Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Page 36
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 JjV '44 *(Qtðt3l_____________________ Böðvar Guðmundsson er kominn vel á veg með vesturfarabráfin: Sársaukafull saga ekki hefur komið fram áður segir Böðvar að hann hafi hvergi áður séð skrifað irni hversu stór hlutur Gránufélagsins raunverulega var í sambandi við allar vesturferðimar. „Fólk seldi vitanlega eigur sínar þegar það hélt af landi brott. Fæst gat það eða vildi borga út i hönd og var síðan afskaplega skuldseigt við þá sem voru fluttir. Ástæðulaust þótti að vera að borga því fólki sem flutti í aðra heimsálfu. Gránufélag- ið virkaði sem eins konar banki og því fékk Tryggvi Gunnarsson, fyrsti bankastjóri gamla Islands- banka, mikið af bréfum. Félagið sá bæði um að innheimta og vera milliliður um sölu. Það skrítna var síðan að jafn- vel þótt fólkið væri flutt vestur um haf vildi sumt frek- ar panta vörur hjá Gránufélaginu á Ákureyri en að kaupa þær í Kanada,“ segir Böðvar og hlær að sérvisku forfeðra okkar. . 1;.' Tækifæris- og landleysi Bréfin sem bárust Gránufélag- inu era varðveitt í skjalasafni Seðlabankans og Tryggvi Gunn- arsson virðist hafa fengið mikinn fjölda Ameríkubréfa í tengslum við verslun, viðskipti og ýmis- legt annað. En hvað segja bréfin um ar margir stórir, hérumbil hœð mín á herða- kamb. Skeifurnar svo stórar og klunnalegar aö ef að þœr fyndust á íslandi nokkuð ryög- aðar mundu sumir ímynda sér að þœr vœru frá fornöld. Tvö gufuskip hef ég séð stór, annað er 53 faðmar á lengd og skrautlegt ástæður þess að fólkið flutti? „Ég myndi segja að fyrst og fremst hafi ástæðurnar verið tæki- færis- og landleysi. Á áranum 1870-1900 er hvert kot setið. Fólki hafði fjölgað nokkuð og enn var litla atvinnu að fá í Reykjavík og öðrum hafnarbæjum. Það var ekki fyrr en með útgerðinni seinna meir sem tækifærin buðust þar. Bresku skipa- félögin sáu að hér var markaður fyrir ferðir af þessu tagi og auglýstu þær því upp,“ segir Böðvar og bæt- ir við að mikill meirihluti vestur- fara hafi verið fólk sem bjó við lítil efni. Hitt hafi vissulega verið til, að fólk í góðum efnum hafi flutt sig um set í leit að ævintýrum. Meginá- stæðan hafi þó verið vonin um betri afkomu. Hér á landi hafi geisað mikil harðindi um langt skeið og það hafi vissulega haft sitt að segja. „Ég held ég megi segja að ég sé kominn með nokkuð góða breidd," segir Böðvar, aðspurður hvort hann eigi bréf frá öllu tímabili vesturfa- ranna. „Minnst er til af elstu bréf- unum og mest af þeim yngstu, sem von er. Ég er með þó nokkuð af bréfum frá 1873 og ’74 en hins vegar koma t.d. ár þar sem engin bréf ber- ast frá Nýja-íslandi þvi það var í sóttkví út af bólusótt. Bréf máttu að vísu berast milli landa en þar sem þeim var dýft í karbólsýru urðu þau algerlega ólæsileg. Blekið rann út.“ Merkileg bráf úr einkasöfnum í fyrravetur og aftur nú í haust var Böðvar að safna bréfum á hand- ritadeild Landsbókasafnsins í öngvan eyri til að kaupa fyrir á leiðinni, og það œtti enginn að byrja það einu sinni. Og síst af öllu þegar farin er þessi krókaleiö og allt gengur svona seint, því þarfirnar verða náttúrlega fleiri eftir því sem tíminn verður lengri. Svo get ég ekki skrifað þér fleira af okkur í þetta sinn. Við erum öll með góðri heilsu og ég vona að við veikjumst ekki til muna á Atl- antshafinu. Svo kvíði ég ekki neinu ef ég kemst til Winnipeg. Ég skrifaöi þér miða frá Seyðisfirði og vona ég að þú fáir hann. í honum var ferðasagan frá Húsa- vík. Okkur leið lakast á þeirri leið, en þó var þaö ekki tilfinnanlegt. Við Guðný og börnin biðjum að heilsa öllum skyldum en einkum henni mömmu. Guð leiði ykkur öll um tíma og eilífð og gefi að við fáum að sjást í öðru lífi þó það veröi hér aldrei framar. Þess biður bróðir þinn Gunnlaugur Heisu leiðtogar vesturfaranna saman á fundi í Winnipeg 24-27. júní 1885. „Langafi minn og langamma fluttu til Kanada og því á ég töluvert af frændfólki á þessum slóðum. Ég kenndi vestra um hríð, hitti þá tölu- vert af þessu fólki og fór að hugleiða _ þessi mál fyrir alvöra. Mér fannst ' þetta spennandi vegna þess að fjöldi þeirra sem fluttist á brott var svo mikill að varla var til sú fjölskylda á íslandi á tímabili sem ekki átti einhverja ættingja þarna,“ segir Böðvar Guðmundsson rithöfundur sem undangengið ár hefur safnað bréfum vesturfaranna svokölluðu, fólksins sem tók sig upp af ýmsum ástæðum skömmu fyrir síðustu aldamót og flutti vestur um haf. Engin bréfasöfn vesturfara eru til prentuð og á því vildi rithöfundur- inn ráða bót. Áhugi Böðvars fyrir Islendingum í vesturheimi er Frónverjum ekki alveg ókunnur því efniviðurinn í bókum hans, Híbýli vindanna og Lífsins tré, er sóttur til þeirra. Þær era sögulegar skáldsögur, byggðar á sögu ættingja Böðvars og fleira fólks í Kanada. Feiknarleg heimild um söguna „Ég notaði bréf að miklu leyti til þess að ná í efniviðinn í bækurnar minar og eftir að þeim lauk fannst mér endilega að út þyrfti að koma safn með þessum bréfum. Þau era svo feiknarleg söguleg heimild um hagi fólks, ástæður þess að það flutti, hvemig því gekk og um örlög þess stór og smá,“ segir Böðvar. Aðspurður hvort hann hafi rekist á einhvern fróðleik í bréfunum sem Bréfritari er Gunnlaugur Oddsson frá Geitafelli í Suður- Þingeyjarsýslu. Það er komið í hendur Böðvars sem ljósrit er Þór Vigfússon tók í Vancouver í British Columbia fyrir áratug. Skömmu áður en Gunnlaugur > flutti vestur um haf með fjölskyldu sína reisti hann gestastofu og málaði. Hún er nú endurreist á Héraðssafninu á Húsavík. Á Emigrantahúsi í Glasgow 4. September 1888. Kœri bróðirl Aö gamni mínu œtla ég að drepa niður penna áöur en égfer á Atlantshaf, sem sagt er að ekki muni veróa fyrr en á föstudags- morguninn. Eftir því megum viö bíða hér á Emigrantahúsi í 3 daga, svo feröin gengur nokkuð seint. En við höfum verið, og erum, öll vel frísk og höfum verið síðan við fórum frá íslandi. Rakel seldi upp einu sinni en -María frísk. Matarólyst í Guönýju fyrst en fór batnandi. Skipsmenn voru allir mjög þœgilegir. Flesta daga var keyptur heitur matur, var það súpa og kjöt og kartöflur, salt eöa nýtt, eða þá baunir og kjöt. Ég keypti handa okkur fyrir 50 eða 30 aura á dag og var það mikið gott handa börnunum og viö fengum dálítið líka. Ekki dettur mér í hug að lýsa þeim byggingum sem ég hef séö, því ég get það ekki, en þœr eru margar mik- ið stœrri en ég hef haft nokkra hugmynd um og mannsverk mörg svo furöuleg að það hef- ur gengið langt fram af mér. Á landinu 4 milli Leith og Glasgow er fallegt, þar eru skógar og akrar sléttir og hallfleyttir því landið er nokkuð hœðótt. Hey sá ég í drýli stóru og smáu. Líka var verið að hlaða heyi á vagna. Lömb sá ég og lítil voru þau og blökk. Hesta og kýr sá ég líka, en maður haföi lítinn tíma til að virða fyrir sér það semfyrir augun bar því vagninn fór nokkuð - hart, en stansaði þó nokkrum sinnum. Gegn- um göng fórum við 4 eóa 5 sinnum sem kol- dimmt var í og þótti okkur það óviðkunnan- legt en vöndumst þó við það. Þegar hingað kom vorum við látin fara úr vagninum. Tóku þar menn á móti okkur og fylgdi einn okkur alla leiðina hingað og máttum við ganga viðlíka langt eins og á Berhóla sunn- an til. (í Leith gengum við álíka og út að hest- húsi). Svo vorum við látin fara inn í þetta hús og gefið svo mikið af kaffi og brauði sem við vildum. (Það var kvöldmaturinn). Síðan vorum við spurðir aö hverjir helst vildu vera saman í herbergi og sögðu menn til þess. Við Steini og Sigfús erum saman og höfum 4 rúm. í morgun feng- um við kaffi svo sem við vildum og brauð og smjör og síld í dag baunasúpu en lítið kjöt, kartöflur nokkrar og brauð. Klukkan 5 var drukkið kaffi og brauð og var það kvöldmaturinn. (Kaffi fcer hver svo mikið sem hann vill). Hér á strœt- unum er svo mikil manna- hesta- og vagna- umferð á strœtunum, svo mikil að þeir sem ekki hafa séð það hafa öngva hugmynd um það. Margt er hér haganlega útbúið, kranar með vatni í svefnherbergjum og hér viö hús- hornið úti er stöpull úr járni og sami útbún- aður á honum og bolli þar áfestur við. Hest- mjög og hitt viðlíka. Skipið lá svo fast við steinbryggju að maður gat vel mcelt það á henni. Hestar sumir eru hér litlir og líta út fyrir að vera íslenskir. Sauðaskrokka sá ég hanga í gálga svo stóra og feita að ég hef ekki séð aðra eins. Höfðu þeir verið stungn- ir undir eyrað og svo skornir dálítið á háls- inn. Hausinn hangir við ófleginn. Allir voru þeir kollóttir og snoppulangir. Það er ég bú- inn að sjá að ekki er gott að fara svo að hafa 5. september. í morgun sá ég fiárhóp rekinn hér um strœtin og munu það hafa verið tvö hundruð. Að mesta parti voru það ær og lömb og sauðir hornóttir og horn- teknir og sýndist mér það yfir höf- uð ekki stœrra en íslenskt fé. (Nema rófan). En þriflegt var það, ullarstutt og blákkt. Svo hefég nú ekki séð fleira markvert. Sölubúðir eru hér alls staðar. Skó hef ég keypt handa litlu stúlkum og vonast eftir að geta keypt það sem ég þarf á leiðinni, svo mér geti liðiö vel aó því leyti. Vertu svo œv- inlega best kvaddur af bróður þínum Gfunn- laugij. Lofaöu Sveinbirni aó sjá þetta. Ég bið kœrlega að heilsa honum og öllum þar og Jakob biður þess líka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.