Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
Fréttir
Ráðstefna um stráka í skóla:
Drengir þurfa meiri hjálp
- samkvæmt nýjustu rannsóknum
„Áhuginn á efninu segir meira en
mörg orð. Hér mættu um 500 manns
og sá fjöldi sýnir hversu umræðan
er brýn um þessi mál og nauðsyn á
úrbótum," sagði Sigurður Svavars-
son, formaður Karladeildar Jafn-
réttisráðs, að lokinni ráðstefnu um
stöðu stráka í íslenskum skólum
sem haldin var í samvinnu við
menntamálaráðuneytið í gær.
Innlendar og erlendar rannsóknir
benda til að drengjum líði ekki nógu
vel í skóla, þeir þurfi frekar á sér-
stökum stuðningi við nám að halda,
eigi frekar við agavandamál að
stríða og þurfi frekar sálfræðiaðstoð
en stúlkur. Ný íslensk rannsókn,
Ungt fólk 97, um líðan og árangur
kynja í skólunum, var kynnt á ráð-
stefnunni en niðurstöður hennar
eru í samræmi við fyrri rannsóknir
í þessum efnum.
Heföbundin kennsla hentar
ekki drengjum
Sigurður sagði að ráðstefnan
hefði leitt í ljós að uppeldisstéttim-
ar væru að vinna að þessu vanda-
máli á hverjum degi og leituðu
lausna á því hvernig bæri að taka á
þeirri staðreynd að drengjum líður
verr í skólum en stúlkum og standa
sig hlutfallslega verr.
Hann sagði jafnframt merkilegt
hversu hátt hlutfall drengja greind-
ist misþroska sem sé ein skýringin
á því af hverju þeir eru svo miklu
Konur voru í miklum meirihluta þátttakenda á ráðstefnunni Strákar í skóla enda sjá þær aö miklu leyti um upp-
fræðslu barna í grunnskólum landsins. DV-mynd Brynjar Gauti
uppivöðslusamari en stúlkur.
Sigurður sagði ljóst að hin hefð-
bundna kennslustefna hentaði ekki
strákum og að í máli flestra sem
höfðu framsögu á ráðstefnunni
hefði komið í ljós að taka yrði upp
mun sveigjanlegra kennslufyrir-
komulag. Stúlkum væri eðlislægara
að gera það sem til væri ætlast af
þeim en það gæti hins vegar verið
mjög neikvætt þar sem oft misstu
þær þannig frumkvæði og sjálfs-
traust. Mikilvægt væri að finna >
svör við þessum málefnum í skóla- *
kerfinu og ekki mætti gleyma því að
slík vinna bætti stöðu beggja kynja.
Stúlkur standa verr aö vígi
Innlendir sérfræðingar leiddu
saman hesta sína á ráðstefnunni, |
jafnt leikir sem lærðir, og Niels
Kryger, danskur prófessor í uppeld-
isfræði, kynnti reynslu Dana af
þessu málefni. Það vakti athygli að
þrátt fyrir yfirskrift ráðstefnunnar,
Strákar í skóla, voru konur í mikl-
um meirihluta þátttakenda en Sig-
urður segir það endurspegla vel
hlutfall kvenna í uppeldisstéttum
samfélagsins.
í pallborðsumræðum að loknum
fyrirlestrum kom í ljós áhugi á að
halda svipaða ráðstefiiu um málefni I
stúlkna. Gerður G. Óskarsdóttir,
fræðslustjóri Reykjavíkur, benti á
að þó svo að stúlkum vegnaði betur j
í skólakerfinu en drengjum væri rík
ástæða til að hafa áhyggjur af þeim
þegar skóla sleppti því þær standa i
jafnan verr að vígi hvað snertir *
starfsmöguleika og launakjör.
-Sól.
HvalQaröargöng:
Jákvæð fyrir Borgarbyggð
- segir bæjarstjóri Borgarbyggðar
Umdeild ályktun NTF:
Komum ekki
nálægt þessu
- segir varaformaður Flugfreyjufélags íslands
DV, Borgarnesi:
Borgnesingar líta björtum aug-
um til þess dags að Hvalfjarðar-
göng verði opnuð fyrir umferð.
„Almennt tel ég að áhrif Hval-
fiarðarganga hafi jákvæð áhrif
hér i Borgarbyggð. í Borgamesi
eru stór fyrirtæki í iðnaði og mat-
Jón Óli Gunnarsson.
DV-mynd Daníel
vælagerð sem flytja megnið af
framleiðslu sinni á höfuðborgar-
svæöið. Göngin færa okkur nær
aðalmarkaðssvæðinu og það hlýt-
ur að vera styrkur. Þá era ýmsir
aðrir möguleikar sem munu
styrkja svæðið.
Ég vænti þess og trúi að aukn-
ing verði í sumarbústaðabyggð,
sem nú er þó veruleg hér á svæð-
inu, og það er jákvætt. Við höfum
reynt að byggja upp ferðamanna-
aðstöðu og ég tel að þetta styrki
hvað annað og að göngin séu að
meginhluta til góðs. Til viðbótar
hefur Hagkaup keypt verslun
Jóns og Stefáns í Borgamesi og
tekur við rekstrinum um áramót
og þaö er alveg ljóst að forsvar-
menn Hagkaups gera sér grein
fyrir því hversu geysivel Borgar-
nes er í sveit sett gagnvart sam-
göngum, bæði vestur og norður,"
sagði Óli Jón Gunnarsson, bæjar-
stjóri í Borgarbyggö, við DV
-DVÓ
„Þetta er ekki rannið undan okk-
ar rifium og félagið hefur ekki kom-
ið nálægt þessu,“ sagði Anna Dóra
Guðmundsdóttir, varaformaöur
Flugfreyjufélags íslands, þegar DV
spurði hana hvort ábendingar eða
þrýstingur frá félaginu væru undir-
rót hinnar umdeildu ályktunar sem
stjórn Norræna flutningaverka-
mannasambandsins sendi frá sér á
dögunum um starfsmannahald Atl-
anta. Flugfreyjufélagið er eina fagfé-
lag flugfreyja hérlendis. Borgþór
Kjæmested, fulltrúi íslenskra aðild-
arfélaga í stjóm NTF, hefúr sagt í
DV að ályktun sambandsins sé fyrst
og fremst tilkomin vegna ábendinga
frá íslandi, sem og utan úr heimi.
Forseti Verkamannasambands ís-
lands, sem er stærsta aðildarfélag
NTF hér, hafnar aðild að ályktun-
inni og segir hana ósmekklega. For-
seti Alþýðusambands íslands tekur
í sama streng og átelur að ekki
skyldi hafa verið haft samband við
ASÍ þar sem vitnað er I fiögurra ára
gamlar upplýsingar frá samtökun-
um í ályktuninni. Þá hefur verið
átalið að embætti forseta Islands
skuli dregið inn í þetta mál með
þeim hætti sem gert er. Borgþór
Kjæmested hefur fengið tilmæli um
að boða til fundar með íslensku að-
ildarfélögunum þar sem hann skýri
málið.
Flugfreyjufélag íslands hefur
gagnrýnt að flugfreyjur Atlanta
skuli vera utan stéttarfélags én eng-
in þeirra er í félaginu. „Þær hafa
samið beint við Atlanta og era ekki |
með sams konar kjarasamning og ’
við,“ sagði Anna Dóra. „En hvað
varðar þessa ályktun, þá vissi ég
ekkert um að þetta stæði til. Við l
eram aðilar að NTF, en þetta er eitt-
hvað sem er okkur alveg óviðkom-
andi.“ I
-JSS
„Sjálfsásökun og sjálfshatur
er sjálfsdýrkun með nei-
kvæðum formerkjum.a
Esra
SYNDARA
eftir Ingólf Margeirsson
Framkvæmdastjórn VMSÍ:
Harmar
samþykktina ,
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambands Islands samþykkti
á fundi sínum í gær ályktun vegna
samþykktar stjórnar Norræna flutn-
ingaverkamannasambandsins. I
henni segir eftirfarandi:
„Vegna samþykktar stjómar Nor-
ræna flutningaverkamannasam-
bandsins í tilefni af kveöju forseta
Islands til flugfélagsins Atlanta á 10
ára afmæli þess vill framkvæmda-
stjóm Verkamannasambands ís-
lands lýsa yfir því að samþykktin er
henni með öllu óviökomandi. Mál
þetta var ekki borið upp við Verka-
mannasambandið af fulltrúa Islands
í NTF eða um það fiallað á vegum
þess. Verkamannasambandið harm-
ar þessa samþykkt. Það hefur ekki
verið venja af VMSÍ að tengja sam-
an launabaráttu umbjóðenda sinna
og árnaðaróskir þjóðhöfðingja til
fyrirtækja hér á landi eða annars
staðar." -JSS