Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Síða 29
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
29
Hjónin Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir og Jón Stefánsson reka Skóvinnustofu Sigurbergs í Keflavík:
DV. Suðumesjufn:__________________
Ein af þekktari hjónum Keflavíkur,
og reyndar á Suðurnesjum, eru án efa
hjónakornin Guðrún Matthildur Sig-
urbergsdóttir og Jón Stefánsson. Þau
eiga og reka skóvinnustofu Sig-
urbergs í Keflavik sem er sú eina á
Suðurnesjum. Þau hafa bæði fengið
skemmtilegt viðurnefni í gegnum
starf sitt, Gunna skó og Jón skó, og
hafa fjölmargir bæjarbúar kynnst
þeim í gegnum skóverkstæðið. Þau
eru bæði eldhress í dag og koma enn
margir gamlir bæjarbúar við hjá þeim
til að spjalla og riga upp skemmtilega
tíma. Jón varð sjötugur í fyrra en
Gunna er þremur árum yngri. Jón
lauk á sínum tíma prófi og hefur rétt-
indi til að gera við skó og reka skó-
verkstæði.
Breytt skótíska
Skótíska landsmanna hefur breyst i
gegnum tíðina og hver man ekki eftir
mjóu háhæluðu skónum sínum í
„den“, þar sem sífellt mátti búast við
því að hællinn dytti af. Nú er öldin
önnur.
„Þetta hefur lengstum verið ágætt
Jón er með skrokk eins og táningur
þrátt fyrir að vera kominn á áttræðis-
aldur en hann heldur sér í góðu lík-
amlegu formi. Á vinnustað sínum er
hann búinn að koma sér upp slá sem
hann æfir sig á með því að lyfta sér
upp. Þá fara þau hjónakornin í sund
annan hvern dag í Sundmiðstöðina
sem er í nokkurra metra fjærlægð frá
heimili þeirra. Þar synda þáu 300-500
metra í hvert skipti.
Hjólar allt
Guðrún gerir gott betur en hún fer
allra sinna ferða í Keflavík á hjóli.
„Ég keypti mér hjól fyrir einum 23
árum þegar bensinið hækkaði og hef
hjólað síðan,“ segir Guðrún hlæjandi.
Hún var meðal annars stofnandi
Styrktarfélags aldraðra á Suðurnesj-
um. Hún hefur unnið í 23 ár í sjálf-
boðastarfi og hefur félagsstarfið gefið
henni mikið. Jón og Guðrún eiga Qög-
ur börn, Sigurberg, matréiðslumann,
Stefán, prentara og einn eigenda
prentsmiðjunnar Grágásar í Keflavík,
Jóhönnu þroskaþjálfa, og Ásbjqrn lög-
fræðing. -ÆMK
Hjónin við forláta stígvél sem hann fékk þegar hann varð sjötugur.
„Ég reyni að aðstoða fólk eftir bestu getu,“ segir Jón í viðtalinu.
hvað viðskiptin varðar en heldur hef-
ur þetta þó minnkað síðustu árin. Það
eru komin önnur efni í skótauið og
önnur tíska. Mjóu hælarnir eru
horfnir en þeir entust lítið og þurfti
oft að skipta um þá. Það var mikil
vinna. Nú eru komnir þykkir sólar og
mest um að límingin gefi sig.
Frá þeim tíma þegar mest var að
gera og til dagsins í dag hefur verið
meira en helmings samdráttur. Áður
fyrr var ég með mann með mér í
vinnu en nú anna ég þessu mjög vel
einsamall. I dag er selt mikið af ódýr-
um skóm. Þeir eru ekki að sama skapi
vandaðir og það segir sig sjálft að
menn leggja ekki út í mikinn viðgerð-
arkostnað á skóm sem kosta undir tvö
þúsund krónum. Fólk kaupir frekar
nýja skó,“ segir Jón.
rekstur verkstæðisins 1936. Jón byrj-
aði hins vegar að vinna hjá tengdafoð-
ur sinum 1960 og er enn í fullu fjöri
þótt timarnir hafa breyst.
„Ég sá Jón ekki fyrir mér sem
efnilegan skósmið. Hann ætlaði að
verða úrsmiður en það var ekki hægt
að komast að. Hann gerði það fyrir
pabba að vera með verkstæðið," segir
Guðrún og bætir við: „Eins og staðan
er í dag er ekki mikið að gera. Þetta
eru mest töskuviðgerðir og dýrasta
viðgerðin er á miili 800-900 krónur.
Þegar pabbi var með verkstæðið var
hann með viðgerðir á yfir 18 pörum af
skóm í sólningu á dag en við þökkum
fyrir ef við náum því á einum til
tveimur mánuðum. Það eru mest 400
króna viðgerðir. Þetta er ekki spenn-
andi bisness i dag.“
HONDA
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öLLum aldri
Ætlaði í úrsmíði
Jón hefur rekið skóverkstæðið frá
1973, tók þá við rekstrinum af tengda-
föður sínum, Sigurbergi Arnbjörns-
syni, þegar hann lést. Sigurbergur hóf
Ætlaði að verða fóstra
„Tækin á verkstæðinu hafa enst vel
og eru enn í notkun frá 1960 til 1970,“
segir Jón.
„Það kemur að þvi að ég hætti þess-
um rekstri en það er ekki komið að
því enn. Ég er búinn að vinna síðan
ég var 7 ára þegar ég var í sveit en það
er kannski kominn tími á það að ég
fari að leika mér,“ segir Jón og brosir
út í bæði. Guðrún hefur látið mann
sinn alfarið vinna á verkstæðinu en
hún hefur leyst hann af annað slagið.
„Það er svona aðallega þegar hann
þarf að skreppa á salernið. Ég ætlaði
aldrei að vinna á skóvinnustofu. Mér
fannst það leiðinleg grein en ég ætlaði
að verða fóstra. En þetta atvikaðist
svona eftir að pabbi lést,“ segir Guð-
rún.
. nnifalið í verði bílsins.
H400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautun
Koftpúðar fyrir ökumann og farþega
kRafdrifnar rúður og speglar
kVindskeið með bremsuljósi
kútvarp og kassettutæki
kHonda teppasett
M4" dekk
kSamlæsingar
kABS bremsukerfi
ÞRyðvörn og skráning
Jón heldur sér í góöu líkamlegu
formi meö stönginni sem hann hef-
ur komiö upp á vinnustaönum.
Gerir við allt
í dag og gegnum tíðina hefur Jón
reddað bæjarbúum með ýmislegt ann-
að en viðgerðir á skóm sínum. Þegar
helgarblaðið leit við hjá honum var
hann að klára að sauma tösku fyrir
einn viðskiptavininn og hafði nýlokið
við að sauma merki á mótorhjólaleð-
urjakka. Þriðja verkefnið var að
sauma krækju á hlíf sem hafði dottið
af bamavagni.
„Ég reyni að aðstoða fólkið sem
kemur hingað eftir bestu getu. Þetta
er mjög fiölbreytt starf. Það er komið
með alla mögulega hluti hingað í við-
gerð,“ segir Jón.
Jón og Guðrún giftu sig þegar hún
var 18 ára og hann 21 árs. Þau ráku
verkstæðið fyrst við Hafnargötuna í
Keflavík en það hefur frá 1980 verið
við heimili þeirra að Skólavegi. Þau
stækkuðu bílskúrinn og tóku hann
undir verkstæðið. Á sínum tíma voru
þau meðeigendur í Skóbúð Keflavík-
ur, sem er enn í fullum rekstri i dag.
Er fundur framundan?
Tækjaleiga Nýhefja sér þér fyrir öllum tæknibúnaði
fyrirfundi, námskeið og ráðstefnur:
Skjávarpar - Tölvur - Ljósritunarvélar
Hljóðkerfi - Túlkakerfi
NYHERJI
Radíóstofan - Skipholti 37
Sími: 569 7700 - Fax: 569 7619
www.nyherji.is
NYJUSTU TÆKI GOD TÆKNIÞJONUSTA
Verð á götuna: 1.295.000,
Honda Civic 1.6 VTi VTEC
1.890.000,-
160 hestöfl
15" álfelgur
Rafdrifin sóllúga
6 hátalarar
Sportinnrétting
Leðurstýri og Leðurgírhnúður
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.490.000,-
115 hestöfl
Fjarstýðar samlæsingar
Höfuðpúðar aftan
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Honda Civic 1.4 Si
1.375.000,-
90 hestöfl
Sjálfskipting 100.000,-
[0
HONDA
Sími: 520 1100