Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Blaðsíða 48
Veðrið á morgun:
Slydda eða
rigning
Á morgun er gert ráð fyrir all-
hvassri suðaustanátt og slyddu
eða rigningu um mestallt land, þó
síst norðaustan til. Hiti verður á
bilinu 1 til 5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 53.
fUTANBÆJARMENN-
IRNIR HLJÓTA AÐ
\ HAFA BYRJAÐ!
Vinnin$átölur laugardaginn 6-12’97
2 5 10 16
Vinningar vinninga Vinningáupphœð
I- S“ts 2.014.766
2. 4 at 5+h p-i— 300.820
3-4a tS 65 7.450
4- 3“tS 1.945 580
Heildarvinning&upphœð
3.927.936
iFRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MANUDAGUR 8. DESEMBER 1997
Flugfélag íslands:
Kann að
hætta flugi til
Sauðárkróks
Flugfélag íslands íhugar nú að
hætta farþegaflugi tii Sauðárkróks
vegna samkeppninnar við íslandsflug.
„Þetta er í alvarlegri skoðun en
endanleg ákvörðun verður tekin í
næstu viku,“ segir Páll Halldórsson,
framkvæmdastjóri Flugfélagsins.
„Þetta er hluti af endurskiprdagningu
félagsins í kjölfar aukinnar sam-
keppni."
Sauðárkrók-
ur hefur verið
áfangastaður
hjá Flugfélagi
íslands og Flug-
leiðum áður í
um 40 ár. Páll
segir að allt of
*■ lág fargjöld eigi sök á því að fyrirtæk-
ið íhugi að fækka áfangastöðum sín-
um, og að Sauðárkrókur sé staður
sem einfaldlega komi ekki nógu vel
út. Flugleiðir hafi flutt um það bil 8
þúsund farþega á ári, en nú séu þess-
ir flutningar ekki til skiptanna upp á
sætanýtingu eftir að íslandsflug hóf
áætlanaflug þangað.
Varað var við því þegar samkeppni
í innanlandsflugi var gerð frjáls í
sumar að hún leiddi af sér fækkun
áætlunarstaða víðs vegar um landið.
-Sól.
---------------------------
Akureyri:
Unglingagengi
bórðust
DV, Akureyri:
Til átaka kom milli tveggja hópa
unglinga á Eimskipafélagsbryggjunni
á Akureyri aðfaranótt laugardags.
Talið er að talsvert á þriðja tug ung-
linga, sem flestir voru á aldrinum
16-18 ára, hafi verið viðriðinn málið
en 12 þeirra sem mest höfðu sig í
frammi voru handteknir og fluttir á
lögreglustöðina.
Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn á Akureyri, segir að á
'bryggju Eimskipafélags Islands hafi
komið til átaka en lögreglan hafi náð
að skakka leikinn og komið í veg fyr-
ir frekari átök. Ekki er vitað hvað olli
þessu uppþoti og ekki er hægt að
finna út í fljótu bragði hvemig hóp-
arnir eru samansettir, unglingarnir í
hvorum hópi fyrir sig eru t.d. ekki bú-
settir í sama eða sömu hverfum og
reyndar voru nokkrir utanbæjarmenn
í hópunum. Þó taldi lögregla að þessir
hópar hefðu átt óuppgerð einhver
mál.
Ekki er vitað til að nokkur sem
kom að þessu máli hafi þurft að leita
tO slysadeildar sjúkrahússins. Ein-
hverjir munu þó hafa verið með bar-
efli með sér og var tekið járnrör af
y .Jieinum sem fluttur var á lögreglustöð-
ina. -gk
Gleðin skein úr augurn barnanna sem voru stödd í Þjóðminjasafninu á laugardaginn þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, opnaði jólasýningu
safnsins. Að sjálfsögðu var svo dansað í kringum jólatréð og tók forsetinn virkan þátt í dansinum. DV-mynd Hari
Hugaö að verkbanni
á fiskiskipaflotann
A vegum Landssambands isl. út-
vegsmanna fer nú fram skoðana-
könnun meðal útgerðarmanna um
hvort setja eigi verkbann á fisk-
veiðiflotann. Verkbannið er hugsað
sem krókur á móti bragði þegar og
ef verkfall vélstjóra á stærstu skip-
um flotans brestur á um áramótin.
Þannig myndi allur flotinn stöðvast
í einu þegar vélstjóramir leggja nið-
ur störf í stað þess að stærstu fiski-
skipin yrðu ein bundin. Ætli útgerð-
armenn að grípa til verkbanns um
áramót verða þeir að boða það i
þessari viku. DV spurði Kristján
Ragnarsson, formann LÍÚ, um und-
irtektir útgerðarmanna við hugsan-
legu verkbanni. Hann sagði að mál-
ið væri í athugun og það yrði ljóst
síðar í vikunni hvað tekið yrði til
bragðs en vOdi að öðru leyti ekki tjá
sig um möguleika á boðun verk-
banns.
„Það hafa engar viðræður farið
fram við vélstjóra og það bendir
ekkert tO annars en að verkfaU
þeirra hefjist um áramótin," sagði
Kristján við DV í gærkvöldi. Krist-
ján sagði að kröfur vélstjóra, launa-
hæstu mannanna í flotanum, um
breytt hlutaskipti sem tryggði þeim
stærri aflahlutdeOd, væra fráleitar.
Fjölmargir útgerðarmenn hafa
fengið bréf frá skrifstofu LÍÚ þar
sem þeir eru spurðir álits á verk-
banni á aUan flotann ef af verkfaUi
vélstjóranna verður. Aðalsteinn
Jónsson, AUi riki, útgerðarmaður á
Eskifirði, sagðist í samtali við DV í
gærkvöld stuðningsmaður þess að
gripið yrði til verkbanns. Sam-
kvæmt heimildum DV munu vera
skiptar skoðanir á málinu. Flestir
hyggjast þó „fylgja foringjanum",
eins og einn þeirra orðaði það við
blaðamann DV í gær, og styðja
verkbannshugmyndina.
-SÁ/rt
Noröurlandamót í samkvæmisdönsum:
Frábær árangur íslendinga
Á laugardaginn var haldið Norður-
landamót í samkvæmisdönsum í
Rykkinn í Noregi. Frá Islandi fóru 6
pör og stóðu þau sig mjög vel. Keppt
var í latin- og standard-dönsum og var
það samanlagður árangur sem gilti. I
flokki unglinga I, sem er aldurshópur-
inn 12-13 ára, komust tvö íslensk pör
í úrslit, þau Guðni Rúnar Kristinsson
og Helga Dögg Helgadóttir sem urðu í
2. sæti og Hilmir Jensson og Ragn-
heiður Eiríksdóttir sem urðu í 4. sæti.
I flokki unglinga II sem er aldurs-
hópurinn 14-15 ára komust einnig tvö
íslensk pör í úrslit, það voru þau ísak
Halldórsson Nguyen og Halldóra Ósk
Reynisdóttir sem urðu i 2. sæti og
Snorri Engilbertsson og Dóris Ósk
Guðjónsdóttir sem höfnuðu í 4. sæti.
Björn Sveinsson og Bergþóra María
Bergþórsdóttir kepptu í
flokki fullorðinna en þau
náðu ekki inn í úrslit en
voru næsta par inn.
Hinrik og Þórunn kepptu í
flokki ungmenna sem er ald-
ursflokkurinn 16-18 ára. Þau
dönsuðu mjög vel en komust
ekki í úrslit.
-LÁ
Guðni Rúnar Kristinsson, Helga Dögg Helgadóttir
og Hilmir Jensson og Ragnheiður Eiríksdóttir.