Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Side 6
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 DV
6
lönd
stuttar fréttir
Króksi bítur í haus
Maður sem hefur það að at-
vinnu að glíma við krókódUa í
Flórída var fluttur á sjúkrahús
eftir að einn króksinn beit hann
í hausinn.
Jospin á niðurleið
Vinsældir Lionels Jospins,
forsætisráðherra Frakklands,
minnkuðu um
flmm prósentu-
stig í síðasta
mánuði en
Jacques Chirac
forseti krækti
sér aftur á
móti í þrjú
stig. í skoðana-
| könnun sem birtist í íhaldsblað-
| inu Figaro voru 43 prósent að-
| spurðra óánægð með Jospin.
Hörmulegt þyrluslys
Dagsgamalt barn í hitakassa
lét lífið í þyrluslysi í almenn-
ingsgarði í Bratislava, höfuðborg
Slóvakíu, í gær. Verið var að
flytja bamið á sjúkrahús.
Hlaupiö í stígvélum
ÍUm 400 manns i gúmmistígvél-
um tóku þátt í nýárskapphlaupi
i írska bænum Castlecomer og
j er það met. Úrhellisrigning setti
f svip sinn á hlaupiö.
Kúrdar fá hæli
ítölsk stjómvöld standa við
þau áform sín að veita Kúrdum
sem flýja ofsóknir heima fyrir
pólitískt hæli. Þjóðverjar óttast
að þar með sé verið að opna flóð-
gáttimar fyrir nýrri öldu inn-
í flytjenda til ESB.
Njósnað um félagana
Bretar hafa njósnað um félaga
f sína í Evrópusambandinu. Þetta
S er haft eftir fyrrum starfsmanni
leyniþjónustunnar í grein sem
birtist í blaðinu Guardian í gær.
Drottning til íslands
Margrét Þórhildur Dana-
drottning er væntanleg í einka-
heimsókn til
íslands um
miðjan maí.
Tilefnið er
opnun sýning-
ar í þjóðminja-
safninu á
hennar eigin
kirkjuveflist,
þar á meðal biskupakápum.
Gestgjafi drottningar í þessari
heimsókn verður Ólafur Ragnar
Grímsson forseti, að sögn
danska blaðsins Politiken í gær.
Þökk sé Ginu
ítalskir friðargæsluliðar sem
þjónuðu í Líbanon árið 1983
fengu að vera í friði fyrir árás-
um af þvi aö þáverandi varnar-
málaráðherra Sýrlands var skot-
inn í leikkonunni Ginu Loll-
obrigida. Ráðherrann fyrrver-
andi skýrði sjálfur frá þessu í
viðtali við dagblað í Persaflóa-
ríkinu Dubai í gær. Reuter
Hong Kong:
Beðið fyrir
sálum alifugla
Búddamunkar í Hong Kong kyrj-
uðu möntrur á gamlárskvöld í þeim
tflgangi að friða sálir þeirra rúmlega
milljón alifugla sem slátrað hefur
verið í þeim tilgangi að hefta út-
breiðslu hinnar banvænu fuglainn-
flúensu H5N1. Veiran hefur í fyrsta
sinn lagst á fólk og hafa fjórir látist
af völdum hennar.
Rúmlega 70 búddamunkar söfnuð-
ust saman framan viö altari í búdda-
munkaklaustri í Hong Kong tO að
hefja sjö daga fóstu og bænahald í
þágu hinna látnu alifugla. Ábóti
þeirra, Abbot Wing Sink, sagði við
fréttamann Reuters að hann vonað-
ist til að ein milljón búddatrúarfólks
í Hong Kong tæki þátt í þessu viku-
langa helgihaldi til að freista þess að
sefa reiðar sálir fuglanna sem drepn-
ir voru saklausir. Reuters
Herstjóri heimsækir þá sem komust lífs af úr moröárás:
Fréttamönnum er
meinaður aðgangur
Herstjórinn í Búrúndí, Pierre
Buyoya, heimsótti í gær bráða-
birgðabúðir sem hýsa þá sem
komust lífs af úr blóðugri árás upp-
reisnarmanna nærri flugvelli höfuð-
borgarinnar Bujumbura á nýárs-
dag, að því er talsmaður stjórvalda
skýrði frá í gær. Að minnsta kosti
284 týndu lífi í árásinni.
„Forsetinn heimsótti svæðið síð-
degis,“ sagði upplýsingamálaráð-
herra Búrúndís í símtali við frétta-
mann Reuters-fréttastofunnar í
Nairóbí í Kenía.
Blaðamenn í Búrúndí sögðu síð-
degis að þeir hefðu ekki enn fengið
að fara út á flugvöUinn eöa tO nær-
liggjandi svæða. Ekki var hægt að
fá fjölda látinna staðfestan af óháð-
um aðUum.
Háttsettur talsmaður hersins
sagði Reuters að 180 óbreyttir borg-
arar, 100 uppreisnarmenn og fjórir
hermenn úr her Búrúndís hefðu
fallið i árásinni.
Upplýsingaráðherrann sagði að
um 30 bændur hefðu slasast í
árásinni og verið fluttir á sjúkrahús
í grenndinni.
Starfsmenn hjálparstofnana og
ráðherrann sögðu að um tvö þúsund
bændur væru i búðunum sem for-
setinn heimsótti í gær, skammt frá
höfuðborginni.
AUt er með kyrrum kjörum í Bu-
jumbura og vegir í grennd við flug-
vöUinn eru lokaðir.
Það voru um 1000 uppreisnar-
menn af hútúættbálkinum sem
gerðu árásina i dögun á nýársdag,
þá bíræfnustu frá því Buyoya komst
til valda fyrir hálfu öðru ári. Reuter
Fjölskylda leitar skjóls undan sjóganginum á bak við klett nærri bænum Quiberon á Bretagneskaga í Frakklandi í
gær. Mikið fárviðri gekk yfir vesturströnd Frakklands snemma í gærmorgun og frekara óveðri er spáð á sunnudag.
Þrír létust í fárviðri við vesturströnd Frakklands:
Tré rifnuðu upp með rótum
og húsþök fuku út í buskann
Gífurlegt fárviðri gekk yfir vest-
urströnd Frakklands snemma í
gærmorgun. Þrir týndu lífi í um-
ferðarslysum af völdum veðursins.
Tveir til viðbótar slösuðust í veð-
urofsanum. Rafmagnslaust varð
um tíma hjá hálfri milljón manna,
að þvi er fram kemur í skeyti frá
frönsku fréttastofunni AFP.
Mikil röskun varð á járnbrautar-
samgöngum um allan vesturhluta
landsins. Björgunarsveitarmenn
höfðu ekki tölu á öllum trjánum
sem rifnuðu upp með rótum, bílun-
um sem fuku ofan í skurði og þök-
unum sem fuku út í buskann. Vind-
hraðinn varð allt að 180 kílómetr-
um á klukkustund.
Þegar veðurhamiu'inn var sem
mestur rofnuðu tvær rafmagnslín-
ur með þeim afleiðingum að fimm
hundruð þúsund manns voru án
rafmagns i tæpa klukkustund. Raf-
magn var ekki komið á í 20 þúsund
húsum undir kvöld í gær.
Ölduhæðin undan vesturströnd-
inni og í Ermarsundinu var allt að
fimm til sex metrar. Ekki var þó
vitað um neina skipsskaða. Fár-
viðri eru algeng á þessum slóðum
og árið 1987 létust nokkrir í einu
slíku.
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
New York : London S Frankfurt m Tokyo m
Dow Jones
8500 5500.
6500',
7928,18
N D J
400
300 ^
200 jj
100
0
2000 :
1500'
1000
500 jý
oi
i/t 0 N D J $/t 0 N
1640
D J
DAX-40
60000-'
6154,6 20000 4249,69
0 N D J 0 N D J
220
Nikket
Bensín 95 okt FB Bensín 98 okt.
220
210
200
190
180
1M
160 180,5
$/t 0 N D J
%
Hong Kong
Hang Seng
10722,76
D J
Hráoiía
$/
1610
ti)nna 0 D J j
1X301
Færeyski lög-
maðurinn hvet-
ur til gætni
Edmund Joensen, lögmaður
Færeyja, hvetur danska og fær-
I eyska stjómmálamenn, svo og
alla fjölmiðla,
til að fara var-
lega í sakirnar
og vera ekki
með neitt
uppistand í til-
efni þess að
1 opinber
skýrsla um
færeyska
bankahrunið verður gerð opin-
ber 15. janúar. Frá þessu segir í
danska blaðinu Aktuelt.
„Burtséð frá því hver útkom-
j an verður, vil ég biðja alla að
gefa sér tlma til að lesa innihald-
; ið gaumgæfilega áður en byrjað
i er að hrópa,“ sagði Joensen í
nýársræðu sinni til Færeyinga.
Opinberu skýrslunni um þátt
; dönsku stjórnarinnar í hruni
1 færeyska bankakerfisins er beð-
í ið með mikilli eftirvæntingu,
bæði í Færeyjum og Danmörku.
Fáni í hálfa
stöng við bú-
stað Kenn-
edyanna
Bandaríski fáninn blakti í
I hálfa stöng í gær við bústað
* Kennedyfjölskyldunnar á Þorsk-
1 höfða í Massachusetts vegna
: sviplegs fráfalls Michaels Kenn-
edys, sonar Roberts heitins öld-
! ungadeildarþingmanns.
Fjölskylda og vinir voru þar
saman komin til að minnast
| Michaels, sem lét lífið í skiða-
I slysi í Kólóradó á gamlársdag.
„Þau hafa upplifað fleiri
í harmleiki en ein fjölskylda ætti
að verða fyrir,“ sagði Steve
Rothstein sem starfaði með
Michael.
Ted Kennedy, fóðurbróðir
| hins látna, kom með eiginkonu
siimi til að kveðja frænda sinn
hinstu kveðju.
Týndi farsíminn
fannst í hundi
vinkonunnar
Rachel Murray, 27 ára breskri
| konu, brá heldur betur í brún
um jólin. Farsíminn sem hún
i ætlaði að gefa vinkonu sinni í
/ jólagjöf var horfinn undan jóla-
/ trénu, ekkert eftir nema pappírs-
riffildi.
Hún tók því til þess ráðs að
hringja í símann og viti menn,
hún heyrði daufa hringingu úr
maga hunds vinkonunnar.
‘ Hvutti hefur greinilega verið
/ orðinn þreyttur á að bíða eftir
r jólasteikinni. Farið var með
hundinn til dýralæknis sem
ákvað að best væri að láta nátt-
úruna um að skfla símanum.
Ný gjaldskrá
danska símans
ekki vinsæl
Ríkisstjórn Pouls Nyrups
Rasmussens, forsætisráöherra
j Danmerkur. hefur verið krafin
um greinar-
gerð vegna
nýrrar gjald-
skrár danska
símans. Nýja
gjaldskráin
hefur mætt
I tortryggni
bæði stjórnar-
; sinna og stjómarandstæðinga.
ENýja gjaldskráin gengur í gildi
1. apríl í vor. Þá hækkar afnota-
■ gjaldið um rúmar 600 krónur ís-
lenskar fyrir ársfiórðunginn en
verð fyrir hvert samtal lækkar.
Þetta þýðir lækkun hjá flestum
notendum en 38 prósent þurfa að
greiða meira og þingmenn eru
| óhressir með það, segir i danska
blaðinu Politiken.