Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
9
Utlönd
Ritt Bjerregaard í vandræðum:
Fréttabréfið
fullt af villum
Ritt Bjerregaard, umhverfis-
málastjóra Evrópusambandsins,
og skrifstofu hennar í Brussel varö
heldur betur á í messunni á dögun-
um þegar hún sendi fréttabréf um
loftslagsráðstefhuna i Kyoto í Jap-
an til fjölmiðla og annarra sem
málið varða í Evrópu. Fréttabréfið
er allt morandi í viilum.
„Það er sérstaklega ergilegt og
ber að harma að einhver á skrif-
stofu hennar geri ekki greinar-
mun á ósonlaginu og gróðurhúsa-
áhrifunum,“ segir loftslagssér-
fræðingurinn Taijei Haaland hjá
Grænfriðungum í viðtali við
danska blaðið Politiken.
í fréttabréfinu upplýsir Ritt að
helstu stjómmálamenn heimsins
muni í næstu viku koma saman á
loftslagsráðstefnunni í Kyoto til
að „ræða hvemig við komum í
veg fyrir að ósonlagið verði fyrir
frekari skaða vegna mengunar af
völdum efna sem brjóta niður
ósonlagið". Það var þetta orðalag
sem fór fyrir brjóstið á umhverfis-
vemdarsinnum.
Á loftslagsráðstefnunni 1. til 10.
desember verður rætt um að
draga úr losun svokallaðra gróð-
urhúsalofttegunda, svo sem koldí-
oxíðs og metangass, sem grunur
leikur á að valdi hækkandi hita-
stigi á jörðinni. Ekki stendur hins
vegar til að ræða um efni sem
skaða ósonlagið á ráðstefnunni í
Kyoto.
Viktorfa, eiginkona Spencers jarls, á leið frá dómstól f Höfðaborg.
Sfmamynd Reuter
Spencer býður milljónir
Spencer jarl, bróðir Díönu
prinsessu, hefúr boðið Viktoríu
eiginkonu sinni um 58 milljónir
íslenskra króna við skilnaðinn til
viðbótar mánaðarlegum greiðslum
upp á 300 þúsund krónur þar til hún
deyr eða giftist á ný.
Talskona jarlsins greindi
fréttamönnum ffá upphæðinni í
Höfðaborg í Suður-Afríku í gær.
Dómsyfirvöld þar hafa enn ekki tekið
ákvörðun um hvort skiinaðarmálið
kemur fyrir rétt í London eins og
Viktoría hefur farið fram á.
Spencer hefúr hætt við að reyna
að fá dómstóla til að banna
dagblöðum að birta í smáatriðum
frásagnir úr dómsal þar sem
vitnaleiðslur fara fram vegna
skilnaðarmálsins. Blöðin höfðu
hótað að fara með málið fyrir
hæstarétt.
Sagt var frá því í fréttum fyrr í
vikunni að fram hefði komið að
jarlinn hefði verið með tólf konum á
meðan Viktoría lá á sjúkrahúsi.
2 áleggst. hvítlauksbrauó eða franskar
+hvitlauksolía QQ
7777
3 áleggst. hvitlauksbraiió eóa franskar
+Tortillas flögur og Salsa sósa 1*$
3 áleggst. hvitlauksbrauó eóa franskar
+Tortilías flögur og Salsa sósa 1QSe
KRAKKAR!
MUNIÐ EFTIR OKKUR
Att TANNIOGTÚPA
Öll Lionsdagatöl eru merkt:
Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa
UONS
Allur hagnaður rennur til líknarmála.
Tilboð baðherbergissett! Kr. 23.000,- stgr.
Salerni með stút í vegg
eða gólf. Hörð seta og
festingar fylgja.
Ath. Öll hreinlætistæki hjá okkur eru framleidd hjá sama aðila sem
tryggir sama litatón á salerni, salernissetu, handlaug og baðkari.
Forðist ósamstæða litatóna!
VERSLUN FYRIR ALLA !
V® Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
vsrm-mm.í
EUROCARD
raögreiöslur