Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Síða 35
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 43 Reyklaust flug Um 95% allra flugferða á veg- um breska flugfélagsins British Airways eru nú reyklaus. Um næstu mánaðamót tekur allsherj- ar reykingabann gildi hjá flugfé- laginu og svo mun einnig verða hjá svissneska flugfélaginu Swissair en þar tekur bannið ekki gildi fyrr en þann 1. júní næst- komandi. New York á hærra plan Eftir að hafa verið meinsemd Bandaríkjanna árum saman er New York loksins farin að fá betri einkunnir. Nýlega var gerð skoðanakönnun á vegum The New York Times um borg- ina sem borin hefur verið sam- an við álíka könnun sem gerð var árið 1996. Þar kemur meðal annars í ljós að helmingi færri segja nú að glæpir séu helsta einkenni borgarinnar. Flestir sögðu um hana: „Hún er stór!“ ímynd borgarinnar virðist hafa batnað til muna og sagði 61% aðspurðra að borgin byði af sér góðan þokka miðað við 43% árið 1996. Yfir 40% sögðu þó að New York væri ekki fýsilegur staður til að búa á. Opið á kvöldin Það hefur oft farið í taugarn- ar á ferðamönnum sem ferðast til Ítalíu hve helstu söfn lands- ins eru opin á mismunandi tím- um og ekki hægt að treysta á auglýsta tíma. Nú hyggjast ítal- ir gera bragarbót í þessum efn- um því frá og með næstu mán- aðamótum verða 16 stærstu söfn landsins opin frá því klukkan niu á morgnana og til klukkan tíu á kvöldin. Tilraun þessi mun standa í þrjú ár. Nokkrir listfræðingar hafa gagnrýnt ákvörðunina harðlega en þeir segja að listaverkin þurfi hvíld frá sterku ljósi og al- mennum ágangi ferðamanna. Dollý á safn Klónkindin Dollý er vafalaust frægasta sauðkind allra tíma. Ullinni af Dollý hefur verið safnað og nú er búið að prjóna forláta peysu úr henni en það var 13 ára gömul bresk stúlka sem hannaði flíkina. Peysan er nú til sýnis á Vísindasafninu í London og þykir hafa mikið að- dráttarafl. Fangaklefi Mandela Fangelsið þar sem Nelson Mandela, forseti S-Afríku, eyddi 18 af þeim 27 árum sem hann sat í fangelsi í heimalandi sínu á tímum aðskilnaðarstefiiunnar hefur nú verið tekið inn á lista yfir þjóðargersemar (World Heritage). Fangelsið er á Robbin-eyju sem er þekkt fyrir náttúrufeg- urð og mikinn fjölda mörgæsa. I Fótboltaferð um páska Samvinnuferðir-Landsýn efna til ferðar á leik Manchest- er United og Liverpool sem verður á Old Trafford í Manchester þann 10. apríl nk. Daginn eftir geta farþegar val- ið um tvo leiki; annars vegar leik Everton-Leeds og hins veg- ar Bolton- Blackburn. Flogið verður til baka mánudaginn Páskaferðir Útivistar: A gönguskíðum í Þórsmörk tmarhótel á Akranesi Það styttist í pásk- ana og eins og endranær býður ferða- félagið Útivist upp á margar spennandi ferðir af því tilefni. Megináherslan er lögð á gönguskíðaferðir og eru fjórar slíkar á dag- skrá í apríl. Á tímabilinu 9.-13. apríl verður gengið á skíðum frá Skaftárdal um Leiðólfsfell í Hrossatungur og Lakagíga og á Laka. Frá Laka er afar gott útsýni yfir Síðu- mannaafrétt og Laka- gígaröðina. Fyrir þá sem vilja er létt ganga á Laka en þaðan má fá góða yfirsýn yfir eld- stöðvar Skaftárelda sem eins og allir vita höfðu áhrif um alla Evrópu. Göngunni lýkur í Skaftárdal en farangur göngumanna verður flutt- ur á vélsleðum í næturstaði. Laugavegur að vetri Einnig er í boði gönguskíðaferð frá Sigöldu um Fjallabak og í Skaft- árdal. Gengið verðm- á skíðum frá Sigöldu í Landmannalaugar þar sem gist verður fyrstu nóttina. Næstu nótt verður gist í Skæling- um sem er gangnamannaskáli sem nýlega var endurbyggður. Þessari göngu lýkur í Skaftárdal þann 13. apríl. Laugavegurinn er vinsæll til göngu á sumrin en undanfarin ár hafa Útivistarmenn einnig efnt til gönguskíðaferða á þessari leið. Þann 9. apríl hefst Laugavegsferðin og verður lagt upp frá Sigöldu og Gönguskíöamaður hvílir lúin bein og horfir yfir Pórsmörkina. þaðan gengið í Landmannalaugar þar sem gist er. Frá Landmanna- laugum er haldið í Hrafntinnusker þar sem gist er næstu nótt og dag- inn eftir er haldið i Emstrur og að lokum í Bása í Þórsmörk þar sem grillveisla bíður göngumanna. Þessari ferð lýkur 13. apríl. Yfir Fimmvörðuháls Það er árvisst hjá Útivist að efna til skemmtiferða í Bása á Goða- landi. Að þessu sinni stendur ferð- in helgina 11.-13. apríl. Boðið verð- ur upp á gönguskíðaferðir um Goðalandið og hefðbundnar göngu- ferðir samhliða fyrir þá sem ekki ganga á skíðum. Ferðalangar gista í tveimur upphituðum skálum Úti- vistar 1 Básum og geta 90 manns dvalið þar í einu. Dagana 11.-13. apríl verður gönguskíðaferð yfir Fimmvörðu- háls sem er á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Fimmvörðuháls er í alls 1100 metra hæð yfir sjávar- máli og hefur gönguleiðin á milli Skóga og Bása á Goðalandi lengi verið ein sú vinsælasta á landinu. Efst á hálsinum er Fimmvörðu- skáli Útivistar sem er mjög vel út- búinn og getur hýst rúmlega 20 manns. Áformað er að gönguskíða- ferðin taki þrjá daga; fyrri nóttina verður gist í Fimmvörðuskála en þá seinni í Básum. Að sögn forráðamanna Útivistar krefjast gönguskíðaferðirnar góðr- ar þjálfunar og reynslu. Þá þarf fólk að eiga góðan vetrarútbúnað en þátttaka í gönguskíðaferðunum er háð samþykki fararstjóra í hverri ferð. Sumarhótelið Ósk, sem er til húsa í F.jölbrautaskólanum á Akranesi hefur verið leigt út fyr- ir tímabilið 1. júní til 20. ágúst í sumar. Leigutakinn er Anna Kjartansdóttir sem hefur rekið Gesthús á Selfossi ásamt eigin- manni sínum Bimi S. Lárussyni en hann gegnir starfi markaðs- og ferðamálafulltrúa Akranes- kaupstaðar. Á sumarhótelinu verða 32 tveggja manna her- bergi, öll með eldunaraðstöðu og baði. -DVÓ DV, Akranesi: Kínaklúbbur Unnar: Haustferð til Austurlanda nær Kínaklúbbur Unnar hefur eins og nafnið gefur til kynna staðið fyrir ferðum til Kína. í haust ætlar klúbb- urinn með Unni Guðjónsdóttur í fararbroddi að breyta út af vanan- um og halda til Austurlanda, nánar tiltekið til Jórdaníu og Sýrlands. Ferðin mun taka þrjár vikur og hefst í höfuðborg Sýrlands, Damask- us, sem er elsta borg heims. Þaðan verður farið til Palmyra og Maaloula þar sem m.a. er að finna stórkostlegt virki sem var krossfar- ar fóru um fyrir hundruðum ára. í söltum sjó Seinni hluti ferðarinnar verður farið um Jórdaníu og dvalið i Amm- an um nokkurra daga skeið. Þaðan verður farið i dagsferðir til áhuga- veröra staða í grenndinni. Því næst verður haldið eftir hinni ægifógru leið um Wadi Shuaib til Dauða hafsins. Þar munu ferðalang- ar svamla í saltasta vatni heims og víst engin hætta á að þeir sökkvi. Frá Dauða hafinu liggur leiðin til bæjarins Nebo sem er frægur fyrir handverk. Frá Nebo er stórkostiegt útsýni og þaðan er á góðum degi hægt að horfa yfir til ísraels og sjá turna Jerúsalemborgar bera við himin. Einn af hápunktum ferðarinnar er dvöl í Petru, steinborg sem á sér engan líka í veröldinni. Borgin var höggvin í sandsteinafjöll fyrir 2400 árum og ekki nema um 20 ár síðan síðustu arabarnir fluttu þaðan. Petra er steinborg sem á sér engan sinn líka í veröldinni. Hún var höggvin í sandstein fyrir rúmum tvö þúsund árum. Borgin Petra er i raun orðin að gríð- arstóru safni sem enginn gleymir sem þangað kemur. Síöustu þrjá dagana í ferðinni munu ferðalangar slappa af og sleikja sólina í Akabaflóa. Hér hefur aðeins verið farið gróf- lega í ferðatilhögun í Austurlanda- ferðinni en kynningarfundur um þessa ferð verður haldinn í Reykja- hlíð 12 á morgun kl. 15.00. Þangað eru allir áhugamenn um ferðalög til Austurlanda velkomnir. -aþ AIJ® æmMÆT CAR RENTAL Óskum eftir ab raba bif- vélavirkia. Mikil vinna, gób laun í bobi. Uppl. í síma 567 0722 og ab Skemmuvegi 20, Kópavogi, beint d móti Bykó. Borgarverkfræðiiigurinn í Reykjavík Hugmyndabanki vegna ræktunarátaks Unglingar í Vinnuskóla Reykjavíkur hafa á undanförnum árum unnið að skógrækt í útmörkum borgarinnar, svo sem Oskjuhlíð, EUiaárdal, Austurheiðum og Heiðmörk. Nú er fullgróðursett í mörg þessara svæða og er stefnt að því að á sumri komanda verði auknar gróðursetningar innan borg- arhverfanna. Hér með er leitað eftir ábendingum frá borgarbúum um verk- efni fyrir Vinnuskóla Reykjavíkur við ræktun í hinum ýmsu hverfum borgarinnar. Borgarbúar komi hugmyndum sínum skriflega til: Skrifstofu garðyrkjustjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, eða hringi í hækistöðvar garðyrkjudeildar milli kl. 9—12 dagana 23. og 27. mars. Símar: 581 4569 fyrir svæðið sunnar og vestan EUiðaáa 587 8035 fyrir svæðin norðan og austan ElUðaáa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.