Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Blaðsíða 26
26
%iglirij*ar
.. 1
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
r
Arshátíð Grunnskólans á Blönduósi þótti takast mjög vel:
Hin besta skemmtun
DV. Blönduósi:______________________
„Mér fannst árshátíðin góð, enda
boðið upp á margt skemmtilegt.
Mætingin var í fínu lagi og allir
skemmtu sér vel,‘
sagði
Helga
Gunnars-
dóttir, for-
maður
nemenda-
félags |
Grunnskól-
ans á
Blönduósi,
en hátíðin
var haldin
um síðustu
helgi í Fé-
lagsheimil-
inu. Boðið
var upp
leikrit,
Blönduvision-
söngvakeppni,
danssýningu
og söng nokk-
urra kennara.
Leikritið Krimmi, eftir Michael
Green, var sett á svið, einþáttungur
fyrir „mistæka leikara". Leikstjórar
voru Kristín Gunnarsdóttir og Sig-
Helga Gunnarsdótt.r,
nemendafélagsins.
rún Björk Cortes.
Átta keppendur
tóku þátt í Blöndu-
vision. Kristinn
Ólafsson bar
þar sigur úr
býtum. Diskó-
tekararnir DJ
Robbi og
Gummi
héldu síðan
uppi stuðinu
fram eftir
kvöldi.
„Mér
fannst þetta
gaman og
leikritið
var gott,“
sagði Ósk-
ar Vignis-
son í 9.
bekk og
Valur Óð-
inn Vals-
son í 8.
bekk
bætti við:
„Ég held að Krist-
inn vinni í Blöndu-
vision.“ Það reynd-
ust orð að sönnu.
Boðið var upp á
tormaður
Hér er fjörlegi hópurinn sem sýndi leikritið Krimma ásamt leikstjórum og likinu sem þótti „leika" vel!
DV-myndir G. Bender
tertur, kakó og kaifí sem allir borð-
uðu með góðri lyst. Árshátíðin þótti
takast vel og lögðu líka allir sitt af
mörkum til þess, nemendur og
kennarar. Skólablaðið Vit kom út
og var lesið upp til agna.
-G. Bender
Kennarar, skólastjóri og yfirkennari
þóttu fara á kostum í söngatriöinu,
þrátt fyrir misgóöa sönghæfileika.
Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu
- frá grunnskólum og félagsmiðstöðvum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri opnaði í gær ljós-
myndasýningu í Ráðhúsinu á
myndum sem nemendur grunn-
skólanna og í félagsmiðstöðv-
unum tóku.
Annars vegar eru sýndar
svart/hvítar myndir sem nemend-
ur tóku og unnu að öllu leyti
sjálfír á námskeiðum innan skól-
anna eða í félagsmiðstöðvum á
vegum ÍTR.
Hins vegar eru myndir úr
keppninni Ljósmyndasprettur
Hans Petersen og ÍTR. Þar þurftu
þátttakendur að leysa úr 10 mis-
munandi verkefnum. Alls bárust
500 myndir í þessa keppni.
Verðlaunamyndir voru afbjúp-
aðar í gær en dómnefndina skip-
uðu ljósmyndararnir Eggert
Jónsson, Odd Stefán og Bjarni
Grímsson. Sýningin í Ráðhúsinu
stendur til 15. apríl næstkomandi.
n hliðin
Aníta Briem, leikkonan unga í Óskastjörnunni:
■ r
„Þaö er búið að vera ofsalega gaman aö fá
að vinna með þessu fólki því þetta er mjög
samheldinn hópur. Óskastjaman er öðruvísi
verkefni en það sem ég hef áöur tekist á við
; og það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.
i Þetta bætist bara í reynslusafnið," segir
£ Aníta Bríem, leikkonan unga sem hefur vak-
ið mikla athygli fyrir leik sinn í Óskastjöm-
unni, nýju leikriti Birgis Sigurðssonar í Þjóð-
1 leikhúisinu.
„Ég hef verið að leika síðan ég var níu ára,
þá fyrst i Emil í Kattholti sem ída. Fyrir þann
tíma hvarflaöi aldrei að mér að verða leik-
kona eins og margar litlar stelpur. Ég setti oft
upp leikrit i stofunni heima hjá mér með vin-
konu minni en mér datt aldrei í hug að ganga
lengra. En síðan ég komst af stað hef ég ekki
getað hætt.“
Fullt nafn: Aníta Briem.
Fæðingardagur og ár: 29. maí 1982.
Kærasti: Ekki mikill tími fyrir svoleiðis.
Núna snýst allt um að leika, sofa og borða
(svo verður auvitað aö læra smá).
Böm: Ó, nei.
Bifreið: Engin ennþá.
Starf: Nemi, leik svo Bélku í Fiðlaranum á
; þakinu og Stínu í Óskaskjömunni í Þjóðleik-
húsinu inni á milli.
Laun: Alveg nóg.
Hefurðu unnið í happdrætti eða lottói?
Nei, það virðist hvíla yfir mér lítið bölvunar-
ský í þeim málum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Kúra mig niður við kertaljós og Deep purple.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að
bíða eftir fólki.
Uppáhaldsmatur: Gott lambakjöt með
mikilli pum.
Uppáhaldsdrykkur: Það er fátt betra en
ísköld, íslensk léttmjólk.
Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í
dag? Jón Amar Magnússon.
Uppáhaldstímarit: Þaö er alltaf gaman að
kíkja i öll geliublöðin eins og Vouge og
Cosmopolitan, í hófi þó.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Það era svo margir karlmenn fallegir á
sinn hátt, mér finnst Robert DeNiro mjög
sjarmerandi.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórninni?
Ég er ofsalega lítill pólitíkus.
Hvaða persónu langar þig mest til að
hitta? Jarvis Cooker, söngvara Pulp.
Uppáhaldsleikari: Gary Oldman og Jer-
emy Irons.
Uppáhaldsleikkona: Emily Watson.
Uppáhaldssöngvari: Bono í U2.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón Bald-
vin.
Uppá-
haldsteikni-
myndapersóna:
Johnny Bravo.
Uppáhalds-
sjónvarpsefni:
Fóstbræður. Upp-
áhaldsmatsölu-
staður: Caruso.
Hvaða bók
langar þig mest
til að lesa? Núna
les ég Lífsþorsta
eftir Irving Stone,
ævisögu Van
Gogh.
Hver útvarps-
rásanna finnst
þér best? Þegar
ég hlusta á útvarp
þarf ég alltaf að vera að skipta um stöð, svo
ég hlusta örugglega jafnmikið á allar.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Það væri þá
helst þeir félagar í Tvíhöfða.
Hverja sjónvarpsstöðina horfir þú mest
á? Ég horfi nær eingöngu á Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég held ekki
upp á neinn sjónvarpsmann.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég sé mig því
miður tilneydda að fresta þessari spurningu
um nokkur ár!
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR. ,
Stefnir þú að einhverju sérstöku í fram-
tiðinni? Að sjá allt sem hægt er aö sjá og
upplifa allt sem hollt er að upplifa.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Ég
ætla í enskuskóla í Englandi í einhvern tíma
og restin fer bara í það að ná sér niður eftir
veturinn fyrir næsta vetur.