Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Qupperneq 57

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Qupperneq 57
X>'Vr LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 igsonn es Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sýp- ur á kaffibolla. Kaffi Kaffi er nýtt, íslenskt leikrit sem sýnt er á Litla sviði Þjóðleikhúss- ins og er næsta sýning í kvöld. Höfundur þess er ungt leikskáld, Bjami Jónsson að nafni. Er þetta fyrsta verk hans í atvinnuleikhúsi ) og eru margir á því að hann sé lík- legur til að skipa sér i hóp fremstu i nútímaskálda okkar. Leikhús 1 KafFi fjallar um væntingar, ást, I sársauka og alþýðlegt andrúmsloft. Ástarlíf óstýrilátra eiginkvenna er til umræðu á aðalfundi fótboltafé- lagsins, fortíðin birtist í komu skálds sem vill horfa á hafið og leita að því óáþreifanlega. Einnig koma þar við sögu kona sem tekur slátur og gamall maður sem býr sig undir ferðalag. Leikendur em Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Steinunn Ólina Þor- steinsdóttir, Theodór Júlíusson, Valur Freyr Einarsson, Sigurður Skúlason, Atli Rafn Sigurðsson, Bryndís Pétursdóttir og Róbert Arnfinnsson. Leikstjóri er Viðar Eggertsson. Franskir duggarar á íslandsmiðum Elín Pálmadóttir blaðamaður mun i dag kl. 13.15 í Há- skólabíói, sal 4, segja frá frönskum sjó- mönnum á fiskiskip- um hér við land á síðustu öld í fyrir- lestri sem hún nefnir Franskir duggarar á íslandsmiðum. Kínaklúbbur Unnar Kínaklúbbur Unnar, sem hingað til hefur staðið fyrir ferðum til Kína, hyggst breyta út af vananum og efna til ferðar til Jórdaníu og Sýrlands. Kynningarfundur verður haldinn um ferðina i Reykjahlíð 12 kl. 15 á morgun þar sem m.a. verð- ur sýnt myndband um Jórdaníu. Náttúrulækningafélag Reykjavíkur Náttúrulækningafélag Reykja- víkur heldur sinn árlega fund í dag kl. 14 að Þórshóli, Brautarholti 20, 2. hæð. Gunnlaugur K. Jónsson, forseti NFLÍ, mun flytja framsögu- erindi um framtíð og stefnu NLFÍ. Samkomur Erlend verk í eigu safnsins Ólafur Gíslason held- ur fyrirlestur i Lista- safni íslands í tilefni sýningarinnar Er- lend verk í eigu safnsins á morgun kl. 16. Mun Ólafur ganga út frá mynd- inni um Bakkus og Aríöðnu. Þarf maður að vera giftur til að... Annar fyrirlesturinn á vegum Sól- stöðuhópsins verður í Norræna hús- inu í dag kl. 14. Fyrirlesarar eru þrír að þessu sinni, Hjördís Hjartardótt- ir, Hlín Agnarsdóttir og Jóhanna Kristjónsdóttir. Þær munu nálgast efni sem hefur yflrskriftina Þarf maður að vera giftur til að .... Hollvinafélag stofnað í Hátíðasal Háskólans verður í dag kl. 14 stofnfundur Hollvinafé- lags heimspekideildar Háskóla ís- lands. Að loknum fundi mun Krist- ján Árnason prófessor flytja fyrir- lestur sem hann nefnir Að setja brag á sérhvem dag. Brageyrað og hrynjandi málsins. Hvasst á öllu landinu Skammt norðaustur af Hvarfi er nærri kyrrstæð 1003 mb lægð. 1046 mb hæð er yflr írlandi. I dag er gert ráð fyrir sunnan- Veðríð í dag hvassviðri og jafnvel stormi vestan til á landinu en allhvöss eða hvöss sunnan- og suðvestanátt annars staðar. Sunnan- og vestanlands verður rigning en skýjað norðaust- an fram eftir morgni. Þgar líður á daginn gengur í allhvassa suðvest- anátt með skúrum vestan til en úr- komulítið um landið austanvert. Hitinn verður alls staðar vel yfir frostmarki, hæstur sex stig á Aust- urlandi og kaldast þrjú stig á Vest- fjörðum. Sólarlag í Reykjavík: 19.46 Sólarupprás á morgun: 07.22 Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.32 Árdegisflóð á morgun: 00.32 Veðrið kl. 12 á hádegi í gær: Akureyri skýjað 10 Akurnes léttskýjað 9 Bergstaðir skýjaö 9 Bolungarvík úrkoma í grennd 9 Egilsstaðir léttskýjað 12 Keflavíkurflugv. rigning og súld 8 Kirkjubkl. skúr á síð.kls. 6 Raufarhöfn léttskýjaó 5 Reykjavík þokumóóa 8 Stórhöfði þoka 7 Helsinki skýjaó 1 Kaupmannah. léttskýjaö 5 Osló léttskýjaó 7 Stokkhólmur 5 Þórshöfn úrkoma í grennd 9 Faro/Algarve léttskýjað 20 Amsterdam alskýjað 9 Barcelona léttskýjaö 16 Chicago alskýjað 1 Dublin alskýjað 10 Frankfurt rign. á síó.kls. 5 Glasgow skýjaó 11 Halifax súld 0 Hamborg skýjað 5 Jan Mayen snjókoma -.2 London skýjað 12 Lúxemborg skýjað 6 Malaga mistur 18 Mallorca heiöskírt 20 Montreal þoka -4 París skýjað 11 New York þokumóóa 3 Orlando léttskýjað 17 Nuuk snjókoma -9 Róm Vín slydduél 2 Washington þokuruóningur 8 Winnipeg léttskýjað -2 KK í Gjánni KK (Kristján Kristjánsson) mætir með hljómsveit sína, KK- kvintettinn, i Gjánni á Selfossi í kvöld. Úrvalslið hljóðfæraleikara er í sveitinni. Á gítar leikur ásamt KK Guðmundur Pétursson, Haraldur Þorsteinsson á bassa, Óskar Guðjónsson spilar á saxófón og Ólafur Hólm á trommur. KK og félagar hefja leik kl. 23. Kokkurinn við kabyssuna Á morgim, kl. 21, verða haldnir popptónleikar í Félags- heimilinu Klifi, Ólafsvík. Þar mun Sigurður Höskuldsson, sjómaður og tónlistarmaður þar i bæ, flytja frumsamið efni við undirleik hljómsveitar. Öll lögin munu síðan koma út á geislaplötu í mai. Sigurður semur öll lög en text- ar eru eftir Jón Bjarnason frá Selfossi og er hann jafnframt Skemmtanir kynnir á tónleikunum. Segja má að yrkisefnið, bæði lög og texta, sæki höfundamir í umhverfi Ólafsvíkur. Sigurður Höskuldsson er reyndur í tónlistarlífinu - hefur verið lengi í hljómsveitum, nú síðast í Klakabandinu. Kringlukráin í kvöld leikur í aðalsal Kringlukrárinnar hljómsveitin Léttir sprettir en hana skipa Geir Gunnlaugsson og Karl H. Karlsson. í Leikstofunni skemmtir Viðar Jónsson. Laddi á Sir Oliver Boðið verður upp á skemmtidagskrá á Sir Oliver í kvöld. Það er sjálfur Laddi sem stígur á stokk og skemmt- ir gestum staðarins. KK mun stjórna sínum mönnum á skemmtun í Gjánni á Selfossi í kvöld. Myndgátan Lausn á gátu nr. 2062: EVÞor- Kf {m ■ * K ©Z0C3 Skíðastafir -EyjboR- Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsoröi. Frumflutt verður tónverkið En... eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Kirkjukórar í Reykjavíkur- prófastsdæmi eystra ásamt Sin- fóníuhljómsveit áhugamanna halda tónleika i Fella- og Hóla- kirkju í dag og á morgun kl. 17. Á tónleikunum verður frumflutt tónverkið En... eftir Þorkel Sig- urbjörnsson við texta sem Sig- urbjörn Einarsson biskup þýddi. Tónverkið var samið að beiðni kóranna. Jafnframt verða fluttir þættir úr Requiem eftir Mozart. Einsöngvarar á tónleikunum eru meðal annars Sigríður Gröndal, Guðrún Lóa Jónsdóttir, Lovísa Sigfúsdóttir og Gunnar Jónsson. Borgarkórinn Borgarkórinn heldur tónleika á morgun kl. 20.30 í Fella- og Hólakirkju. Flutt verða lög um Reykjavík. Með kórnum koma fram Borgarbræður sem flytja rakarastofusöngva. Einsöngvar- ar með kórnum eru Inga Back- man og Bryndís Hákonardóttir. Stjórnandi er Sigvaldi Snær Kaldalóns og undirleikari Gunn- ar Guðmundsson. Afmælistónleikar Kór Fjölbrautaskóla Suður- lands er 15 ára um þessar mund- ir. Af því tilefni heldur kórinn tónleika í sal skólans í dag kl. 16. Dagskráin er fjölbreytt og þar er meðal annars að finna tvö suöur-afrísk lög, annað þeirra í frumflutningi hér á landi. Allmargir einsöngvarar Tónleikar koma fram með kórnum. Tveir þeirra, Loftur Erlingsson og Soffia Stefánsdóttir, hafa verið að hasla sér völl á óperusviðinu. Tónleikar í Deiglunni Tónleikar verða í Deiglunni á Akureyri annað kvöld kl. 22. Hljómsveitin Hundur í óskilum flytur fjölbreytta tónlist allt frá Bach til Spice Girls með við- komu hjá Beethoven, Rolling Stones og Stuðmönnum. Hljóm- sveitina skipa Eiríkur Stephen- sen, Hjörleifur Hjartarson og Guðríður Valva Gísladóttir. Jóhannesarpassían Á morgun mun Hörður Ás- kelsson organisti kynna Jó- hannesarpassíu Bachs á fræðslumorgni sem hefst kl. 10. Kynningin verður bæði i tali og tónum þar sem Hörður mun leika dæmi úr passíunni af hljómdiski. Samkór Kópavogs Þrjátíu og fimm ár eru liðin síðan Kópavogskirkja var vígð. Þess er minnst með því að fá kóra í heimsókn. í guðsþjónustu á morgun mun Samkór Kópa- vogs koma og syngja í guðsþjón- ustu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.