Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 39 DV Bruce fékk ekki að glotta í mynd Stórleikarinn Bruce Willis er einna helst þekktnr fyrir glottiö óborgEinlega sem hann setur upp í hverri kvikmyndinni á fætur annarri og heldur að hann sé að sýna einhver æðri svipbrigöi. Leikstjóranum Michael Caton- Jones er vel kunnugt um þessa áráttu Brúsa og því bað hann kappann í öllum bænum að hafa nú hemil á svipbrigðunum við gerð morömyndarinnar Sjakal- ans. Þá fékk Brúsi heldur ekki að segja fímmaurabrandara, eins og hann er vanur. Duchovny kaupir hús Ráðgátuspæjarinn David Duchovny og splunkuný eigin- kona hans, Tea Leoni, hafa keypt sér hús í hinu fræga Malibu- hverfi við Hollywood og Los Angeles. Þar búa margar helstu stórstjörnur kvikmyndanna. í húsinu, sem kostaði litlar 200 milljónir króna, eru margar vist- arverur, þar á meöal fjögur svefnherbergi. Hjónakornin ættu því að hafa nóg pláss fyrir vísi- tölubömin eða tengdó þegar þau koma í heimsókn til borgar Kvikmyndaleikarinn Samuel L. Jackson er svo sannarlega á uppleið. Hann er að minnsta kosti þeirrar skoðunar sjálfur og ef hæfileikar eru einhvers viröi á hann það sannarlega skilið. Sammi nefnir máli sínu til stuðnings að hann hafi á þessu ári leikið á móti stórleikurunum Dustin Hoffman og Robert De Niro og að auki geimálfmum Yoda sem áhugamenn um Stjörnustríð Lúkasai- þekkja vel. Samuel L. er á uppleið Sviðsljós Cameron Diaz með allt á hreinu: Allir vilja piltarnir hreinlega eiga hana Strákamir eru hreinlega vitlausir í blondínuna Cameron Diaz. Ekki furða, hún er ung leikkona á hrað- siglingu upp á stórstjörnuhvelfing- una í Hollywood. Sumir vilja bara faðma hana en aðrir vilja eignast hana með húð og hári. Já, Cameron er í góðum gír og trúir á forlögin, eins og fleiri í bæði fortíð og nútíð. „Forlögin eru eiginlega undir kontról og ég lifi samkvæmt því,“ segir þessi geðþekka leikkona, milli þess sem hún flissar og faðmar skoska leikarann Ewan McGregor. Þau leika saman í kvikmyndinni A Life Less Ordinary. Ævintýrið byrjaði með myndinni Grímunni, þar sem gúmmíkarlinn Jim Carrey lék aðalhlutverkið. Cameron rakst á handritið hjá um- boðsmanninum sínum og fór í prufu bara að gamni sínu. Hún fékk að sjálfsögðu hlutverk og þar með var frægðarboltinn farinn að rúlla. Stúlkan hafði aldrei leikið áður en hún fékk hlutverkið í Grímunni. Margir urðu líka forviða, svo ekki sé meira sagt, en hún komst klakk- laust frá öllu saman. Þakkar það raunar gúmmíkarlinum sem hafði öðlast miklar vinsældir með mynd- unum um gæludýraspæjarann Ace Ventura. „Hver veit hvað heföi orðið um Grímuna ef ekki hefði verið fyrir vinsældir Jims í Ace Ventura? Ég naut bara góðs af velgengni Jims,“ segir Cameron, alltaf jafn lítillát. Aldrei hafði hvarflað að Cameron Cameron Diaz er í góöu lagi. að leggja fyrir sig leiklist fyrr en vinsældir Grímunnar voru orðnar staðreynd. Þá opnuðust lika fyrir henni allar dyr í Hollywood sem einhvers virði er að ganga inn um. „Ég greip öll tækifæri sem mér buðust. Eftir þetta langaði mig til að leika. Mig langaði til að leggja leik- listina fyrir mig. Mig langaði til að sjá hvernig það væri. Ég var búin að prófa það einu sinni og mér fannst það mjög skemmtilegt," segir Cameron. Stjaman unga hefur aldrei lært leiklist að neinu gagni, aðeins farið í örfáa einkatíma. Hitt hefur hún allt lært af meðleikurum sinum og leikstjórum. Sumum finnst það ekki nóg en peningamönnunum finnst það greinilega. Og þeir ráða. Á tískusýningu í Rúmeníu núna í vikunni gat aö líta þetta höfuöfat sem búiö er til úr plastflöskum. Sýningin var liöur í fjársöfnun handa um 1500 heimilislausum börnum í Búkarest. Þaö voru börnin sjálf sem hönnuöu fatnaöinn og þau sýndu hann einnig. Slmamynd Reuter Carola frá Svíþjóð syngur meðan hún bíður Sænska söngkonan Carola, sem sigraði í Evrópusöngvakeppninni 1983, þá 16 ára gömul, með laginu Frámling, á von á bami. Reyndar ætlaði Carola að taka það rólega síð- ustu mánuði meðgöngunnar en hún gat ekki stillt sig um að gefa út nýja smáskífu, Dreamer, sem kemur á markaöinn eftir um það bil tvær vikur. Höfundur lagsins er Glenn Gulli sem Carola hitti í Ósló. Eftir tvær vikur kemur einnig á markað safnplata með vinsælustu lögum söngkonunnar. Carola hefur verið gift trúboða í söfnuðinum Orð lífsins í mörg ár. Hún hefur sungið ameríska negrasálma á tónleikum á undanfomum ámm auk dægurlaga. Sænskir fjölmiðlar hafa árum saman velt því fyrir sér hvemig hjónabandið gangi hjá Carolu. Þessa dagana fer ekki á milli mála að söngkonan er hamingjusöm. Peningalykt af plötu Kryddpíanna Plötugagnrýnandi á sænska blaðinu Aftonbladet er ekki ýkja hrifmn af nýjustu plötu Krydd- stelpnanna. Hann segir þær reyna að gera öllum til hæfis og útkoman sé vægast sagt slæm. Gagnrýnandinn bendir á að ef menn ætli að krefjast nær 2 þús- und kalls af hverjum einasta krakka á Vesturlöndum fyrir plötuna sé ekki til of mikils mælst að reyna eitthvað á sig. Það sé hins vegar ekki gert. Naomi Camp- bell hjálpar bágstöddum Ofurfyrirsætan Naomi Camp- bell er nú orðinn félagi í barna- sjóði Nelsons Mandela, forseta Suður-Afríku. Fyrirsætan var í heimsókn hjá forsetanum á dög- unum og hafði hann þau áhrif á hana að hún ætlar að snúa sér að góðgerðarstarfsemi. Á næsta ári ætlar Naomi að hefja framleiðslu á ítölskum kúrekabuxum, að því er erlend tímarit greina frá. Bágstödd börn geta vænst þess að fá í sinn hlut ágóða af sölu buxnanna. Ivana Trump ástfangin af greifa Ivana Trump, fyrrverandi eiginkona Donalds Trumps, er sögð hrifnari af nýja ítalska ástmanninum sínum, Roffredo Gaetani d’Aragona, en hinum fyrri, Riccardo Mazzuchelli. Sá nýi er greifi og ef allt gengur vel getur Ivana skreytt sig með greifafrúartitli í framtíðinni. Og sjálfsagt venjulegu skarti líka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.