Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 andaríkjunum - með forsíðumyndir á heimsfrægum tímaritum: ipu til I helgarviðtalið 41 metorða Anna ásamt eiginmanninum og Ijósmyndaranum Guy Aroch. Þau giftu sig i' Las Vegas um síðustu jól en heljarinnar brúðkaupsveisla verður haldin á Manhattan í næsta mánuði. Hljómsveitin Wallflowers, með Jacob Dylan fremstan í flokki, son Bobs Dyl- ans. Hann er fyrir miðju á myndinni sem Anna tók fyrir Newsweek. afa prýtt að undanförnu. Newsweek er i fjölmargra mynda sem Anna tók fyrir fina og fræga fólkið? Anna sagði það vera ágætt nema hvað hún væri tölu- vert háð skoðunum umboðsmanna þessa fólks. Þeir vildu hafa hlutina svona og svona og frelsi ljósmyndar- ans væri því takmarkað. „Ég þarf að bera allar rnínar hug- myndir undir þessa umboðsmenn en eftir því sem þú myndar þetta fólk oftar þá lagast þetta. Annars hef ég ekki svo mikla reynslu af þvi að mynda fræga fólkið. Maðurinn minn gerir miklu meira af því,“ sagði Anna og var þá mál til komið að kynna hennar „betri helming". Það er ljósmyndari líka, Bandaríkjamað- ur að nafni Guy Aroch. Þau hafa þekkst lengi og kynntust þegar þau voru saman í School of Visual Arts. Þau gengu í það heilaga um síðustu jól, voru stödd í Las Vegas þegar þau létu pússa sig saman í borgaralegri giftingu. Stungu af til Las Vegas „Hann er gyðingur en ég er krist- innar trúar. Við erum hvorugt okkar verulega trúuð og ákváðum bara að „stinga af‘ til Las Vegas,“ sagði Anna en þau hafa hins vegar ákveð- ið að svíkja ættingja og vini ekki um brúðkaupsveisluna. Hún verður haldin í byrjun aprfi á Manhattan í New York með pompi og prakt. Guy kláraði skólann í New York einu ári á undan Önnu og var fljót- lega kominn i góð verkefni. í dag er hann einkum í tískuljósmyndun fyr- ir heimsþekkt tímarit og gerir mikið af því að mynda fræga fólkið, aðal- lega leikara og poppstjörnur. „Mér finnst hann auðvitað rosa- lega góður ljósmyndari og tel að hann sé að skipa sér í röð bestu ljós- myndara í Bandaríkjunum. En þetta er auðvitað mjög persónulegt mat og kannski ekki hlutlaust," sagði Anna og hló. / Ekki bara myndatökur Aðspm-ð hvort heimilislífið væri ekki sérstakt þegar þau væru bæði ljósmyndarar, og fjarvistir miklar, sagði Anna svo ekki vera. Meira flakk væri að vísu á Guy en líklega sæju þau hvort annað oftar en fólk Ein fjölmargra tískuljósmynda sem Anna tók fyrir febrúarhefti Earns- haw’s. sem ynni fimm daga vikunnar frá klukkan níu til fimm. „Þó að við séum bæði með um- boðsmenn þá rekum við okkar skrif- stofu heima. Það er oft í nógu að snú- ast fyrir utan sjálfa ljósmyndunina. Ef þú ert t.d. að mynda frægt fólk þá er hægt að endurselja myndirnar eft- ir að einkaréttur tímaritsins sem pantaði þær fyrst er liðinn. Þannig gat ég farið að selja myndimar af Miu Farrow þremur mánuðum eftir að Newsweek hafði birt þær.“ Líður vel í New York Þrátt fyrir miklar annh hafa þau Anna og Guy gefið sér tíma til að sækja ísland heim. Guy hefur tvisvar sinnum komið hingað og Anna sagði hann mjög hrifinn af landinu. Fyrir dyrum stæði að koma hingað næsta sumar - og auðvitað yrðu myndavél- ar með i för. Það liggur ekki fyrir að þau fari að flytja til íslands. Á meðan þau gera það gott í ljósmyndun vestra er eng- in ástæða til þess. „Við höfum skapað okkur líf hér. New York er skemmtileg borg, með fullri virðingu fyrir fallegri fóstur- jörðinni. Hérna líður okkur vel,“ sagði Anna og ekki var að heyra mikinn íslandssöknuð i röddinni. Hún sagðist halda tengslunum með því að koma reglulega til íslands auk þess sem fjölskylda hennar væri dug- leg að heimsækja hana út. Anna er dóttir Pálma R. Pálmason- ar, verkfræðings hjá Sigurði Thoroddsen, og Ágústu Guðmunds- dóttur, prófessors í lífefnafræði við matvælafræðideild Háskólans. Hún er í miðjunni af þremur systkinum. Bróðir hennar, Guðmundur, er í framhaldsnámi í lögfræði í Banda- ríkjunum, og systir hennar, Ingi- björg Ýr, er í Kennaraháskólanum. Aðspurð hvort það hafi aldrei stað- ið til að feta í fótspor foreldranna sagði Anna engan þrýsting hafa ver- ið þar á. „Eini „þrýstingurinn" var að gera það sem við hefðum áhuga á. Ég hafði aldrei áhuga á verkfræði eða raunvísindum. Foreldrum mínum fannst það bara gott mál þegar ég fór í íslensku í Háskólanum og síðan í ljósmyndunina. Það sama gilti um nám minna systkina," sagði Anna sem fullu nafni heitir Anna Theo- dóra. í Bandaríkjunum notar hún nafnið „Anna Palma“ og við skulum leggja það á minnið þegar við flettum tímaritunum framvegis. Áfram á minni braut Að lokum fannst okkur við hæfi að spyrja Önnu um markmið og drauma ljósmyndarans. Hún er hóg- vær að vanda og sagðist ekki hugsa mikið um framtíðina. „Ég hef passað mig á að hugsa ekki of langt fram í tímann. Ég hugsa fyrst og fremst um að gera hvert verkefni eins áhugavert og ég mögulega get. Þetta er eins og með aðrar listgreinar að þú getur lítið annað en haldið áfram á þinni braut. Stöðugt er hægt að lagfæra og breyta hlutunum. Markmið mín í ljósmynd- un eru að halda áfram að læra og halda áfram að taka myndir." -bjb Anna hafði gott auga - segir Gunnar V. Andrésson. Ijósmyndari DV „Anna réðist til starfa hér á DV sem kompu-starfs- maður, til aðstoðar Ijós- myndurum blaðsins. Hún var fljót að tileinka sér þau vinnubrögð sem ætlast var til af henni og gekk vel til verka. Anna er hæg og elskuleg stelpa og ég ætlaði henni aldrei að vera úti á vettvangi að taka æsimynd- ir. Þegar hún síðan mund- aði vélina komu ávallt góðar mynd- ir frá henni. Hún hafði gott auga,“ sagði Gunnar V. Andrésson, ljós- myndari DV, og sýndi okkur úr myndasafni eina þá fjölmörgu fréttamynda sem hún tók fyrir DV. Myndin var tekin 1 rallkeppni sum- arið 1991. -bjb
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.