Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Side 25
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998
sviðsljós
Kathleen Wiíley vildi geta flakkað um Hvíta húsið:
Þráði nærveru Clintons
Ekki var fyrr farið að fenna yfir
spor lærlingsins Monicu Lewinsky
en fram á sjónarsviðið skaust sjáif-
boðaliðinn Kathleen Willey.
Þessar tvær konur eiga það sam-
eiginlegt að hafa orðið fyrir meintri
kynferðislegri ágengni Bills Clint-
ons, forseta Bandaríkjanna. Munur-
inn er að visu sá að Monica hefur
ekki viðurkennt opinberlega ástar-
samband við forsetann en Kathleen
heldur því aftur á móti fram að for-
setinn hafi káfað á sér.
í samtölum sem fréttamenn í
Bandaríkjunum hafa átt við
fyrrum samstarfsmenn
Kathleen Willey 1 Hvíta
húsinu kemur fram að
hún hafi verið ákaflega
heilluð af forsetanum.
Hún virðist hafa þráð
að vera nálægt Clinton.
Það minnir mjög á frá-
sagnirnar af Monicu
Lewinsky þegar meint
ástarsamband hennar
og Clintons var sem
mest í fréttunum fyrir
skömmu. Ekki þykir þó
ljóst hvort Kathleen hafi
laðast að forsetanum sem
manni eða hvort það voru
völdin sem heilluðu.
Ósköpin hófúst þann 29.
nóvember 1993. Kathleen
kom þá í Hvíta húsið
til að leita ásjár hjá
forseta sínum. Fjár-
mál fjölskyldu hennar
vora öll í kalda koli
og hún þurfti hjálp.
Kathleen fór með
Clinton inn á skrif-
stofu hans i Hvíta
húsinu. Þau vora þó
varla fyrr komin inn
úr dyranum en hann
fór að káfa á henni, að
því er hún heldur
fram. Clinton sjálfur hefur vísað
þessum ásökunum alfarið á bug.
Eiginmaður Kathleen, lögfræð-
ingurinn Edward E. Willey Jr.,
framdi sjálfsmorð sama dag og hún
hitti Clinton í Hvíta húsinu. Ástæð-
an vora áðumefndar fjárkröggur.
Hann hafði meðal annars svikið fé
út úr sam-
starfsmönnum sínum og þvingað
hana til að skrifa upp á plagg þar
sem hún lofar að borga skuldina,
um tuttugu milljónir króna.
Kathleen Willey er fædd og uppal-
in í borginni Richmond í Virginíu.
Hún stundaði háskólanám um eins
árs skeið en fór síðan að vinna fyr-
ir sér, meðal annars sem flugfreyja
hjá TWA.
Valdamiklir menn virkuðu eins
og segull á Kathleen, að sögn kunn-
ugra.
„Kathy fannst gaman að vera
innan um þá sem völdin
hafa,“ segir P.T. nokkur
Hastings, gamall vinur eig-
inmanns hennar.
Gore varaforseti hafði
það fyrir sið að heim-
sækja vin sinn Ed Willey
þegar hann átti leið um
Richmond. Það varð til
þess að Kathleen gerðist
ákafur stuðningsmaður
Clintons í kosningabarátt-
unni 1992.
Skömmu eftir að Clinton sór
embættiseiðinn öðru sinni fékk
Kathleen starf sem sjálfboðaliði á
einni skrifstofu Hvita hússins.
Og fljótlega fór hún að
gefa í skyn við aðra
starfsmenn að hún og
eiginmaður hennar
væra nánir vinir for-
setans. Og fljótlega fór
að bera á því að hún
var ekki alls kostar
ánægð með það sem
hún hafði, vildi fá að
koma víðar við í
Hvíta húsinu. Síðar
fékk hún launað starf
í Hvíta húsinu en það
entist þó ekki lengi.
En þótt Kathleen
hætti að starfa í Hvíta
húsinu gleymdist hún
ekki alveg. Hún var skipuð í opin-
berar sendinefndir á tvær mikil-
vægar alþjóðlegar ráðstefnur, aðra í
Kaupmannahöfn en hina í
Indónesíu, þótt ekki hafi allir kom-
ið auga á hvers vegna hún varð fyr-
ir valinu.
Núna býr Kathleen rétt utan við
Richmond, í litlu húsi í eigu fyrir-
tækis sem tvö uppkomin börn henn-
ar eiga meirihluta í.
Bréf til Clintons
Kæri forseti.
Mig langaði bara til að óska
þér gleðilegra jóla. Ég get aðeins
gert mér í hugarlund hvað þú
hlýtur að hlakka til fyrstu jól-
anna þinna hér.
Þakka þér fyrir tækifærið að
fá að vinna i þessu mikla húsi.
Að loknu þessu sætbeiska ári,
verður fyrsta áheit mitt fyrir ár-
ið 1994 að leita að alvörastarfi.
Ég vona að ég finni það.
Gleðileg jól,
Kathleen
Kæri forseti.
Til hamingju með frábæran
sigur 5. nóvember. Við eram
lánsöm að þú leiðir okkur inn í
21. öldina. Mér þykir þetta leitt
með Virginíu en það munaði þó
ekki miklu, eða hvað?
Ég man svo vel eftir fagnaðar-
látunum kosningakvöldið í Little
Rock árið 1992. Þá fundum við
öll fyrir nýrri von og mörg okk-
ar bera þá tilfinningu enn í
brjósti.
Ég óska þér alls hins besta
næstu fjögur árin.
Með ástúð,
Kathleen
Sannkölluð veisla
ÍSLEHSKUR
LANDBUNAÐUR
Matvælasýningin Matur '98 er haldin í íþróttahúsi
Breiðabliks, Smáranum og Hótel- og matvælaskólanum við
Digranesveg í Kópavogi dagana 20. - 22. mars. Sýningin er
stærstg sýning sinnar tegundar á íslandi og á henni er að
finna nánast allt sem tengist mat og drykk, auk þess sem
haldnar eru keppnir á vegum fagfélaga í matvælaiðnum.
Barnapössun á staðnum.
Opið í Smáranum laugardag og sunnudag frá kl. 12:00 - 19:00.
111
FEWOAMÁIASKÓUWW
HÓTEL- OO MATVÆLASKÓLJNN
A
og í Hótel- og marvælaskólanum laugardag frá kl. 12:00 - 19:00.
Verð aðgöngumiða 500 kr.
Ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum.
Komið og kynnistþví besta í mat og drykk á íslandi.
Matur
matur • ferðir • menning
25
f Stillanleg sætishæð 40-53 sm.
Fæst með bláu eða dökkgráu
áklæði.
Stillanleg sætishæð 38-49 sm.
Fæst með svörtu eða grænu
áklæði.
Stillanleg sætishæð 44-54 sm.
Fæst með gulu eða dökkgráu
áklæði.
200
Kfl.
ÁN ftflMfl
11.500 Kfl.
Stillanleg sætishæð 39-54 sm.
Fæst með svörtu, gráu, dökk-
bláu, dökkgrænu, dökkrauðu
eða bláu áklæði.
.400KR
ÁM flRMR
flN flflMfl
24.5OO KR.
jasdempari stillir sætishæð frá
40-52 sm. Fæst með svörtu, gráu,
dökkbláu, dökkgrænu, dökk-
rauðu eða bláu áklæði. Fæst
einnig með leðri á 32.400 kr.
FRABfERAR
FERMINGflR-
GJflFIR
JTORGOTT VERÐ, HONNUN,
ÚRVRL 00 N0TRG1LD1
Góð vinnuaðstaða getur skipt
sköpum um árangur.
Skrifborðsstólamir í IKEA eru
þægilegir, vandaðir og á mjög góðu
verði. Þess vegna er engin spuming
hvar þú kaupir stólinn. Skrifborðs-
stólamir í IKEA henta einnig mjög
vel til fermingargjafa.
Láttu okkur taka frá sœti fyrir þig.
1 ®
- fyrir alla muni