Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997
Neytendur
Jólasteik á 174 kr.
eða 1.611 kr.
Ferskt svínalæri er langódýrasta
steikin og öllu dýrara kjöt en
hreindýralundir býðst vart í jóla-
matinn samkvæmt úttekt neyt-
endasíðunnar á algengasta kjöt-
meti íslendinga yfir jólahátíðarn-
ar.
Skammtar fyrir fullorðinn ein-
stakling er nokkuð mismunandi
eftir því hvaða kjöt á í hlut en
þumalputtareglan er 200-250 g af
beinlausu kjöti á mann. í meðfylgj-
andi grafi kemur fram hve mikið
þarf að áætla af jólasteikinni á
hvern fullorðinn einstakling og
fyrir böm er skammturinn helm-
ingaður.
Eins og sjá má er verð á hverj-
um skammti æði mismunandi. Þó
að rjúpurnar hafi lækkað í verði
frá fyrri árum er skammturinn pr.
mann enn nokkuð dýr eða 980 kr.
miðað við að stykkið kosti 490 kr.
Mun skaplegra verð er á hamborg-
arhryggi eða 400 kr. á mann. mið-
að viö 1.235 kr. kg. Þetta verð getur
hæglega orðið mun lægra með því
að kaupa ódýrari vöru en í þessari
úttekt DV var farið eftir verði á
nokkuð dýrum steikum sem ekki
1.800 krón!
1.600
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
..
I
%vað kostar jólasteikin?
• verð og magn á mann -
1.611
Á
f
980
370 380 400
174 kr.
350 g 200 -250 g 450-500 g 300-350g —2
810
•300 g 2 stykki
Svínalæri, Hangikjöt, Kalkúnn Hambhryggur Hreindýralæri
ferskt úrbeinað læri m.belnl
Rjúpur,
hamflettar
200 g
Hreindýralundir
voru á tilboði. Kilóverðið af ferska
svínalærinu í viðmiðuninni er 497
kr., á úrbeinaða hangikjötslærinu
1.645 kr., á kalkúninum 797 kr.,
hreindýralærinu 2.698 kr. og hrein-
dýralundunum 8.055 kr.
Til þess að fmna út verð á ein-
stökum skömmtum fyrir hvern og
einn var skammti fyrir fullorðna
deilt í kílóverð vörunnar.
2. Klæðið síðan fuglinn úr hamnum. Rífið haminn
í sundur eftir bringubeininu, klæðið vængstubb-
inn úr hamnum og síðan lærleggina. Endið á því
að fletta hamnum af baki fuglsins.
1. Byrjið á því að fjar-
lægja vængstubbinn
við vængliðina. Skerið
fyrst niður að liðamót-
unum, takið þá væng-
inn úr lið og skerið
vænginn af. Fjarlægið
fæturna af fuglinum á
sama hátt, skerið í
neðstu liðamótin snú-
ið fæturna úr liðnum
og skerið þá síðan af.
Skerið að lokum haus-
inn af rjúpunni, um
það bil 1 sm fyrir ofan
axlarbein.
5. Hlutið fuglinn í sundur. Rífið bringuna og
vængina frá hryggbeininu. Takið síðan lærið
úr lið við hryggbeinið og skeriö frá.
3. Fjarlægið öll innyfli úr fuglinum. Hendið
öllu nema hjartanu og fóarninu.
6. Sjóðið í sósu kraft úr hjartanu,
fóarninu og hryggbeininu. Bring-
una og leggina á að krydda með
salti og pipar, brúna á pönnu og
matreiða að hætti hússins.
Rjúpan
hamflett
Rjúpan, þessi fallegi og
gæfi fúgl, nýtur mikilla vin-
sælda fyrir hátíðarnar og
vegna þess hve verð á fugl-
inum hefur lækkað hefur
salan að sama skapi aukist.
Til þess að komast að kjöt-
inu á rjúpunni fékk neyt-
endasíða DV Kristján Þór
Sigurðsson, matreiðslu-
meistara á Argentínu, til að
hamfletta fuglinn og leið-
beina um rétta meðferð á
honum fyrir matreiðslu.
4. Skerið upp
fóarnið eftir
endilöngu og
hreinsið úr því
innihaldið
(lyng, steina og
fleira) og himn-
una sem umlyk-
ur innihaldið.
Guðrún flýgur
Það flýgur fjöllum hærra innan
Sjálfstæðisflokksins að hluti af
samkomulagi forystunnar við
Guðrúnu Péturs-
dóttur felist í því
að hún verði borg-
i arstjóraefni list-
ans í vor. Sættir
þeirra Davíðs
Oddssonar voru
innsiglaðar í
samtali sem fór
fram á skrif-
stofu hans í Ráðherra-
bústaðnum í Tjamargötu. Þaö er
táknrænt að hvorki Kjartan
Magnússon, sem náði áttunda
sætinu í prófkjörinu, né Ámi
Sigfússon höfðu hugmynd um
hvað stóð til. Meðal borgarfull-
trúa flokksins mætir hugmyndin
um Guðrúnu sömuleiðis misjöfnu
gengi.
Tvíburaamman
Ingibjörg Pálmadóttir nýtur
mikillar farsældar i einkalífi.
Þegar þingmenn ræddu á dögun-
um fæðingarorlof
feðra vildu þing-
menn taka sérs-
takt tillit til
þeirra foreldra
sem eignast hafa
fjölbura. Ingi-
björg tók þvi
vel, en það
mátti heyra á
henni að hún hefði ekki kunnað
við að taka það inn í frumvarpið
þar sem hún sjálf var nýlega orð-
in tvíburaamma.
■ ■
Oðlast aðalstign
Frétt DV um að sátt smábáta-
manna og sjávarútvegsráðherra
muni ala af sér eins konar mini-
sægreifa vakti
mikla athygli. Þar
lýsti Sighvatur
Björgvinsson
þvi að verið væri
að kaupa smá-
bátamenn inn í
kvótakerfíð til
að slæva brodd-
inn í gagnrýni
þeirra. Arthúr Bogason og
aðrir foringjar smábátamanna,
sem hafa verið þekktir fyrir
harða andstöðu gegn kvótakerfi
sægreifanna, virðast nú hafa snú-
ist á band meö fyrrum andstæð-
ingum sínum, umbjóðendum sín-
um ýmist til gleði eða ógleði.
Trillukarl nokkur á Sigluflrði,
sem sér nú fyrir sér að geta
braskað meö kvóta í skjóli aðal-
stignar, orti eftirfarandi stöku:
Framundan er ljúf og lygn,
lífsbrautin mín hærri.
Öðlast mun ég aðalstign,
eins og hinir stærri. ...
Kosningaskjálfti
Kosningaskjálfta er tekið er að
gæta meðal borgarfuUtrúa vegna
komandi borgarstjórnarkosninga.
Þannig leggur nú
meirihluti R-list-
ans áherslu á að
„sjatla“ öll þau
mál sem líkleg
eru til að hafa
áhrif á fylgi list-
ans í vor. Þar
ber hátt deilur
um byggingu háhýsis
Laugaveg sem er þyrnir í augum
ibúa en ckki hefúr enn tekist að
lægja öldur. Annað viðkvæmt
mál er fyrirhuguð þrefóldun um-
ferðar viö Skeiðarvog með teng-
ingu nýrrar Sundabrautar við
Grafarvog. Um 2000 íbúar á svæð-
inu mótmæltu í vor skriflega
áformunum. Guðrún Ágústs-
dóttir, forseti borgarstjómar,
gekk i það aö leysa málið og á
endanum var samþykkt innan
umferðamefndar að þrengja
Skeiðarvoginn til reynslu í eitt ár
íbúunum til nokkurrar kæti.
Vandinn er bara sá að aðalskipu-
laginu var ekki breytt og því veit
enginn hvaö gerist eftir eitt ár
þegar ný borgarstjórn tekur við.