Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997
11
Fréttir
Máki hf. á Sauðárkróki:
Ihugar barraeldi í Miklalaxi
Fiskeldisfyrirtækið Máki hf. á
Sauðárkróki hefur látið vinna for-
vinnu vegna hugsanlegrar yfirtöku
á fiskeldisstöð Miklalax í Fljótum
og setja þar upp barraeldi, en stöð-
in er í eigu Byggðastofnunar.
Könnunin náði til líffræðilegra,
tæknilegra og fjárhagslegra þátta
og sýndi jákvæða niðurstöðu. Þeg-
ar hefur verið leitað til fjárfesta
sem sýnt hafa málinu áhuga. Verði
af þessu gæti árleg framleiðsla í
Fljótum numið allt að 800 tonnum
á ári verði stöðin fullnýtt.
Guðmundur Örn Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Máka hf., sem
hefur stýrt þeirri vinnu sem unn-
in hefur verið vegna þessa máls,
segir að það hafi beinlínis verið
markmið þeirra sem að forvinn-
unni hafa staðið að setja fram
„svartsýnt" dæmi hvað varðar
framleiðni í stöðinni, s.s. að eldis-
tími verði lengdur um 30% miðað
við það sem verið hefur í stöð
Máka á Sauðárkróki og að fram-
leiðsluáætlanir hafi verið miðaðar
við lítinn barra sem er verðminni
en stór, og miðað hafi verið við
markaðsverð samkvæmt svart-
sýnustu spám.
Máki hefur verið að þróa fram-
leiðslu sína á barra í stöð fyrir-
tækisins á Sauðárkróki undanfar-
in ár, jafnframt því sem unnið hef-
ur verið að markaðsmálum. Góð
tök hafa náðst á framleiðslunni og
Guðmundur Ingólfsson segir að
markaðurinn fyrir barra í Evrópu
sé stöðugur og góður, og verðið er
hátt. Markaðsverð fyrir um 500 g
fisk hefur verið um 800 kr. á hvet
kíló og ekkert sem bendir til að
það muni lækka. Barri þykir einn
fínasti matfiskur sem boðinn er til
sölu á finni veitingastöðum.
Barrinn er hlýsjávarfiskur sem
hefur ekki verið mikið ræktaður á
norðlægum slóðum. Hann er alinn
við 23 gráða hita þannig að eldis-
sjó þarf að endurnýta 40 sinnum,
sjórinn er forhitaður og leiddur
um endurnýtingarkerfi.
Guðmundur segir að til að
koma stöð Miklalax i starfsemi
með barraeldi þurfi 190 milljóna
króna fjárfestingu og 40-60 millj-
ónir króna til að „keyra lífmass-
ann upp“. „Allar okkar athuganir
benda til þess að hér sé gott mál á
ferðinni sem gangi fullkomlega
upp, og við höfum þegar orðið var-
ir við áhuga fjárfesta á málinu,"
segir Guðmundur. -gk
LJÓSMYNDAVÖRUR
TEPPA
HREINSIVELAR
- margar stærðir
RAFVER
SKEIFUNNI 3E-F
SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215
Umferðarlagabrot:
Misháar sektir á fólk
DV, Akureyri:
Ósamræmis virðist gæta meðal
lögregluembætta landsins hvað
varðar upphæð sektargreiðslna
fyrir ýmis umferðarlagabrot. Þetta
misræmi virðist í og með mega
rekja til þess að í reglugerð dóms-
málaráðuneytisins frá í sumar er
heimild til að veita 25% afslátt af
sektarupphæðum séu sektirnar
greiddar innan 30 daga.
DV kannaði upphæð sekta vegna
nokkurra brot hjá þremur lög-
regluembættum landsins: á ísa-
firði, Akureyri og í Reykjavik. Hjá
sýslumannsembættinu á Akureyri
fengust þær upplýsingar að sektar-
upphæðir hefðu hækkað í sumar
með nýju reglugerðinni og um leið
hefði verið gefin heimild til 25%
lækkunar sekta sem væru greidd-
ar innan mánaðar. Sá afsláttar-
möguleiki væri hins vegar ekki
fyrir hendi „af tæknilegum ástæð-
um“ og því hefðu sektarupphæðir
ekki verið hækkaðar ffá því sem
áður var.
Karl Steinar Valsson hjá emb-
ætti lögreglustjóra í Reykjavík seg-
ir að samkvæmt reglugerðinni hafi
embættið viðmiðun vegna þeirra
sem aka móti rauðu umferðarljósi,
4-11 þúsund krónur, og embættin
hafi frjálsar hendur um að beita
HVERNIG VÆRI AÐ KLÁRA JÓLAKORTIN ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ Á KAF í JÓLAUNDIRBÚNINGIN?
Skipholti 31 Reykjavík 568 0450
Kaupvangsstræti 1 Akureyri 461 2850
Flugkapparnir Nökkvi og Vignir Örn ásamt farþeganum, Áslaugu Auði.
Sektargreiðslur
Akureyri, ísafjörður og Reykjavlk -
fsafjöröur
iUUi
Akureyri
Ekið gegn rauðu Ijósl 8.000
Stöðvunarskylda ekki vlrt 7.000
Ekkl mætt tHaðaiskoðunar 5.000
Hraðakstur__ 5.000
Ekki mætt til endurskoðunar 3.000
10.000
10.000
7.000
7.000
4.000
Reykjavík
K
»00
10.000
10.000
3.000-7.000
7.000
3.000-7.000
sektargreiðslum innan þeirra
marka. í Reykjavík og á ísafirði er
sú upphæð nú 10 þúsund krónur
en á Akureyri 8 þúsund.
Sekt fyrir að virða ekki reglu
um stöðvunarskyldu er sú sama á
ísafirði og í Reykjavík, 10 þúsund
krónur, en 7 þúsund á Akureyri.
Fyrir hraðakstur eru mismunandi
sektir eftir því hversu mikið yfir
leyfilegum hámarkshraða er ekið.
Lágmarkið er 5 þúsund á Akureyri
en 7 þúsund í Reykjavík og á Isa-
firði en upphæðin hækkar eftir þvi
sem hraðar er ekið.
Enn er misræmi ef menn færa
ekki bifreiðir sinar til aðalskoðun-
ar á réttum tíma. í Reykjavík er
sekt við því á bilinu 3-7 þúsund
krónur, 7 þúsund á ísafirði og 5
þúsund á Akureyri. Fyrir að mæta
ekki á réttum tíma með bifreið í
endurskoðun er sektin 3-7 þúsund
í Reykjavík, 4 þúsund á ísafirði og
3 þúsimd á Akureyri. -gk
Hringflug þriggja íslenskra ung-
menna um Bandaríkin, sem sagt
var frá í síðasta helgarblaði, geng-
ur vel. Einn þremenninganna,
Vignir Öm Guðnason, hafði sam-
band við DV í gærmorgun frá
Dallas. Þá voru rúmir 2 þúsund
kílómetrar að baki á rúmum 13
flugtímum. Næst lá leiðin til Phi-
enix og Las Vegas og þaðan upp
vesturströndina til Seattle.
Ásamt Vigni flýgur félagi hans,
Nökkvi Sveinsson, einkaflugvél-
inni sem er af gerðinni Piper Ar-
row. Með þeim í for er unnusta
Nökkva, Áslaug Auður Guð-
mundsdóttir. Þau lögðu af stað frá
Vero Beach í Flórída sl. fostudag.
Á fyrsta viðkomustað í Orlando
urðu þau veðurteppt í sólarhring
sökum þoku.
Reiknaö er með að ferðinni
ljúki innan þriggja vikna. Alls er
flugleiðin um 12 þúsund kílómetr-
ar. -bjb
Hringflugið um Bandaríkin:
Tvö þúsund kiló-
metrar að baki