Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Side 6
6 LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 lönd stuttar fréttir Viðvörun frá Burma Aung San Suu Kyi, leiðtogi lýð- ræðissinna í Burma, hefur hvatt erlend fyrirtæki til að fjárfesta ekki í landinu þar sem herstjórn- in hagnist á þvi. Selveiðar á ný Kanadískir selveiðimenn eru komnir í startholurnar fyrir árleg- ar vorveiðar sínar á ísbreiðunum undan Atlantshafsströnd landsins. Andstæðingar veiðanna eru þegar famir að brýna raustina. Saknar Díönu enn Tony Blair, forsætisráðherra | Bretlands, sagði í viðtali við breska blaðið Daily Mir- ror í gær að hann saknaði enn Díönu prinsessu. Díana lést sem kunnugt er í I bílslysi í París í Blair sagði að það I fyrrasumar. : hefði verið mikil upplifun að vera ; forsætisráðherra á þeim tíma er prinsessan lést. Edinborg hafði betur Edinborg hafði betur en Glasgow í kapphlaupinu um að halda fyrsta j fund nýendurvakins skosks þings í I maí 1999. Alsírsljórn hafnar Stjórnvöld í Alsír hafa hafnað beiðni Mary Robinson, yfirmanns mannréttindamála hjá SÞ, um að l starfsmenn samtakanna fái að | rannsaka fjöldamoröin í landinu. Of hvítskúrað Eigandi karríveitingastaðar í norðurhluta Lundúna var heldur óhress þegar honum var sagt að veitingahúsið væri aðeins of hreint að utan. Hann var þá nýbúinn að eyða tiu milljónum króna í skúr- 1 ingar en húsið var þá ekki í stíl við næstu hús. Vertinum er gert að klína sóti á húsið en hann hefur neitað til þessa. Delon er hættur Franski stórleikarinn, hjarta- i knúsarinn og harðjaxlinn Ala- in Delon, er bú- inn að fá nóg af kvikmyndaleik, Ihættur eftir flöru- tíu ára farsælan feril. „Ég hef sagt allt sem mig lang- aði til að segja i kvikmyndum," sagði Delon í gær. Vínið á ábyrgð prinsins Hinrik prinsmaður i Danmörku, ber einn ábyrgð á vínframleiðslu sinni á ættaróðalinu í Frakklandi. Fjármál vínbúsins eru alveg aöskil- in fjármálum hirðarinnar, segir yf- irmaður fjármála drottningar. Verkfall í Calais Umferð um höfnina I Calais stöðvaðist í gær vegna verkfalls sjómanna og hafnarverkamanna.. Suharto Indónesíuforseti: Vill dollara- tryggja rúpíuna Suharto, forseti Indónesíu, hefur að sögn Steve Hanke, prófessors við Johns Hopkins-háskólann, hafnað áætlun Alþjóðabankans eins og hún er nú, um endurreisn efnahags landsins, enda hafi áætlunin engan árangur borið að hans mati. Hanke bætti við að Suharto sé þó tilbúinn að framfylgja áætluninni ef annað fylgdi með henni, svo sem það að sérstakt gengisráð skuli stýra gengi rúpíunnar með því að tengja hana við Bandaríkjadollar og tryggja gengi hennar að fullu með sérstökum dollaravarasjóði. Hanke segir að Suharto muni halda fast við þessa skoðun sína svo fremi sem iðnríki Vesturlanda hafi ekkert skárra fram að færa. Suharto bauð Steve Hanke til sín í febrúar og eftir fund þeirra út- nefndi hann Hanke sem sérstakan efnahagsráðgjafa sinn. -Reuter Þýska lögreglan á í höggi viö kjarnorkuandstæðinga: Hlekkjuðu sig við brautarteina Þýsk óeirðalögregla fjarlægði þús- undir mótmælenda sem reyndu að koma í veg fyrir að lest með kjarn- orkuúrgang kæmist leiðar sinnar. Lestin var á leið frá suðurhluta Þýskalands til bæjarins Ahaus við hollensku landamærin. Mótmælendur höfðu margir hverjir hlekkjað sig við brautartein- ana en lögreglan skar þá lausa og handtók mörg hundruð manns. Um þrjátíu þúsund lögregluþjón- ar voru kallaðir út um land allt til að standa vörð um lestina sem flutti kjarnorkuúrganginn. Þeim tókst þó ekki að koma í veg fyrir að hún yrði stöðvuð aðeins tíu kílómetra frá upphafsstað þar sem mótmælendur voru hlekkjaðir við teinana. Lest- inni var síðan beint inn á annað spor þar sem einn mótmælenda hafði steypt sig fastan við teinana. Einn lögregluþjónn sem stóð vörð við teinana í suðurhluta Þýskcdands lést þegar hann varð fyrir annarri lest. Löng hefð er fyrir andstöðu við kjarnorku í Þýskalandi. Um þriðj- ungur raforku landsins er fram- leiddur með kjarnorku. „Ég held ekki að okkur takist að stöðva lestina með kjarnorkuúr- ganginum en almenningur mun sjá andstöðu okkar við flutninginn," sagði bóndinn Karl Lindermann. „Við viljum gera það ljóst að svona flutningar eru hættulegir og andstaða almennings er of mikil til að hægt sé að réttlæta þá.“ Kjamorkuúrgangurinn sem um ræðir vegur 60 tonn og hann er í sex stórum stálgámum. Flutningamir hafa einnig valdið pólitískum deil- um. Kosningar verða haldnar í Þýskalandi í haust. Angela Merkel umhverfisráð- herra sagði að flutningarnir á kjamorkuúrganginum væru örugg- ir. Hún sagði að um ókomin ár yrði nauðsynlegt að senda svona úrgang með jámbrautum. Wolfgang Clement, jafnaðarmað- ur og væntanlegur forsætisráðherra í Norður-Rín-Vestfalíu þar sem úr- ganginum verður komið í geymslu, sagði aftur á móti að flutningarnir væru ögrun og hreint brjálæði. Lögreglan sló skjaldborg um Ahaus til að koma í veg fyrir að sex þúsund mótmælendur kæmust þangað. Samt sem áður tókst hund- ruð þeirra að koma sér fyrir á brautarteinunum. Lögreglan sótti þá vatnsbyssur og sprautaði á mót- mælendur. Mótmælendur höguðu sér flestir friðsamlega. „Þetta er algjör ringulreið," sagði Andre Obermeier, talsmaður hóps kjamorkuandstæðinga. Þýskir kjarnorkuandstæðingar efndu til mikilla mótmæta í gær til að reyna að koma í veg fyrir flutning kjarnorkuúr- gangs. Mótmælendur settust meðal annars á brautarteina nærri kjarnorkugeymslustaðnum i Ahaus. Danskir íhaldsmenn: Engell felldur í þingflokkinum Hans Engell var felldur úr emb- ætti þingflokksformanns danskra ihaldsmanna í gær með tíu atkvæð- um gegn sex. í hans stað var kjörinn Helge Adam Moller. Pia Christmas-Moller verður for- maður í stað Pers Stigs Mollers sem sagði af sér í fyrradag i kjölfar kosn- ingaósigursins á dögunum. Pernille Sams verður áfram varaformaður flokksins. Per Stig Maller sagði eftir fund þingflokksins í gær að formanns- skipti hefðu orðið til að skapa ró í þingflokknum. „Flokkurinn getur ekki búið leng- ur við það að það séu tveir armar í þingflokknum," sagði Moller. Hann sagði að Helge Adam Moll- er myndi lánast að koma aftur á ró í þingflokknum, meðal kjósenda og trúnaðarmanna flokksins. Hans Engell harmaði að sér skyldi vera velt úr sessi. Hann hafði vonað að nýr þingflokksformaður yrði ekki valinn fyrr en á fundi framkvæmdastjórnar flokksins í næstu viku. „Ég er að sjálfsögðu vonsvikinn yfir úrslitunum," sagði Engell vil Ritzau-fréttastofuna. Kauphallir og vöruverð erlendis 1 New York 8500 Dow Jones ^ 8000 ( 7500 ÍUW ; 65001 8775,65 3 J F M London | 6000 FT-SE100 J 5500 lr 5000 ( 5997,9 Frankfurt DAX-40 D J F M Hong Kong Hang Seng 20000 ? 15000Í 10000 500005 11446,04 F M 400 300 200 9 100 2 0 $/t D 266,80 'j f' m Kaffi 2000 ■MBMMMMMi j 1500 1000 ; 500 1735 Bensín 95 okt. Bensín 98 okt. Hráolía 190 180 170 160 150 | 140 r 130 g 120-5 $/t D mh F M Esza Chirac varar við vatnsskorti í heiminum Jacques Chirac Frakklands- forseti varaði í gær við því að sí- vaxandi ferskvatns- skortur stofn- aði heimsfrið- inum I hættu. Hann hvatti um leið til stofnunar al- þjóðlegrar stofnunar sem hefði það hlutverk að nýta takmörkuö vatnsból sem best. Ráðherrar og embættismenn frá 84 löndum sitja fund um mál þetta í París. Það var Chirac sjálfur sem boðaði til fundarins. „Vatn er uppspretta lífsins en allt of oft er það uppspretta átaka,“ sagði Chirac í ræðu á fundinum. Hann visaði í skýrsl- ur SÞ þar sem segir að deilt sé um vatn á sjötíu stöðum í heim- inum. Norðmenn hálf- drættingar á við íslendinga DV, Osló: Meðan hver íslenskur sjómað- ur dregur tvo fiska dregur norskur starfsbróðir hans einn fisk. Þetta er ljóst af uppgjöri fyrir fískveiðarnar á síðasta ári þegar 16.000 norskir sjómenn báru að landi aíla að verðmæti 94 milljarða íslenskra króna. Það er álíka verðmætm- afli og 8.000 islenskir sjómenn fengu í sinn hlut á árinu. Norðmenn veiða hins vegar nokkru meira í tonnum talið. Ársaflinn í Noregi í fyrra varð 2,8 milljónir tonna. Á íslandi varð aflinn nær 2,2 milljónir tonna. Ástæðan fyrir að islenski aflinn er verðmætari liggur einkum í að á íslandi berst meira af rækju og skelfiski á land en í Noregi. Munurinn á íslenskum og norskum sjávarútvegi sést líka á því að Norðmenn gera út 8.600 skip til fiskveiða en íslensk fiskiskip eru um 2.100. Meðalafl- inn á norskt fiskiskip er því rif- lega 300 tonn en ríflega 1000 tonn á ísglenskt skip. -GK Frönsk yfirvöld komin í klám- myndagerð Franska heilbrigðisráðuneyt- ið er komið á kaf í klámmynda- gerð. Ráðuneytið hefur lagt fé í framleiðslu fimm stuttmynda sem eiga að reka áróður fyrir smokkanotkun. Það er liður í baráttu yfirvalda gegn alnæmi. Fyrsta myndin veröur sýnd á sjónvarpsstöðinni Canal Plus um miðnæturbil þann 4. apríl næstkomandi, næst á undan mánaðarlegri klámmyndasýn- ingu stöðvarinnar sem nýtur mikilla vinsælda. Sérsveitirnar ekki farnar frá Kosovohéraði Sérsveitir serbnesku lögregl- unnar hafa ekki verið kallaðar burt frá Kosovohéraði eins og Vesturveldin hafa krafist. Rúss- ar koma engu aö síður í veg fyr- ir að vopnasölubanni sé komið á júgóslavneska sambandsríkið tU að fá það tU að hlýða. Háttsettur bandarískur embættismaður skýrði frá þessu í gær. Embættismaðurinn sagði að bandarískum stjórnvöldum hugnaðist ekki afstaða Rússa, sem eru hefðbundir bandamenn Serba, en áfram yrði þó haldið að reyna að fá vopnasölubannið samþykkt. Reuter > I í í > >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.