Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1997, Side 32
M&K II"
^ vínng
*<œCi?r~«L .
jyyrir kL J-/-Í i
■ ■ ;'í
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, OHAÐ DAGBLA
MIÐVIKUDAGUR 5. NOVEMBER 1997
Runólfur Oddsson, eigandi tveggja scháferhunda:
Eitrað fyrir
hundana
„Ég er sannfærður um að það
hefur verið eitrað fyrir hundana.
Ég gruna ákveðinn aðiia um að
hafa framið þennan verknað án
þess að ég geti sannað neitt enn
sem komið er,“ segir Runólfur
Oddsson sem varð fyrir því að
schaferhundar hans greindust
með eitrun í gær. Runólfur, sem
býr í Fossvogi, segir konu sína
hafa hleypt hundunum, Scörku og
Kötu, út í nokkrar mínútur í
morgun og skömmu eftir að þeir
komu inn hafi þeir sýnt einkenni
þess að þeir hafi orðið fyrir eitrun.
„Konan min hringdi í mig í
skelfingu og sagði að þeir vænt
orðnir veikir og riöuðu báðir. Ég
fór beint heim úr vinnunni og þá
lá annar hundurinn rænulítill en
hinn riðaði á fótunum. Það eru all-
ar líkur á því að einhver hafi
fleygt til þeirra eitruðum mat,“
segir Runólfur.
Fariö var meö hundana á Dýra-
spítala Watsons þar sem þeir
fengu meðferö svo sem gert er þeg-
ar um eitrun er að ræða.
„Læknarnir segja yfirgnæfandi
likur á aö þarna sé um eitrun að
ræða. Þarna er um að ræða eitthvert
skjótverkandi eitur," segir hann.
Runólfur átti í hatrömmum deil-
um meöan hann bjó í fjölbýlishúsi
við Álakvísl. Þeim deilum lyktaði
með því að hann fLutti á brott og
settist að í einbýlishúsi í Fossvogi.
Eftir það hafa málaferli átt sér
stað þar sem Runólfur hefur með-
al annars stefnt lögmanni borgar-
innar. Hann segist vart geta
ímyndað sér hver standi að slíku
illvirki.
„Ég skil ekki það hugarfar sem
er að baki verknaði sem þessum.
Ég veit auðvitað af því að ég á
óvildarmenn en það hvarflar ekki
að mér að þeir gangi svona langt,“
segir hann.
Sigurborg Daðadóttir dýralæknir
sem hjúkrað hefur hundunum sagði
hundana bera einkenni eitrunar.
Hún sagði í morgun að eldri
hundurinn, Scarka, væri orðinn
tiltölulega hress en sá yngri væri
milli heims og helju.
Lögreglan í Reykjavík rannsak-
ar nú atburðinn og hefur tekið
sýni úr garðinum þar sem hund-
arnir voru. -rt
Hlúö var aö hundum Runólfs Oddssonar á Dýraspítala Watsons í gær.
Hann segir aö eitraö hafi verið fyrir dýrin þegar þeim var hleypt út í gær-
morgun. DV-mynd S
!
Seölabankastjóri:
Mismæli ráðherra:
Eg ræði ekki
við ykkur
Ekkiaf
„Nei, ég ræði ekkert við ykkur
fréttamenn. Af hverju ætti ég að
gera það? Það er búið að segja frá
þvi sem við
greinum frá í
bankanum.
ráðnum hug
Meira verður
ekkert um það
sagt,“ sagði
Steingrímur
Hermannsson
seðlabanka-
stjóri, aðspurð-
ur um viðbrögð
hans við frétt
Stöðvar 2 í gærkvöld um að hann
hefði borið mestan ferðakostnað
allra í Seðlabankanum frá árinu
1994.
Upplýsingarnar um ferðakostn-
aðinn voru sendar sjónvarpsstöð-
inni í samræmi við ákvæði upplýs-
ingalaga. Um það hvort ekki væri
ástæða til að svara, sagði Stein-
grímur „að búið væri að greina frá
þessu eins og vera bæri“ - hann sæi
ekki ástæðu til að bæta neinu þar
við. -Ótt
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra segir að sér þyki leiðinlegt að
hafa farið rangt
með nafn Ástu
Ragnheiðar
Jóhannesdóttur
í utandagskrár-
umræðum á
Alþingi í gær
þegar hann kall-
aði hana Ragn-
heiði Ástu Stef-
ánsdóttur. „Ég
get ekki gefið
Karl Ágúst Úlfsson leikari fagnaöi 40 ára afmæli sínu í gærkvöld. Hér sjást félagar hans í Spaugstofunni, þeir Örn
Árnason, Pálmi Gestsson og Siguröur Sigurjónsson smella laufléttum kossum á vin sinn. Eflaust hafa einhverjir
góðir brandarar fokiö hjá þeim félögum í gærkvöld. DV-mynd Pjetur
neina skýringu á þessu aðra en þá
að það eru tvær þjóðkunnar konur
sem bera þessi nöfn, og hin er
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir,"
segir Halldór. Hann segir nafna-
víxlin ekki hafa verið af ráðnum
hug, en hins vegar hefði hann eins
og reyndar aðrir reynt að gleyma
Þjóðvaka og því ekki munað eftir
því hvaða flokki þingmaðurinn
tilheyrði. „Ég tók þetta sem
mismæli en ekki dónaskap," segir
Halldór. -Sól
HEITIR SAMGONGU-
RÁÐHERRANN EKKI
. HALLGRÍMUR BLANDON?
Veðrið á morgun:
Snjókoma
norðan til
Á morgun verður norðaustan
stinningskaldi og slydda eða
snjókoma norðan til á Vestfjörð-
um. Annars verður austan- eða
suðaustangola eða kaldi og súld
eða rigning víðast hvar. Hiti ná-
lægt frostmarki allra nyrst en 1
til 6 stig annars staðar, mildast
suðvestan til.
Veðriö í dag er á bls. 45.