Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Blaðsíða 17
í-
I
I
I
I
:
i
i
i
i
i
i
i
I
I
>
I
I
I
>
>
>
>
i
MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 1997
)enmng
17
Gamaldags
nútímaævintýri
Erlend ævintýri gerast gjarnan i skógi. Ævintýraspek-
úlantar hafa bent á að ævintýraskógurinn sé sá staður þar
sem einstaklingurinn þarf að mæta og takast á við innviði
sálarinnar og þegar eða ef hann ratar út úr skóginum aft-
ur er sjálfsmynd hans sterkari en áður.
Gömlu íslensku ævintýrin voru flest skóg-
laus. í stað hans voru fjöll og firnindi. En tím-
arnir breytast og mennimir með. Síðustu ára-
Bókmenntir
Margrét Tryggvadóttir
tugi hafa íslendingar verið iðnir við skógrækt og það
er farið að skila sér inn í bókmenntimar því nú hafa
íslensk böm eignast ævintýri sem gerist í hérlendum
skógi.
Þetta ævintýri er bæði nútímalegt og gamaldags. Nú
tímalegt því það gerist hér og nú, en gamaldags því það
byggir á gömlum lögmálum ævintýrisins. Krakkamir
Harpa og Hrói sem eru á ferð í skóginum og furðuverum-
ar sem þau hitta þar minna ef til vill lítið á Mjaðveigu
Mánadóttur eða álfa og tröU, en þetta er alvöru ævintýri
þar sem reynir á djörfung og ráðsniUd söguhetjanna.
Leikir með tungumálið eru algengir i bókum Sigrúnar
Eldjárn. Svo er einnig hér, og vel við hæfi að þeir snúast
einkum um tré og skóga. Ein furðuvera
verksins heitir tU dæmis Kvistur og býr í
tré númer 138B, á fjórðu grein tU hægri.
Systir hans heitir Greinaflækja; hún er
ósköp rótlaus og þó hún sé mjög greina-
góð stúlka er hún ansi erfið í sambúð.
Það kemur lesendum Sigrúnar varla á
óvart að myndirnar sem prýða söguna
eru frábærar. Persónurnar eru
skemmtilegar og lifandi og skógurinn
faUegur. Þar að auki geta lesendur og
skoðendur skemmt sér við að finna
orm, tvo fugla, flugu, dverg með sítt
skegg og tvö starandi augu á hverri
síðu. Þessar verur er ekki að finna
i textanum en lífga upp á bókina og auka
gildi hennar. Þetta er sérlega skemmtUeg myndabók
sem gaman er að lesa fyrir böm.
Sigrún Eldjárn:
Kynlegur kvistur á grænni grein
Forlagið 1997
Þessa heims eða annars?
Hildur Einarsdóttir notar íslenskan samtima sem sögu
svið bókarinnar í öðrum heimi, sem fjallar um 11 ára gaml
an dreng með auðugt imyndunarafl.
Hringur er enginn venjulegur strákur. Hann
hefur sérstakt dálæti á að spinna upp ýkjusögur
um sjáifan sig og aðra og svo virðist hann vera
skyggn. í það minnsta „sér“ hann ýmislegt sem
aðrir sjá ekki. Hann gengur í gegnum vissa
erfiðleika sem fylgja flutningi af landsbyggð-
inni í borgina og missir afa sinn í ofanálag.
Þeir höfðu verið nánir og í ljós kemur að
tengslin miUi þeirra hafa síður en svo rofn-
að.
Höfundur eyðir miklu púðri í dulræna
hæfileika Hrings en það er miður að
ekkert er skilið eftir fyrir ímyndunarafl
lesanda. Þvert á móti erum við leidd
um hið nýja tUverustig afans og fáum
að kynnast „lífinú' þar með þekktum klisj-.
um. Höfundi tekst aldrei að gera þetta sannfærandi
og skýtur yfir markið með lýsingum á einhverjum tækjum
og tólum sem eru liður í tilraunum tU að koma á fjarskipta-
sambandi við jörðina. Það er engan veginn sannfærandi að
sálir sem nota hugarorkuna eina tU að svífa um geiminn
þurfi dauða hluti tU að ná sambandi við menn, enda háir
tækjaskortur ekki afa Hrings þegar hann viU tala víft hann.
Persónusköpun ber flest einkenni afþreyingarsagna.
Ekki er farið djúpt í þær og meira gert af því að lýsa at-
höfnum þeirra. Hringur er of mikiU sveimhugi tU að fá al-
mennilega samkennd lesanda. Ein undantekning er þó Dúi
sem er óknyttadrengurinn i bekknum og hefur mik-
U áhrif á líf Hrings, meðal annars með ein-
elti. Lesandi fær skýringu á hegðun hans
með sannfærandi lýsingum á skipulegri nið-
urrifsstarfsemi foreldranna á persónu hans.
Bókmenntir
Oddný Árnadóttir
Þarna tekst höfundi vel upp og hún hefði mátt gera
sér meiri mat úr hinu óhjákvæmUega uppgjöri miUi
drengsins og foreldra hans undir lokin.
I öðrum heimi er ágætlega læsileg afþreying fyrir
krakka en hið dulræna í henni nær ekki að gera hana
spennandi, til þess er hún of klisjukennd.
Hildur Einarsdóttir:
í öðrum heimi
Fróði 1997
AEG
Þvottavál, uppþvottavél og þurrkari
Jiliflloð
Lavamat Þvottavél 6200
• Oko system sparar 20% sápu,
• Tekur 5 ka
• Vindingarhraði 1000/700 s;
• Uks kerfi jafnar tau í tromlu
• Ullarvagga
• Sérstök vinding fyrir ull
og viSkvæmt tau
• Sjálfvirk vatnsskömtun
• BlO kerfi
lilboðsverði kr:
69.900;-
Favorit Uppþvottavél 6050
• tekur 12 manna leirbúnað
• 6 kerfi
• Hljóðlát aðeins 47 db (rel pw)
• hurðarbremsa
4-falt vatnsöryggiskerfi
Tilboðsverði stgr. kr:
59.90C-5
(63.100 afb.v.)
Rúsínan í pitsubotninum.
Þú kaupir þvottavél oa jbú færð
einstakt tækifæri á ao eignast ■
vandaðan AEG þurrkara
á aðeins: 39.900,-
(rétt verð 65.000,-
BRÆÐURNIR
C©1 ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Askrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
lr/////A/y/////////
%
Smáauglýsingar
550 5000
i
$