Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
enmng u
Líf á kostnað annarra
Fyrsta bók Sigurjóns Magnússonar er ekki
mikil aö vöxtnm, þetta er stutt skáldsaga, ekki
nema 120 blaðsíður. Sagan sem hún geymir er
hins vegar nokkuð umfangsmeiri en síðufjöldinn
gefur til kynna. Hún segir frá atburðum í lífi
fólks sem rjúfa að því er virðist áralanga kyrr-
stöðu og tíðindaleysi sem ekki er sagt frá nema í
endursögn en er þó sífellt nálægt í sögunni og
ljær henni aukna spennu.
Þetta er spennandi saga og vel uppbyggð lengi
framan af, sjónarhomið fylgir persónunum til
skiptis, ekki alltaf í samfelldri tímaröð, og endur-
tekningar og eyður sem þannig skapast í frásögn-
inni gera sitt til að magna upp ansi spennuþrung-
ið andrúmsloft umhverfis atburði og fólk sem við
fyrstu sýn virðist fremur hversdagslegt. Þetta er
einn helsti kostur sögunnar, og fyrir vikið verð-
ur óvenju sannfærandi og áhrifamikið þegar
þessi uppspennti hversdagur færist úr skorðum.
Persónur sögunnar hafa hver á sinn hátt beðið
ósigur í lífinu. Næturvörðurinn Jónatan lifir lifi
sínu í gegnum aðra, það eina sem gefur því gildi
er samneytið við fjölskyldu sem samanstendur af
afbrotahneigðri fyllibyttu og
foreldrum
hans, fársjúkum föður og móður sem virðist fórn-
arlamb aðstæðna sinna í sambýli við þá feðga. Þó
er engu líkara en að hún sé sá möndull sem at-
burðir sögunnar snúast um. Nafn hennar er tákn-
rænt, Alma, eða hin nærandi móðir, og kannski
má lesa þessa sögu sem tilbrigði við klassískt stef
Bókmenntir
Jón Yngvi Jóhannsson
fjölskyldudramans. Hér keppa menn um
hylli móðurinnar, enda hefúr foðurnum ver-
ið rutt úr vegi. Á jaðri þessarar fjölskyldu
er síðan kúguð vinkona sonarins, Silja.
Atvikið sem kemur atburðarás sögunn-
ar af stað er ósköp hversdagslegt og lítil-
vægt, þó að það komi róti á líf persón-
anna og fái óhemju mikið vægi í hugum
þeirra. Af þessu atviki leiðir síðan stig-
mögnun átaka sem fær að lokum útrás
í ofbeldisverki. í kjölfar þess fylgir
eins konar frelsun fyrir hluta persón-
anna, tortíming
fyrir aðrar.
í lok sög-
unnar rofar
til í lífi
tveggja af
aðalpersónunum,
en það kostar líf ann-
arra í eiginlegri og
óeiginlegri merkingu. Niðurstaða sögunnar er
því nokkuð harkaleg. Lagt er upp með persónur
sem lifa i gegnum aðra og eru þeim algerlega háð-
ar, niðurstaðan er hins vegar sú að lífinu verði
ekki lifað nema á kostnað annarra.
Eins og gefur að skilja er ekki hlaupið að því
að fá lesandann til að kyngja slíkri niðurstöðu.
Sagan er að sönnu listilega framreidd
og hvort tveggja stíll og bygg-
ing unnin af meira
öryggi en
algengt
er með
byrjenda-
verk. Þrátt
fyrir þetta
er hún ekki
nógu sterk til
að fá lesand-
ann til að
fylgja sér alla
leið og taka
endalok sögunn-
ar gild. Þess
vegna er hætt við
að endanlega skilji
leiðir með samúð
og skilningi lesand-
ans og persónum sög-
unnar.
Sigurjón Magnússon:
Góða nótt, Silja
Bjartur 1997
Odd Nerdrum
og Hrafn
Einn frægasti og umdeildasti
myndlistarmaður Norðurlanda,
norski málcirinn Odd Nerdrum, er
væntanlegur hingað til lands í dag.
Hann vinnur við heildarútlit kvik-
myndarinnar Myrkrahöfðinginn
eftir Hrafn Gunnlaugsson, málar
altaristöflur og útfærir allt sem við-
kemur prentlist og myndefni, og um
helgina verða honum sýndir stað-
imir þar sem kvikmyndin verður
tekin.
Odd Nerdrum er þó ekki ókunn-
ugur íslandi. Hann hefur komið
hingað nokkrum sinnum og sækir
hugmyndir að verkum sínum oft í
íslenskt yrkisefni og umhverfi.
Hann hefur líka lýst því yfir í fjöl-
miðlum að kvikmyndir Hraftis hafi
verið honum listrænn innblástur.
Odd hefur verið umdeildur í heima-
landinu allt frá fyrstu sýningunni
sem hann hélt þar fyrir 30 árum eða
þegar hann var um tvítugt. Hann
kærir sig kollóttan um stefnur og
strauma í samtímanum, dáir
Rembrandt og beitir tækni hans á
nútímaefnivið; til dæmis málaði
hann meðlimi hryðjuverkasamtak-
anna Baader-Meinhof í dæmigerð-
um stíl pislarvottamálverka
Rembrandts. Oft málar hann ör-
kumla menn eða likamshluta á ber-
angri, einkennilega nístandi í ein-
manaleik sínum.
Verk hans hafa fariö misjafnlega
í landa hans sem hafa gefið honum
ýmis viðumefni, kallað hann undra-
barn, spjátrung, gúrú og svikara,
allt eftir andrúmsloftinu í listinni.
Stíll hans ætti að henta kvikmynd
Hrafns vel því hún gerist á svipuð-
um tíma og Rembrandt var uppi og
er innblásin af Pislasögu síra Jóns
Magnússonar.
Á myndinni er Odd sjálfur fyrir
framan málverk sitt „Maður með
hestshaus“.
Af systmnum gleði og sorg
Fráskilin, tveggja bama móðir á fertugsaldri,
Guðrún að naflii, ákveður að skilja brokkgenga
fortíð eftir heima á íslandi og sigla. Hún ekur
gamla lúna bilnum sinum inn í mag-
ann á Laxfossi, kveður gamla
lífið og heilsar því nýja. t
gamla lífmu skilur konan
eftir þrjú úr sér gengin ást-
arsambönd, í því nýja býr
nýtt, ferskt samband við
hressan og sprækan Dana.
Þreyta og blankheit einstæðu
móðurinnar heyra nú sögunni
til, í vændum er ríkidæmi og
allsnægtir. Daninn er ástríðufull-
ur Casanóva af ríkri ætt og á nóg
af seðlum svo konan þarf ekkert að
vinna. Hún getur bara dúllað sér
áhyggjulaus heilu og hálfu dagana og
notið lífsins í botn.
Þannig er söguþráðm-inn í grófúm
dráttum í nýjustu skáldsögu Þórunnar
Valdimarsdóttur, Alveg nóg. Sett upp á
áðumefndan máta virkar þetta ósköp
þunnt, minnir á margþvælda ástarsögu-
formúlu þar sem hrjáð og ósjálfstæð kven-
persóna lendir í alls kyns hremmingum en
fínnur prinsinn að lokum og lifir hamingjusöm
það sem eftir er. En í meðförum Þórunnar
er þetta ekki alveg svona einfalt.
í fyrsta lagi er kvenpersónan hennar
hvorki hrjáð né ósjálfstæð, hún fer sín-
ar eigin leiðir og er ekki hrædd við að
taka áhættu í lífinu. í öðm lagi á
bygging sögunnar og frásagnarmáti
lítið skylt við hina hefðbundnu ást-
arsögu þar sem fátt kemur lesand-
anum á óvart. í þriðja lagi má
benda á að þegar draumaprinsin-
um í formúlusögunni hefur loks-
ins tekist að hremma hjarta
konunnar getur ekkert brugðið
skugga á sambandið. í Alveg
nóg em efasemdimar stöðug-
ur fylginautur Guðrúnar og
spumingin um hvort þetta
nýja líf sé ekki of gott til að
vera satt svifur yfír vötn-
unum alveg frá byrjun. í
Guðrúnu býr undarlegur
grunur. Torkennileg og
óþægileg vátilfinning vex stig af
stigi og þá tilfmningu fær lesandinn beint í
æð ...
Alveg nóg er að mínu mati besta bók Þórunn-
ar til þessa. Hún hefur stundum verið gagnrýnd
fyrir að teygja lopann en hér er hvert orð á sín-
um stað. í eina skiptið sem örlar á helst til mik-
illi málgleði þjónar það tilgangi - þegar Guðrún
fer á flótta inn í draumalandið til að forðast sann-
leikann; stílbragð sem gerir lesandann næstum
æran af spenningi!
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
Eitt aðalþema bókarinnar era hugleiðingar um
orsök og afleiðingu og þá staðreynd að það sem
maður sendir frá sér kemur aftur til manns á
endanum. Bæði það vonda og góða. Inn í þær
hugleiðingar fléttast aðrar sárari um sorgina,
sektina og sakleysið sem stinga í hjartað. En hér
er líka mikil gleði og magnaðar ástríður sem Þór-
unn kemur til skila í glæsilegri og krafhnikilli
konu og fallegum, vönduðum og ljóðrænum texta.
Þórunn Valdimarsdóttir:
Alveg nóg
Forlagið 1997
-------*
Spor eftir göngu-
mann
| Sérstök kynning verður á
í morgun á bókinni Spor eftir
j göngumann - í slóð Hjartar á
Tjöm eftir Ingibjörgu og Þórar-
in Hjartarbörn. Þar verður les-
ið úr bókinni milli þess sem
Tjamarkvartettinn syngur, en
hann skipa tveir synir Hjartar
i og konur þeirra.
„Pabbi var byrjaður að rita
1 æviminningar sínar en haföi
í einkum skrifað um rætumar,
1 ættir sínar, þegar hann veikt-
;; ist,“ sagði Ingibjörg í stuttu
spjalli við
DV. „Þá sá
hann að hann
myndi ekki
ljúka bókinni
svo að við
systkinin not-
uðum síðustu
mánuðina til
að taka viðtal
við hann um
| ævi hans. En
þetta er allt
I önnur bók en hann hefði skrif-
að sjálfur. Uppistaðan er úr
dagbókum hans og bréfum sem
hann skrifaði foreldrum sínum
meðan hann var erlendis í
námi, við látum texta hans lifa
; sjálfan sem mest en tengjum á
milli.
Þetta er óheföbundin ævi-
f saga og óvenjuleg nálgun því í
forgrunni em tvö síðustu árin í
lífí hans. En þó að hann liggi
i banaleguna meðan hann segir
í frá er tónninn í bókinni léttur.“
Það er útgefandinn Skjald-
| borg sem stendur fyrir kynn-
ingunni kl. 15 á kaffihúsinu
í Súfistanum, Laugavegi 18,
annarri hæð.
Frambjóðandinn
Heimildarmynd Ólafs Rögn-
valdssonar og Skafta Guð-
! mundssonar um kesningabar-
í áttu Guðrúnar Pétursdóttur í
forsetakosning-
unum 1996,
Frambjóðand-
inn, verður
sýnd í Norræna
húsinu á morg-
un, laugardag,
í kl. 13. Á eftir
verða sýndar
verðlauna-
myndirnar frá Nordisk
1 Panorama-hátíöinni í Helsinki í
f október: Vision Man eftir Willi-
am Long sem gerist í Thule á
| Grænlandi og Svensk roulette
f eftir Jan Troell sem er um
; spilafíkn.
; Þeir sem sóttu sjó-
; inn
Skjaldborg hefur gefið út
bókina Sjávarniður og sunnan-
j rok með viðtölum við fimm val-
inkunna sjósóknara, Kristján
f Þorláksson, skipstjóra og hvala-
skyttu, Andrés
Gunnarsson, vél-
stjóra og uppfinn-
ingamann, Guð-
mund Þorleifs-
son stýrimann,
Helga Jakobs-
son skipstjóra
og Guðmund
Halldórsson
skipstjóra.
Yfirleitt er ferill sjó-
; manna viðburðaríkari en
flestra annarra starfsstétta og
| þetta em hressir viðmælendur
| sem segja hispurslaust frá lit-
5 riku og fjölbreyttu lífshlaupi.
| Þeir hafa allir lagt sitt lóð á
vogarskálina, hver með sínum
hætti, á leið þjóðarinnar til
aukinna ffamfara. Jón Kr.
Gunnarsson skráði.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir