Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 20
32
Fréttir
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
Fram síur eru í
takt viö tímann.
Gerðu kröfur
veldu Fram síur!
Sími 535 9000
Fax 535 9040
WWW. FRAMEUROPENL
ARABIA
Hreiniætistæki
í miklu úrvoli
Finnsk gœðavara
í 120 ár
Leitar
banns
r>v
Sláturfélag Suðurlands:
réttar vegna
á sölu M&M
Sláturfélag Suðurlands ætlar að
leita réttar síns vegna banns á sölu
M&M-sælgætisins í verslunum hér
á landi.
Sláturfélag Suðurlands er aðal-
dreifingaraðili M&M á íslandi. í fjöl-
mörg ár hefur M&M verið til sölu í
fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli án
afskipta stjómvalda. Hins vegar hef-
ur verið ómögulegt að selja M&M í
öðrum verslunum hérlendis þar
Undanfarin þrjú ár hefur árang-
ursríkt og ánægjulegt samstarf tekist
með Lionsklúbbi Mosfelisbæjar og
Sambíóunum. Sambíóin hafa eftirlát-
ið Lionsklúbbnum eina mynd til for-
sýningar og hefur andvirði miðasöl-
unnar runnið óskipt til líknarmála.
sem varan inniheldur tiltekin litar-
efni sem ekki em leyfð að íslensk-
um lögum.
í fréttatilkynningu frá Sláturfélagi
Suðurlands kemur fram að innan EB
er notkun þessara litarefna heimil
og er löggjöf þar byggð á alþjóðlega
viðurkenndum vísindalegum rann-
sóknum sem leitt hafa í Ijós að litar-
efnin era ekki skaðleg heilsu fólks.
1 fréttatilkynningu kemur einnig
Fyrsta árið var hjarta- og lugna-
deild Reykjalundar gefinn súrefnis-
mettunarmælir og annað árið var
Heilsugæslu Mosfellsumdæmis og
Hlein, heimili flölfatlaðra, gefin sér-
stök sogtæki. Á síðasta ári var kvik-
myndin Dýrlingurinn forsýnd og
fram að Sláturfélagið sótti fyrr á
þessu ári um undanþágu íslenskra
stjómvalda frá þeim reglum sem
gilda hérlendis um aukaefni í mat-
vælum. Umsókninni var synjað.
Sláturfélagið ætlar að leita réttar
síns með því að véfengja réttmæti
þeirrar ákvörðunar íslenskra
stjómvalda að synja umsókninni.
Þá verður því haldið fram af félag-
inu að bann við dreifmgu vönmnar
hagnaðinum varið til kaupa á sér-
hæfðu þolprófúnarhjóli sem var af-
hent 16. nóvember. Viðstaddir af-
hendinguna vora Ámi Samúelsson,
eigandi Sambíóanna, og þeir Páll
Guðjónsson, Jón Bjami Þorsteins-
son, Kristinn Hannesson og Bjöm
Ástmundsson frá Lions-
klúbbi Mosfellsbæjar en
Bjöm er jafnframt forstjóri
Reykjalundar. Að lokinni af-
hendingunni sýndi Bjöm
gestunum þjálfunardeild
Reykjalundar og kom þar
berlega í Ijós hversu mjög
slík stofiiun er háð gjöfúm
frá líknarfélögum.
„Félagar í Lionsklúbbi
Mosfellsbæjar vilja koma á
framfæri þökkiun til Áma
Samúelssonar fyrir hans
stóra framlag til líknarstarfs
klúbbstns," segir Kristinn
Hannesson, fyrrverandi for-
maður, „og jafnframt viljmn
við koma á framfæri þakk-
læti til annarra sem hafa
stutt við bakiö á okkur.“
annars staðar en í fríhöfninni sé
andstætt jafnræðisreglum. Sláturfé-
lagið hefur lagt fram formlega
kvörtnn hjá Eftirlitsstofiiun EFTA í
Brassel vegna brots íslenska ríkis-
ins gegn reglum samningsins rnn
frjálsa vöruflutninga. -RR
Jón Bragi Bjarnason, prófessor
í lífefnafræói, sést hér æfa sig á
línuskautum á gervigrasinu í
Laugardal á dögunum. Jón
Bragi er mikill útivistarmaöur
en frægastur er hann fyrir rann-
sóknir sfnar á ensímum. Rann-
sóknir hans hafa vakiö mjög
mikla athygli bæöi hér heima
og erlendis. Erlendir fjárfestar
eru farnir aö styöja viö bakiö á
honum f von um miklar upp-
götvanir, ekki sfst f læknis-
fræöilegum tilgangi.
DV-mynd E.ÓI
Frá afhendingu á þolprófunarhjóli til Reykjalundar. Ámi Samúelsson situr á hjólinu
en viö hliö hans eru Lionsmenninir Kristinn, Jón Bjarni, Páll og Bjöm.
Gjöf til Reykjalundar:
Bíósýningar
til líknarmála
Rannsóknaverðlaun Telenors 1998
Telenor hefur komið á fót árlegum rannsóknaverðlaunum á sviði
fjarskipta, til að leggja áherslu á þá þýðingu sem rannsóknir og
nýsköpun hafa á þróun upplýsingasamfélagsins.
Verðlaunin eru 250.000 norskar krónur.
Verðlaunin eru veitt vegna rannsókna á breiðu fagsviði:
* Net, tæknifræði og IT-þróun
* Fjárhagssviði, á sviði markaðs- og samkeppnismála.
* Til neytendamála og þróunar neytendaþjónstu
Rannsóknaverðlaunin eru veitt einstaklingum eða rannsóknahóp-
um á Norðurlöndunum.
Tilnefningar um verðlaunahafa, ásamt rökstuðningi á ensku og
skjalfestum staðfestingum, sendist til:
Telenor FoU v/Annie Liholt, Postboks 83, 2007 Kjeller.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag, sjá http: //www.fou.telenor.no/
Frestur er til 10. febrúar 1998. Verðlaunin verða afhent í júní.
Telenor
SeyöisQöröur:
íþróttahús að rísa
DV, Seyðisfiröi:
Síðari hluta júní var hafist handa
við byggingu veglegs íþróttahúss á
Seyðisfirði - við ytri enda sam-
komuhússins Herðubreiðar. Þetta
er aðeins neðan við nýja Miðbæjar-
torgið. Umhverfis það era skóla-
byggingar, sundhöllin og mynda því
húsin öll eina heildræna mynd.
Stærð hússins er 45x26 metrar og
keppnissalurinn verður nægilega
stór fyrir allar keppnisgreinar inn-
anhússíþrótta. Hönnun og teikning-
ar era unnar hjá Arkitektum s/f -
Valdimar Harðarson og Helgi M.
Halldórsson.
Verktaki við húsið er byggingar-
fyrirtækið Töggur, Garðar Ey-
mundsson og fleiri en undirverk-
taki Guðmundur Ármannsson, Eg-
ilsstöðum. Þama vinna ávallt 8-10
menn. Verktakar eiga að skila bygg-
ingunni uppsteyptri, einangraðri og
frágenginni að utan í lok maí 1998.
Steypumótin, sem þama era not-
uð, heita DAKA-kerfismót. Þau hafa
reynst mjög vel og eiga sinn þátt í
hve vel verkinu miðar. Eftirlitsmað-
ur af hálfú verkkaupanda er Sigurð-
ur Jónsson bæjarverkfræðingur.
Garðar byggingameistari segir að
þetta sé stærsta bygging sem hann
hafi á sínum langa starfsferil verið
meistari við. Hann segir því að
þrátt fyrir mikil umsvif nú verði
allt kapp lagt á að verkið verði
myndarlega og réttstundis af hendi
leyst. -J.J.
Garöar Eymundsson og Guömundur Ármannsson verktakar f íþróttahúsinu
sem er aö rfsa. DV-mynd Jóhann