Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997
Fréttir
Yfirstjórn Pósts og slma hf.:
Starfsfólk olli skaða
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra og Pétur Reimarsson, stjóm-
arformaður Pósts og síma hf., gagn-
rýna báðir hvemig fyrirtækið stóð
að kynningu á gjaldskrárbreyting-
um. Samgönguráðherra sagði í ut-
andagskrárumræðu um málið á
þingi í gær að hvorki hann né
stjórn Pósts og síma gætu með
nokkrum hætti stjómað því hvemig
fyrirtækið kynnti ákvarðanir
stjómarinnar.
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, segir athyglis-
vert að samgönguráðherra skuli
með þessum hætti gera starfsfólk
Pósts og síma ábyrgt fyrir þeim
skaða og álitshnekki sem fyrirtækið
hefði orðið fyrir vegna ákvörðunar-
innar um gjaldskrárbreytingar á
símtölum innanlands.
Þá hafi viðskiptavinir Pósts og
síma einnig orðið fyrir umtalsverð-
- að mati samgönguráðherra
um fjárhagsskaöa vegna þeirrar
hækkunar sem tók gildi 1. nóvem-
ber og ekki á að fella úr gildi fyrr en
stjóm fyrirtækisins hafl fjallað um
hana.
Margrét Frímannsdóttir segir þaö
vera lítilmannlegt að flytja ábyrgð-
ina á starfsfólk Pósts og síma með
þessum hætti, sérstaklega þar sem
ráðherra hafi varið þessa ákvörðun
i fjölmiðlum eftir að hún var birt.
Guðmundur Bjömsson, forstjóri
Pósts og síma hf., vildi ekkert láta
hafa eftir sér um þessi ummæli
samgönguráðherra né Péturs Reim-
arssonar, stjómarformanns fyrir-
tækisins.
Póstur og sími hf. sendi í dag frá
sér þær forsendur sem lagðar vora
til grundvallar við mat á gjaldskrár-
breytingu þann 1. nóvember sl. Þar
kemur fram að símareikningar
heimilanna hefðu hækkað að meðal-
tali, hvort heldur sem er á lands-
byggðinni eða á höfuðborgarsvæð-
inu, með því að gera landið að einu
gjaldsvæði. Þar vegur þyngst mikil
hækkun á staðarsímtölum.
Með gjaldskrártillögunni, sem
samgönguráðherra og Davíð Odds-
son forsætisráðherra kynntu á
fóstudaginn var og lögð verður fyrir
stjóm Pósts og síma á föstudag, er
gert ráð fyrir að meðalsímakostnað-
ur heimilanna muni lækka úr 8.012
kr. í 7.700 kr.
Pétur Reimarsson segir aö þama
vegi millilandasamtölin þyngst þar
sem staðarsímtöl séu aðeins um
34% af öllum símakostnaöi heimil-
anna. Verði gjaldskrártillaga ráö-
herranna samþykkt á stjómarfundi
næsta föstudag munu staðarsímtöl
hækka um 20% í staö þeirra 40%
sem tóku gildi 1. nóvember.
-Sól.
Hvöss skoðanaskipti voru á Alþingi þegar gjaldskrárbreytingar Pósts og
sima hf. voru teknar fyrir f utandagskrárumræöum í gær.
DV-mynd Hilmar Þór
Haílvarði Einvarðssyni ríkissaksóknara veitt lausn frá og með næstu áramótum:
Ætlar í lögmanns-
störf og kennslu
- rætt um að Símon Sigvaldason verði saksóknari í stað Bjöms Helgasonar
„Já, ég er sáttur. Ætli ég dusti
nú ekki rykið af hæstaréttarlög-
mannsleyfi mínu. Eitthvaö veröur
maður að hafa fyrir stafhi. Annars
hef ég verið dálítið viö kennslu í
lagadeild Háskólans. Þaö er í ráöi
að ég verði eitthvað áfram við þaö
eftir áramótin," sagöi Hallvarður
Einvarösson ríkissaksóknari
Hallvaröur Einvarösson
ríkissaksóknari á skrifstofu
slnni sfödegis f gær
meö lausnarbréfiö
f hendi.
DV-mynd E. Ól.
skömmu eftir að dómsmálaráð-
herra veitti honrnn I gær lausn frá
embætti frá og með 1. janúar næst-
komandi.
„Það er aldrei að vita,“ sagði Hall-
varður, aðspuröur um það hvort
hann ætti eftir að sjást í dómsölum
á næstu árum - þá sem lögmaður.
Hallvarður starfaði við embættið
þegar það var stofnað árið 1961:
„Ég hef verið hér allan tímann
nema þann tíma sem ég var hjá
RLR. Ég kom síðan aftur hingað 1.
júlí 1986 og hef verið þaö allar götur
síðan. Það mun breytast um næst-
komandi áramót," sagði Hallvaröur.
Hann mun þiggja laun til jafhs
við hæstaréttardómara þegar hann
lætur af störfum. Embætti ríkis-
saksóknara verður auglýst laust til
umsóknar á næstunni.
Fleiri breytingar eru að eiga sér
stað hjá ríkissaksóknaraembætt-
inu. Bjöm Helgason saksóknari lét
af störfum vegna aldurs síðastlið-
inn föstudag. Samkvæmt heimild-
um DV hefur verið rætt um að
Símon Sigvaldason hjá dómsmála-
ráðuneytinu taki við stöðu hans
um áramótin. Eftir því sem DV
komst næst í gær hefur formleg
ákvörðun hins vegar ekki verið
tekin í því sambandi. -Ótt
Dagfari
Frá biskupi til biskups
Biskupinn yfir íslandi, herra
Ólafur Skúlason, hefúr mikið veriö
á milli tannanna á fólki síðustu
misserin og þá ekki síst hjá presta-
stéttinni sjálfri. Biskupinn hefúr
varla mátt opna munninn öðruvísi
en að prestamir hafi fundið því allt
til foráttu sem biskupinn hefur
sagt. Þetta hefur komið fram í fjöl-
miðlum, á fundum innan kirkjunn-
ar og á kirkjuþingi sjálfu. Sagt er
að formaður Prestafélagsins hafi
þaö fyrir sið aö taka upp á segul-
band það sem séra Ólafur lætur frá
sér fara í mæltu máli og síðan
dundi formaöurinn við það uppi í
Reykholti að stúdera biskupsins
boðskap til að geta vefengt hann og
afbakað.
Herra Ólafur Skúlason getur því
varla beöið eftir því að hætta sem
biskup. Og nú í mánuðinum mun
loksins koma að því að hann fái frí
frá þessu voðalega starfi, sem hef-
ur reynst honum til lítillar gæfu.
Séra Ólafúr hefur sjálfsagt hald-
ið að hann væri að mestu sloppinn
fyrir hom og menn fæm ekki elt-
ast við hann eða gera lítið úr hans
ákvörðunum svona á síðasta
sprettinum. En það er nú öðra
nær.
Síðasta
ákvörðun bisk-
upsins er sú að
ákveða hvar nýr
biskup verður
vígðiu-. Ákveðið
var að vígslan
færi fram í Hall-
grímskirkju í
stað Dómkirkj-
unnar, þar sem
allir íslenskir
biskupar hafa
verið vígðir síð-
an kirkjan var
reist og tilnefiid
sem dómkirkja
landsins.
En ekki hafði
herra Ólafur
Skúlason fyrr
ákveðiö vígsluna
í Hallgríms-
kirkju en stall-
bræður hans inn-
an kirkjunnar
hófu nýja herferð
á hendur honum
og mótmæltu
vígslustaðnum og hér var enn ein
vitleysan í honum Ólafi og Dóm-
kirkjusöfnuðurinn móðgaöist og
prestar Dómkirkjunnar máttu ekki
mæla fyrir bræði og þetta hefur
verið hið mesta hitamál, eins og
kirkjunnar er
von og vísa.
Veslings bisk-
upinn vissi ekki
hvaðan á sig
stóð veðrið og
fór að afsaka
þessa ákvörðun,
eins og hann
hefur þurft að
gera með fiestar
sínar ákvarðcm-
ir undanfarin
tvö ár, og hann
benti meira að
segja á með
sinni alkunnu
rökvisi að bisk-
upinn og fjöl-
skylda hans
ættu sæti vís í
Dómkirkjunni
og að Dómkirkj-
an væri áfram
dómkirkja og
það væri á mis-
skilningi byggt
að Dómkirkjan
væri ekki leng-
ur þjóðkirkja, enda þótt þjóðkirkj-
an væri ekki notuð við biskups-
vígslu.
Kirkjunnar menn hafa ekki vilj-
að hlusta á þessi rök og segja að nú
sé smám saman verið að „taka ljós-
ið frá Dómkirkjunni" og söfnuður-
inn og sóknamefiidin í Dómkirkj-
unni er miður sín yfir þessum
helgispjöllum og það má þakka fyr-
ir meðan Dómkirkjusöfnuðurinn
allur gengur ekki úr þjóðkirkjunni
til að mótmæla því að Dómkirkjan
sé ekki lengur þjóðkirkja. Og herra
Ólafi Skúlasyni er enn og aftur
kennt um þessa smán og hneisu
sem Dómkirkjan hefúr orðið fyrir.
Nú hefúr hins vegar komið í ljós
að séra Ólafúr biskup hafði borið
vigslustaðinn undir tilvonandi
biskup og séra Karl hafði sam-
þykkt að flytja vígsluna í Hall-
grímskirkju.
Þetta er allt honum að kenna,
sem hlýtur að vera uppörvandi fyr-
ir prestastéttina að geta nú yfir-
fært mistökin hjá fýrrverandi bisk-
upi yfir á tilvonandi biskup og
haldið áfram aö hrekkja biskupinn
sinn í krafti þjóðkirkjunnar, sem
hefur það fyrir sið að koma sér upp
blórabögglum í biskupsstofu.
Dagfari