Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 1997
33
DV
Lagarfljót:
Ormurinn
enn í fel-
DV, Egilsstöðum:
„Það er úrskurður okkar að
engin mynd sé óyggjandi af
orminum. Við leituðum til
Jóns Péturssonar dýralæknis
sem hefur séð orminn og var
hann okkur sammála. Engu að
síður eru myndimar góðar og
við munum verðlauna þrjár
þær bestu að mati sýningar-
gesta með 25.000, 15.000 og
10.000 krónum," sagði Helgi
Halldórsson, bæjarstjóri á Eg-
ilsstöðum.
Hann opnaði sýningu á þeim
14 myndum sem bárust í
keppnina um mynd af þeirri
frægu skepnu Lagarfljótsorm-
inum. Keppnin mun því standa
áfram og hefur komið til álita
að hækka upphæðina um
helming, eða upp í eina milljón
króna.
-SB
Fréttir
Púlsinn á Selfossi
DV, Selfossi:
Rakarastofa Björns Inga Gísla-
sonar á Selfossi hefur um langa tíð
verið einn helsti punktur tilverunn-
ar á Selfossi og þótt víðar væri leit-
að. Bjössi rak, eins og hann er kall-
aður, er áberandi í bæjarlífmu fyrir
störf sín í íþróttahreyfingunni og i
bæjarstjóm. Hann tók ungur við
rakarastofu föður sins á Selfossi.
Hann hefur rekið hana í litlu hús-
næði þar til hann opnaði ásamt syni
sínum Kjartani rúmgóða stofu í
nýju húsi við aðalgötu bæjarins.
„Fjölskyldan hefur þjónað Sunn-
lendingum i nær 50 ár. Við höfum
tekið púlsinn á lífinu á Suðurlandi
og fáum fyrstir að frétta af viðburð-
um sem skipta máli. Það hefur nýst
mér ágætlega sem bæjarfulltrúi á
Selfossi. Ég hef reynt að koma skoð-
unum þeirra sem koma í stólinn inn
á bæjarstjómarfundina ef ég tel að
þær eigi erindi þangaö," sagði
Björn. Rakarastofan er skemmtilega
innréttuð, rúmgóð og hlýleg.
-KE
Hárskerarnir með eiginkonum í nýju stofunni. F.v. Hólmfríður Kjartansdóttir,
Björn, Hildur Lúðvíksdóttir, starfsmaður, Kjartan og Ásdís Hrönn Viöarsdótt-
ir.
DV-mynd Kristján
0056 91
Hringdu í mig
persónulegt
samtal
JON-Am
ussssssss...
JUN-AIR - þessar hljóðlátu!
SKUTUVOGI 12H • SIMI 568-6544
Bragi Björgvinsson við plöntun á Víöilæk 23. nóvember.
DV-mynd Sigrún
Egilsstaöir:
Milljón plöntur
DV, Egilsstöðum:
Haustplöntun hjá Héraðsskógum
stóð út nómember þar sem jörð var
frostlaus allan mánuðinn. Ekkert er
því til fyrirstöðu að planta allan vet-
urinn ef jörð er þið, sem ekki er þó
hægt að reikna með.
I haust hafa verið gróðursettar
324.000 plöntur en alls vom á sumr-
inu settar niður 1100 þúsund plönt-
ur. Mest var plantað af lerki, 680
þúsund, þá stafafura, 210 þúsund,
greni, 55 þúsund, birki, 27 þúsund,
ösp, 22 þúsund, og vörtubirki, 55
þúsund. -SB
STJÖRNUKORT
EFTIR
GUNNLAUG GUÐMUNDSSON
UPPLÝSINGAR í SÍMA 561-7777