Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 Spurningin Ertu fylgjandi eöa andvígur notkun nagladekkja? Kjartan Þorkelsson, sýslumaöur á Blönduósi: Ég er hlynntur nagla- dekkjum og er búinn að setja þau undir minn bíl. Hörður Birgisson nemi: Ég á ekki bíl sjálfur en ég held að nagladekk- in séu af hinu góða. Evert Ellertsson, 10 ára: Nagla- dekkin skemma göturnar. Ólafur Benediktsson, snillingur og námsmaður: Ég er búinn að setja nagladekk undir minn bU og er bara ánægður með það. Stefán Hallsson, starfsmaður á dekkjaverkstæði, og Birkir Andri: Við erum hlynntir notkun nagladekkja. Það er bara ekki ann- að hægt. Þorvaldur Hannesson verkamað- ur: Ég er alfarið á móti. nagladekkj- um. Þau spæna upp göturnar og mynda ryk sem er óhollt. Lesendur Spilað við skrattann Góðvinur Gullnámunnar: Ég horfi á skjáinn. Ég hef unnið 144 peninga. Það þýðir að ég hef unnið 7200 krónur. Kassinnn býður mér að taka vinninginn eða tvöfalda hann. Ég tvöfalda hann fái ég hærri spU, en spUakassinn. Ég stari bull- sveittur. Ég er búinn að tapa 75.000 kr. þetta kvöldiö. Tvöfaldi ég og vinni hef ég unnið 14.400 kr. Örlítið upp í tapið. Ég ýti á hnappinn. Andsk...upp kemur drottning. Nú verð ég að fá annaðhvort kóng eða ás til að vinna pottinn. Það hringsnýst aUt fyrir mér. Ég ýti á og upp kemur funrna. - Ég hef tapað. Ég hef verið að tapa síðan ég byrj- aði að spUa í spUakössum GúUná- munnar fyrir tæpum þremur árum. Ætli ég sé ekki búinn að tapa um einni og hálfri mUljón á þessum tíma. Það var mín mesta bölvun þegar ég fór fyrst inn á eitt af þess- um spUavítum. Ég er giftur og á tvö ung böm. Eins og gefur að skUja hefur heimUislífið, sem var nokkuð gott fýrir, eyðUagst algjörlega. Við erum skuldum vafin og konan veit mest lítið um þær skuldir sem ég hef komið mér í í bönkunum. Hún kemst að því fyrr en seinna og þá er hennar líf í rúst. Mitt líf er þegar komið í rúst út af spUafikn. Hversu oft hef ég ekki Ingibjörg Halldórsd. hringdi: Vegna fyrirspumar frá Þórhalli í DV 29. okt. sl. og kannski fleirum um hvar mætti finna upphaf og endi setningarinar „kolamaður, mér kol...“ vU ég upplýsa þetta. - í bók sem heitir íslenskar þulur og þjóð- kvæði, sathað af Ólafi Davíðssyni, prentaðri í Kaupmannahöfn 1898, er m.a sagan af Brúsaskeggi. Gamalt ævintýri sem krakkar lásu í lestrar- bókum í skólum, a.m.k. aUt fram tU 1940. Kannski lengur. Sagan er um hjón á bæ. Bóndinn hét Brúsaskeggur og hann átti naut. Því átti að slátra. Þau hjónin leggja upp í ferð með nautið, en þegar þau koma á þann stað sem átti að slátra nautinu vantar þau sleggju tU að Margir svitna við kassana. beðið guð í örvæntingu minni að ég hætti þessu ógeðslega háttemi. En ég virðist bara ekki geta stoppað. Og þetta er eins og að spUa við skrattann. Það sem ég er að reyna að gera með þessum fátæklegu orð- um er að káUa á hjálp. Ég vona að rota það með. Karlinn sendir þá kerlu sína tU að útvega sleggju og segist skulu halda i nautið á meðan. Kerling gengur lengi, lengi þangað tU hún hittir jámsmið. Hún heUsar honum og segir við hann: „Jám- smiður mér sleggju; stendur í brekku Brúsaskeggur og bíður mín þar.“ Jámsmiðurinn sagðist myndu út- vega henni sleggju ef hún útvegaði sér kol. Kerling lagði þá enn af stað og gengur lengi, lengi þar tU hún hittir mann sem er að hrenna kol. Hún segir við manninn: „Kolamað- ur, mér kol. Ég kol jámsmið. Jám- smiður mér sleggju; stendur í brekku Brúsaskeggur og bíður mín þar.“ - Síðan heldur sagan áfram, mér fyrirgefist þótt ég vUji ekki setja nafn mitt við þessar línur. - En ég vona að einhverjr okkar ráða- manna hafi kjark tU að krefjast banns á aUa spUakassa. Þeir afla engra tekna fyrir neinn, þeir taka aUt tU baka og meira en það. brekku þannig að kerling verður að útvega kolamanninum arnarfjöður og held- ur hún því áfram að arka þar tU hún hittir öm á háum kletti. Hún yrðir á fuglinn á sama hátt og áður: „Öm mér fjöður. Ég fjöður kola- manni. Kolamaður mér kol,“ o.s.frv. Örninn kvaðst mundu láta kerl- ingu fá fjöður ef hún útvegaði sér hvolp. Kerling fer enn af stað þar tU hún hittir tík sem liggur á hvolpum. Kerling segir þá: „Tík mér hvolp. Ég hvolp erni. Örn mér fiöður", o.s.frv. Síðan þarf kerling að ná í fleiri hluti tU að aUt gangi upp. - AUt er þetta hin merkUegasta þula og skemmtUeg með afbrigðum. Best væri að geta birt áUa þuluna fróð- leiksfúsum tU ánægju. Brúsaskeggur\ Hyskið í húsunum hreinsar ekki Svavar skrifar: Er það ekki alveg dæmalaust hve íslendingar eru miklir sóðar? Þegar grannt er skoðað er sláandi munur á því hve þrifnaði er ábótavant hér á landi, miðað við, ja, ég tek sem dæmi lönd eins og HoUand, Lúxem- borg, reyndar flest lönd í norðan- verðri Evrópu. Jafnvel Bretland er orðið jafnoki þessara landa hvað hreinlæti snertir. Líka Spánn, þar sem geysUegt átak hefur verið gert tU aö hreinsa gamlar byggingar og fegra aUt umhverfi innan og utan borga og feröamannastaða. IUÍ8HMS)A þjónusta allan í síma i kl. 14 og 16 Þetta með hreinlætið virðist ekki kappsmálið. Hér á landi er óþrifnaður mikiU. Áberandi er hann í miðbænum, þar sem aUt flýtur í rusli. En það er verra að í íbúðahverfum skuli ekki þeir sem þar búa taka sér tak öðru hverju og hreinsa a.m.k. mesta ruslið af lóðum sínum. Og þótt þeir færu nú út fyrir einkagirðinguna, svona rétt framan við sitt eigið hús, þá væri það nú ekki dauðasynd! Stundum getur maö- ur orðið svo vondur að maður hugsar með sjálfum sér þegar maður fær sér göngu- ferð í nágrenninu; það hreinsar ekki í kring- um sig, þetta hyski í húsunum. Ég bý hér í grónu hverfi í austur- borginni og einmitt hér ætti það að vera kappsmál allra að hafa nokkum veginn sómasamlegt um- öllum sama hverfi. Og ekki má gleyma veggjakrotinu, sem bókstailega eng- inn leggur sig niður við að hreinsa. Því miður er borgin okkar ekki einnar messu virði hvað hreinlæti snertir, nema þar sem íbúamir sjáifir era samtaka um þrifnað í sínu nánasta umhverfi. - Ög þar er lika engu saman að jafna við bróð- urpartinn af borginni, sem er áber- andi sóðalegur. Veikindafrí misnotuð Kristinn Sigurðsson skrifar: Þeir merku menn sem börðust fyrir réttindum launþega hefðu alls ekki trúað því að i dag er til fólk sem er í tíma og ótíma í veik- indafríi, án þess aö vera veikt. Nú er farið að bera á því að maki tilkynni veikindi, þannig að ósóminn eykst frekar en hitt, þvi miður. Einnig er það stundað að vera veikur í sumarleyfmu. Að sjálfsögðu getur viðkomandi yfir- maður stöðvað ósómann, en hann gerir það ekki. Þeir sem ávallt mæta til vinnu skulu bara bæta á sig vinnu, og fá engar þakkir né bónus í staðinn. Stéttarfélögin ættu að skoða þessi mál. Síaukin vinna á þá sem ávallt mæta ætti að vera launuð á einn eða annan hátt. Kókaíndrengur í klandri Hulda Guðmundsd. skrifar: Vesalings kókaíndrengurinn sem tekinn var fastur á Antilla- eyjum - maður aumkar sig að sjálfsögðu yfir svona vesalinga. En þetta á að taka fóstum tökum og íslenskt utanríkisráðuneyti eða ræðismaður á staönum eiga ekkert að vera að aumka sig yfir strákinn. Hann á bara að með- höndla samkvæmt þarlendum lögum. Og kókaíndrengurinn „gat ekki“ nefnt nöfn á þeim for- standsmönnum sem hann hitti í Reykjavík og hafa e.t.v. ráðið hann sem „burðardýr"! Að sjálf- sögðu má ekki nefna nein nöfn. Þetta verður kannski bara látið „týnast" í kerfinu? Það er eftir öðm. Kiví og koníak og marsipan Guðbjög hringdl: Ég kaupi talsvert af hinum vin- sælu Anthon Berg marsip- anstykkjum með kíví og koníaki, fyllt með súkkulaði. Ég vona bara að ekki fari fyrir þessu sælgæti eins og M&M sælgætinu sem bannað er að selja hér á landi annars staðar en í Fríhöfninni í Keflavík. Hún er víst ekki á land- inu! Annars er fáránleikinn slík- ur hjá þessum aðilum sem elta sérhveija nýja vörutegund, vegna litarefna, áfengisinnihalds og ég veit ekki hvað, að þetta líkist njósnum eins og í kalda stríðinu. Hálftamin tófa við Tjörnina Bjami Valdimarsson skrifar: Að skjóta saklausar gæsimar viö Tjömina, ég á ekki orð! Og hætta sömuleiðis að gefa þeim brauð? Hvað er fólk að hugsa? Til þess að halda gæsunum í skefium er íslenska tófan heppilegust. Búa til greni í Hljómskálagarðin- um, Vatnsmýrinni og við flug- völlinn. Refurinn hefur sest að í mörgum menningarborgum, t.d. í Evrópu, og alls staðar í sátt við náttúrulögmálin. Háiftamin tófan og yrðlingar hennar yrðu Reyk- vikingum einungis hreinasta augnayndi. Tappavélar frá Plútó tapast Óli H. Garðarsson skrifar: Verslunin Plútó, sem selur vín- gerðarefni, lánar viöskiptamönn- imi sínum gjaman tappavélar til afnota í sólarhring í senn og lítur á þetta sem sjálfsagða þjónustu. - Því miður em ekki allir þar sem þeir em séðir. í sl. viku hafa í tvígang veriö lánaöar út vélar og viðkomandi aðilar gefið upp folsk nöfn og auk þess símanúmer, en vélunum ekki skilað. Önnur vél- in var lánuð laugard. 25. okt. í nafni Árna Más og hin vélin mið- vikud. 29. okt. í nafhi Hörpu P. Viðkomandi aðilar eru vinsam- legast beðnir að skila vélunum hið fyrsta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.