Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Page 23
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
Wðtal 23
Frá vosbúð til velmegunar
Við höfum talað um Visions du
nord sem norræna sýningu vegna þess
að listamennimir koma langflestir frá
Norðurlöndunum. Susanne Pagé er þó
ekki sátt við það.
„Ég vil aUs ekki að litið sé á sýning-
una sem norræna," segir hún. „Yfir-
skriftin, Visions du nord, ætti að taka
af alian vafa þar um, „Sýnir úr
norðri" getur merkt tvennt, að þetta
sé sýn okkar á norðrið en hún merkir
einnig að verkin séu sýnir listamanna
frá norðlægum slóðum.
Hver þriggja hluta sýningarinnar
ber líka ákveðinn titil. Ljóðrænn titill
söguhlutans, Ljós heimsins, ljós him-
insins, er fenginn að láni frá Sweden-
borg. Hann minnir á að hér sé um sýn-
ir að ræða, hvort sem er á veraldlegan
eða andlegan heim. Við köllum sýn-
ingu Per Kirkebys í miðhlutanum
Kristalia, sá titill vísar einnig til ljóss-
ins þótt hægt sé að skilja hann á ann-
an hátt. Þriðja hlutann, með verkum
imgu kynslóðarinnar, köllum við Nuit
blanche, en það vísar til bjartra sum-
arnátta."
Þegar mirrnst er á Norðurlöndin
virðist erfitt að komast hjá því að
minnast á ljós og birtu en Susanne
fullyrðir að merkingin sé ekki ein-
skorðuð við efnislegt ljós, hún vísi
einnig til innri birtu og andlegs
ástands. En andlegt ástand getur líka
tengst angist og einsemd. Þau orð
koma oft fyrir í sýningarskránni um
eldri listamennina. Spumingin er
hvort þessar tilfmningar séu fjarlægar
ungu kynslóðinni.
„Ég held að angist gagnvart lífinu
og dauðanum sé alltaf til og ekki bara
á Norðurlöndunum," svarar Susanne
að bragði. „En hún er ekki tjáð á sama
hátt á ólíkum timum. Þegar Munch
var ungur voru miklu fleiri boð og
bönn en í dag, margir bjuggu við bág
kjör og fólk hrundi niður úr sjúkdóm-
um. Nákomnir ættingjar Munchs dóu
úr berklum og hann styðst við þá per-
sónulegu reynslu í verkum sínum sem
ftalla um raunveruleika þess tíma. í
dag búa listamennimir í alls ólíku
umhverfi. Þeir hafa aðgang að Inter-
netinu, GSM-símum, gervihnöttmn og
tónlist af geisladiskum. Allir þessir
þættir koma við sögu i list þeirra og
setja mark sitt á hana.
Upprennandi meistarar
Við höfum verið að ræða takmark-
aða þekkingu Frakka á myndlist
Norðurlandanna. í beinu framhaldi
berst talið að því hvort list þaðan
hafi hingað til ekki átt neitt erindi á
alþjóðlegan vettvang og hvort merkja
megi breytingar þegar horft er á verk
ungu kynslóðarinnar. Susanne vill
ekki gefa afdráttarlaust svar. „Hlut-
verk safnsins er að benda á stað-
reyndir en ekki að hugsa. Safnið er
vettvangur sköpunar og það sér um
að koma þeirri list sem til er á fram-
færi.“
En þaö er ekki ætlunin að láta
hana komast undan því að svara.
Safnið býður ekki hverjum sem er að
sýna hjá sér, svo mikið er víst, og því
hlýtur það að hugsa.
„Auðvitað hugsum við af því við
tökum afstöðu. Ég ætla okkur hins
vegar ekki það hlutverk að spá fyrir
um framtíðina. Ég læt staðreyndirn-
ar tala sínu máli og tel okkur skylt
að fylgjast náið með því sem ungir
listamenn eru að fást við á hverjum
tíma. Við eigum að veita þeim tæki-
færi til að sýna afrakstur vinnu sinn-
ar, en það væri barnalegt að halda
því fram að við getum séð fyrir um
hverjir muni verða listamenn morg-
undagsins.
Persónulega hef ég mikinn áhuga á
samtímalist og læt mig hana miklu
varða. Hún getur leyst úr læðingi svo
ótrúlega mikla orku og það er ein-
mitt slík orka sem maður finnur fyr-
ir hér núna á þessari sýningu.“
Þessi orka kemur ekki aðeins frá
íslensku listamönnunum þótt þeir
séu áberandi á efstu hæðinni. í við-
bót viö þá sem þegar hafa verið
nefndir á Ólafur Eliasson verk sem
stendur við hliðina á ljósmyndum af
Björk Guðmundsdóttur sem Jeremy
Deller hefur hengt upp og sýnir
ásamt tónlistarmyndböndum söng-
konunnar. Nafn Bjarkar og Aki
Kaurismaki (sem á þama gamlar
stuttmyndir) hafa verið notuð til að
vekja athygli á sýningunni. Fjórir
aðrir íslenskir listamenn eiga mynd-
bandsverk á sýningunni, þau Steina
/7
Vasulka, Hlynur Hallsson, Finnbogi
Róbertsson og Ósk Vilhjálmsdóttir.
í Nuit blanche-hlutanum gefst ein-
stakt tækifæri til að fá yfirsýn yfir
gróskuna í myndlist Norðurland-^
anna núna, grósku sem
synmgarstjormn
og Islands-^-—
n>
Blómabúð Porvalds.
vinurmn,
Hans- Ulrich Obrist, segir
vera eina þá mestu í allri álfunni.
Nöfn á borð við Hans Plenge Jakob-
sen, Esko Mannikko, Joachim Koest-
er, Michael Elmgreen og Ingvar
Dragset hljóma sífellt oftar og svo
auðvitað nafn Ólafs Elíassonar, sem
er fastur gestur í galleríum og á sýn-
ingum beggja vegna Atlantsála. Nuit
blanche stendur til 10. maí en verk
Pers Kirkebys og fimmmenninganna
í Ljósi heimsins hanga uppi til 17.
maí. Listáhugamönnum sem verða á
ferðinni í París í vor og ætla ekki að
láta þessa stórmerkilegu sýningu
framhjá sér fara skal bent á að best
er að koma snemma, ekki síst um
helgar, til að losna við biðraðir. Nútí-
malistasafnið er opið frá 10 til 17.30
og til 18.45 um helgar en lokað á
mánudögum. Neðanjarðarlestarstöð-
in sem minnst var á hér í upphafi
heitir Alma-Marceau, en safnið er
líka stutt frá Eiffeltuminum.
Margrét Elisabet Ólafsdóttir
1
Ð
A
WIUSll^
ríjyiyNdÍR
o
BON U S
í Perlunni
tprei&ÍAptblnr
/Ct&settnr
~EbXvnliiktr
ÞAR SEM ÞUSUNDIR ISLENSKRA OG
ERLENDRA TITLA FRÁ ÖLLUM ÚTGEFENDUM
OG INNFLYTJENDUM ERU SELDIR Á
FRÁBÆRU VERÐI.
AÐEIHIS 8 DAGAR EFTIR
Ótrúl&g s&rtHboð
um holgirta
Stóra barnaplatan - Safn
999.-
(Tvær geislaplötur)
Magnús Eiríksson
20 ómissandi lög
499.-
P E R L A N
26. mars -13. apríl.
Pottþátt 11 -Safn
1.799.-
(Tvær geislaplötur)
Natalie Imbruglia
Left Of The Middle
1.299.-
Eric Clapton - Pilgrim
1.399.-
Bob Dylan
Time Out Of Mind
1.199.-
OPIÐ ALLA DAGA VIKUNNAR FRÁ KL. 12-21*
(Líka laugardaga og sunnudaga)
*Lokaö kl. 19:30 sunnudaginn 5. apríl, lokaö föstudaginn langa og á páskadag.
Athugið aö síöasti dagur markaöarins er 13. Apríl - annar í páskum.