Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Blaðsíða 36
44
fréttir
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 JjV
Kennaraháskóli íslands:
Fjórir skólar
sameinaðir í einn
Y .
- samtals um 1.200 stúdentar í skólanum
Ný lög um Kennaraháskóla ís-
lands voru samþykkt á Alþingi 18.
desember sl. Meö lögunum er starf-
semi Fósturskóla íslands, Iþrótta-
kennaraháskóla íslands, Kennara-
háskóla íslands og Þroskaþjálfa-
skóla íslands sameinuð frá og með 1.
janúar sl. í einum háskóla. Nafn
hins nýja háskóla verður Kennara-
háskóli íslands.
í hinum nýja háskóla verða alls
um 1.200 nemendur fyrir utan um-
fangsmikið starf á sviði endur-
menntunar. Starfsmenn háskólans
verða um 140 talsins. Hugmyndir
um aukið samstarf eða sameiningu
þessara menntastofnana, sem allar
hafa það meginmarkmið að mennta
sérhæft starfsfólk til kennslu-, þjálf-
unar-, uppeldis- og umönnunar-
starfa, hafa verið að mótast á und-
anförnum árum.
í nefndaráliti um eflingu uppeld-
is- og kennaramenntunar á íslandi,
sem menntamálaráðherra gaf út í
mars 1995, segir m.a. að „slík sam-
eining myndi efla faglegt umhverfi
þessarar menntunar og bæta nýt-
ingu kennslukrafts, húsnæðis og
annarra aðfanga." í athugasemdum
við frumvarp til laga um hinn nýja
háskóla kom fram víðtæk samstaða
um sameininguna.
-RR
Nýir umboðsmenn
frá 1. janúar 1998
Mosfellsbær
Guöfinna Brynjólfsdóttir
Hlíðarási 3
Sími 566 7344
Reyöarfjöröur
Torfi PálmarGuðmundsson
Árgötu 7
Sími 474 1488
Skagaströnd
fris Valgeirsdóttir
Fellsbraut 4
Sími 452 2714
Ólafsvík
Inga Jóhanna Kristinsdóttir
Grundarbraut 44
Sími 436 1251
Bolungarvík
Guðrún Ármannsdóttir
Miðstræti 10
Sími 456 7481
Búöardalur
Lilja Björg Ágústsdóttir
Dalbraut 4
Sími 434 1239
Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri Víkurprjóns, í kjallara hússins að
reyna aö bjarga hlutum upp úr vatninu. Dv-mynd NH
Flóð og óveður í Vík
DV, Vflc_____________________________
í óveðrinu sem gekk yfir landið
30. desember hlóðst mikill sandur
fyrir útfall Víkurár og teppti rennsli
hennar til sjávar. Víkurá, sem renn-
ur um Vík í Mýrdal, er að öllu jöfnu
vatnslítil bergvatnsá en þegar útfali
hennar stíflast myndast stórt lón
innan við sandrifið. Á síðdegisflóð-
inu var há sjávarstaða og mikið
brim þannig að sjór flæddi inn yfir
sandrifið með þeim afleiðingum að
sjóblandað vatn flæddi langt út fyr-
ir farveg árinnar.
Sjórinn flæddi upp á göturnar
sem næstar eru ánni að vestanverðu
og einnig varð Víkurskóli umflotinn
vatni. í iðnaðarhverfinu flæddi inn í
kjallara verksmiðjuhúss Víkur-
prjóns. Slökkvilið Víkurbúa dældi
vatninu úr kjaliaranum með öflug-
um dælum.
„Þetta gerðist mjög snögglega,
einum til tveimur tímum áður var
farið að sjatna verulega í ánni frá
því fyrr um daginn en á kvöldflóð-
inu flæddi sjórinn óhindrað og mjög
hratt inn yfir þannig að ekki var við
neitt ráðið,“ sagði Þórir Kjartans-
son, framkvæmdastjóri Víkur-
prjóns.
Um leið og sjávarstaðan lækkaði
var hafist handa við að moka rennu
fyrir hana út í sjó. Þegar fjaraði
lækkaði fljótt í lóninu fyrir innan
sandrifið og á gamlársmorgun var
áin orðin eðlileg á ný. Þetta er með
mestu sjávarflóðum sem orðið hafa i
Víkuránni á auðri og snjólausri jörð
í mörg ár.
-NH
y Sjúkrahúsin í Reykjavík:
Ofremdarástand
Unglæknar höfnuðu drögum að
nýjum ráðningarsamingum sem
voru lagðir fyrir þá í gær. Algjört
ófremdarástand er að skapast á
sjúkrahúsum í Reykjavík aö mati
lækningaforstjóra spítalanna sem
sendu frá sér sameiginlega yfirlýs-
ingu í gærkvöldi.
í yfirlýsingu lækningaforstjór-
anna segir að þar sem unglæknar
hafi ekki verið í vinnu í hálfan mán-
uð hafi skapast mjög alvarlegt
ástsmd á sjúkrahúsunum sem ekki
geti lengur sinnt skyldum sínum að
fuliu. Þá geti sjúklingar ekki vænst
þess að komast að í aðgerðir að
óbreyttu.
-SÁ
Hæstiréttur:
Pátur Hafstein
forseti
Pétur Kr. Hafstein hæstaréttar-
dómari hefur verið kjörinn forseti
Hæstaréttar. Hann tók við embætti
á nýársdag og gegnir því til næstu
áramóta.
Varaforseti Hæstaréttar á árinu
verður Garðar Gíslason. Kjörtíma-
bil stjómar réttarins er eitt ár.
-SÁ
Pétur Kr. Hafstein, forsetl Hæstarétt-
ar.