæðum þurft að gera
upp við okkur hvort við gerum
þetta en það hefúr alltaf orðið ofan
á að gera það ekki,“ segir Sigurður.
Brunnar hf.:
Stórsamn-
ingur um
ísvélar
Fyrirtækið Brunnar í Hafn-
artlrði hefur gert samning við
ameríska eigendur ísraelskrar
verksmiðju um aö hefja hérlend-
is framleiöslu á ísvélum sem
notaðar veröi í sjávarútvegi og í
matvöruframleiðslu. Um er að
ræða stóran samning sem hugs-
anlega veitir fjölda manns at-
vinnu. Samningurinn var undir-
ritaöur um síðustu helgi. For-
svarsmenn Brunna vildu ekki
tjá sig um málið að sinni. -rt
- feimnismál hjá þeim sem nota efnablönduna
afúrðum sem þeir selja
undir eigin merkjum. Að-
alsteinn Gottskálksson,
framkvæmdastjóri fram-
leiðslu og þjónustusviðs
íslenskra sjávarafurða,
segir efnið hafa verið
bannað alla tíð undir
vörumerki ÍS, Iceland
Seafood.
„Þetta hefur alltaf verið
algjört bannorð í flsk-
vinnslu innnan okkar
raða. Við höfum á stund-
um orðið fyrir óþægind-
um vegna þess að áhugi
hefur verið meðal ffarn-
leiðenda að nota efnið.
Við teljum okkur hafa
áunnið merki okkar virð-
ingu vegna þeirrar af-
DV útvegaði sér polyfosfat-efniö sem notaö er stföð“ °8 uppskorið hærra
á flsklnn og hér sést því stráb yfir hráefnlð. afurðaverð fyrir vikið,
DV-mynd ÞÖK sef!r Aðalstemn-
Polyfosfat er alþekkt í
Bannaö hjá is kjötvinnslu. Þannig eru neytendur
Stóru sölusamtökin á íslandi hérlendis daglega að láta ofan í sig
banna notkun efnisins í þeim ókjör af slíkum efnum í formi
Hér má sjá sprunguna f Óshlíö. Óttast er aö þúsundir tonna muni hrynja úr hlíðinni. DV-mynd Jóhann Hannibalsson
Stór sprunga í Óshyrnu:
Þúsundir tonna
gætu hrunið
Vitað hefur verið um tilvist mik-
illar sprungu í fjallinu Óshymu við
Bolungarvík í 75 ár, þar sem ysti
hluti Öshlíðarvegar er fyrir neðan.
Sprunga þessi sker góða sneiö frá
fjallinu og líklegt er talið að þar eigi
eftir að steypast niður þúsundir
tonna af grjóti einhvern tíma í
framtíðinni.
Magnús Már Magnússon, hjá
Veðurstofu íslands, staðfesti í við-
tali að sprungan stóra væri til -
sagði að menn frá Veðurstofu hefðu
farið þama upp fyrir 2 árum. Næstu
daga er svo aftur von á Veðurstofu-
mönnum á svæðiö ef veður leyfir og
er ætlunin að setja niður mæli-
punkta til að geta nánar fylgst með
hreyfingum á sprungunni. Ekki er
hægt að segja neitt fyrir um hvenær
þetta stykki hrynur. Þaö gæti orðiö
í dag, á morgun eða eftir 200 ár.
Jóhann Hannibalsson, bóndi á
Hanhóli í Bolungarvík, hefur marg-
sinnis farið þarna upp á fjallið
ásamt bróður sínum, Braga. Jóhann
telur spmnguna mjög djúpa. Erfitt
er þó að segja nákvæmlega til um
það, þar sem jarðvegur hylur hana
að töluverðu leyti. Myndir af
sprungunni hafa verið bomar undir
jarðfræðing sem telur víst að ef
stykkið úr fiallinu hrynji niöur í sjó
í heilu lagi gæti það valdið flóö-
bylgju sem færi yfir Djúpið og end-
urkastaðist líklega að einhverju
leyti.
Stór björg, sem hrunið hafa niður
á veginn fyrir neðan á undanförn-
um árum, eru sum talin hafa komið
úr sprungna klettinum í Óshymu.
Mörg þeirra gætu verið tugir tonna
að þyngd. -HKr
skinku og annarra kjötvara. Mikil
tortryggni er gagnvart fosfatefnum í
fiski. Vara sem merkt er slíku inni-
haldi er mun lægri í verði en sú
vara sem er hrein. Það er því til
mikils að vinna fyrir framleiðendur
að hafa ekki þann stimpil á vöm
sinni og þeir sem DV hefur spumir
af merkja ekki vöruna þrátt fýrir að
þeir noti efnið. Ekki er ljóst hvort
efnið hefur skaðleg áhrif á fólk þeg-
ar til lengri tíma er litið. Rannsókn-
ir, sem hafa farið fram á því, leiða I
ekkert slíkt í ljós enn sem komið er.
Það eru því ekki önnur rök til að
banna það en markaðsleg sem fela í I
sér að veriö er að selja neytendum
vatn sem fisk. -rt
Stuttar fréttir
Vísað frá
Verslunarréttur í París vísaði frá
kröfu SH um kyrrsetningu á hluta-
bréfum í franska fiskvinnslufyrir-
tækinu Gelmer. SH heldur áfram
málaferlum gegn seljendum bréf-
anna. RÚV sagöi frá.
Til Sauðárkróks
Stjóm Byggðastofiiunar hefur
ákveðið að flytja þróunarsvið stofti-
unarinnar tU Sauðárkróks. Yfir-
maður sviðsins segist ekkert hafa
vitað af að þetta stæöi til og er undr-
andi. RÚV sagöi frá.
Kvótalögin úr gildi
Þrír þingmenn Alþýðubandalags
hafa lagt fram frumvarp á Alþingi
um að fiskveiðistjómunarlögin
verði feUd úr gUdi árið 2002, enda sé
kvótaúthlutun samkvæmt lögunum
úr lagi gengin. RÚV sagði frá.
Undir núllinu
Efstu deUdir íþróttafélaganna í
boltaleUfium eru Ula staddar fiárhags-
lega og skulda um 330 mUljónir
króna. Staöan er verst hjá knatt-
spymudeUdunum. Viðskiptablaðið
segirfrá.
Bílabrask
Ríkislögreglustjóri rannsakar
tugmilijóna skatt- og tollsvik vegna
innflutnings á notuðum bUum. Á
áttunda tug bUa kemur við sögu.
Stöð 2 sagði frá.
Steingrímur ferðast
Seðlabankinn hefur haft mestan
kostnað af ferðalögum Steingríms
Hermannssonar og konu hans frá
1994 samanborið við hina banka-
sfiórana. Stöð 2 sagði frá.
89 spilafíklar
89 manns hafa leitaö tíl SÁÁ
vegna spilafiknar það sem af er ár-
inu. 95 leituðu meðferðar á síðasta
ári. Morgunblaðið segir frá. -SÁ