Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Blaðsíða 46
LAUGARDAGUR 4. APRIL 1998
54
>
iíif
'
■ 4
Amerískur Frakki í París
Franski listamaöurinn Pierre
Arman heldur nú fyrstu einka-
sýningu sína í París.
Á sýningunni eru 90 verk lista-
mannsins, unnin á síðustu fjöru-
tíu árum. Arman sem hefur búið
lengst af í Bandaríkjunum og
þykir afar amerískur í háttum
hefur einbeitt sér að neyslusam-
félaginu við listsköpun sína.
Hann hefur til margra ára safnaö
ýmsu rusli í austurbæ Manhatt-
an. Sýning á verkum Armans
þykir marka tímamót í listalífi
Parísar en henni lýkur um miðj-
an þennan mánuð.
Bætt þjónusta um borð
Flugleiöir taka á næstu vikum
í notkun nýja tegund myndbands-
og hljómflutningstækja í öllum
Boeing 757-flugvélum félagsins.
Nýjungamar felast í því að í staö
stórra myndbandsspóla verða
notaðar litlar spólur og geisla-
diskar leysa hljómsnældur af
hólmi. Þá verður tónlistarrásum
fjölgað og ráðgert er að koma á
sérstakri dagskrá fyrir yngstu
farþegana.
Nýjar leiðir í Bútan
Gönguferðir í rikinu Bútan,
sem er eitt einangraðasta riki
jarðar, á milli Tíbets og Indlands,
þykja afar áhugaverðar. Hingað
tú hafa þarlend stjómvöld aðeins
leyft göngugörpum að ganga á tiu
gönguleiðum.
Bútanar hafa nú ákveðið að
fjölga ferðamönnum í landi sinu
og fengu Andrew nokkum
Crisconi til að klífa og kortleggja
fjöllin við borgimar Paro og
Timpú, en sú síðamefnda er höf-
uðborg landsins. í framhaldinu
mun Crisconi í samráði við
stjómvöld gefa út fyrstu bókina
um gönguleiðir í landinu. Bókar-
innar er þó ekki að vænta fyrr en
að ári en fyrir þá sem vilja kynna
sér málið strax er hægt aö nálg-
ast upplýsingar á slóðinni
www.keadventure.com á Netinu.
Bdfim slökkvistöð
Undanfarin tíu ár hefur staðið
yfir undirbúningur vegna opnun-
ar veglegs safhs helguðu slökkvi-
liðsmönnum í borginni Winnipeg
í Kanada.
Það þótti vel við hæfi að koma
safninu upp í gamalli slökkvistöð
í miöborginni sem var hvort sem
er hætt að gegna hlutverki sínu.
Það undarlega gerðist hins vegar
að slökkvistöðin kolféll á bruna-
vamarprófl. í slökkvistöðinni var
nefhilega hvorki að fmna neyðar-
útganga né vatnsúðunarkerfi
enda reikna menn vart með því
að það kvikni í hjá sjálfu slökkvi-
liðinu. Þetta kvað tefja opnun
safnsins en áhugamenn um
slökkvistörf eru sagðir orðnir
langeygir eftir saflii um áhuga-
málið.
Vorferð til Sevilla:
Tek vel á móti íslenskum
húsmæðrum
- segir Kristinn R. Ólafsson
Síðastliðið haust bauð Ferðaskrif-
stofan Úrval-Útsýn upp á ferðir til
menningarborgarinnar Sevilla, höf-
uðstaðar Andalúsíu, syðsta héraðs
Spánar. Vegna ánægju farþega í
fyrra var ákveðið að bjóða upp á
ferðir til Sevilla vor og haust. Flogið
gerð úr myndum og leysigeislum.
Gamla gyðingahverfið, Santa Cruz,
iðar af skemmtilegu götulifi og þar
eru margir skemmtilegir veitinga-
staðir. Þeir eru svo sem viða í
Sevilju og enginn ætti að láta smá-
réttina, Tapas, fram hjá sér fara.“
„Við skulum reisa þvílíka kirkju að þeir sem sjá hana fullbyggða munu
álíta okkur brjálaða," var upphafið að þessu mikla mannvirki sem er fjórða
stærsta guðshús í heimi.
hlutverki borgarinnar
og hnignun blasti við
næstu áratugi.
Snemma á þessari öld
tóku borgarbúar til
við að endurheimta
forna frægð borgar-
innar og Íber-Amer-
íska sýningin 1929 var
liður í þeirri viðleitni.
Glæstar byggingar
voru reistar í tilefni af
sýningunni á svæðinu
Plaza de Espana og
Plaza de America.
Þjóðir heims sem tóku
þátt í sýningunni
reistu sýningarskála í
takt við sína menning-
ararfleifð í húsagerð-
arlist. I dag dást ferða-
menn að þessum fjöl-
breyttu byggingum.
Sevilla í dag
Gústaf og Kristín á Plaza de Espana. Hvert hérað
Spánar á sína flísamynd sem lýsir sögufrægum
atburöum.
Gústaf situr fyrir hjá einum af
mörgum götulistamönnum í Sevilla.
Gull frá Nýja heiminum
Sevilla blómstraði á ný á 16. og
17. öld þegar Spánverjar hófu landa-
fundi sína og nýlendustefnu. Sevilla
var helsta höfn skipa sem sigldu frá
Nýja-heiminum með gull og gersem-
ar. Á 18. öld lauk þessu mikilvæga
Heimssýningin, Expo
’92, var önnur
vítamínsprauta fyrir
borgarbúa. Af miklum
stórhug var reist
glæsilegt sýningarsvæði á eyju í Gu-
adalquivir. Nú sex árum síðar hefur
hluti sýningarsvæðisins drabbast
niður vegna þess hve dýrt er að
halda mannvirkjum við og fá þeirra
hafa fengið einhvern framtíðartil-
gang.
Ibúar Sevilla eru lifsglaðir á sinn
spánska hátt. Þeim þykir gaman að
fara út að borða góðan mat með glas
af víni. Fjölmargir góðir veitinga-
staðir eru í borginni sem eru opnir
lengi frarn eftir. Nautaatshringur-
inn, La Maetranza, er einn af þeim
þekktari á Spáni og hér dunar fla-
menkó- blóð í mannskapnum. í
Sevilla er óperuhús, leikhús,
skemmti- og dansstaðir sem opnir
eru til morguns. í miðborginni, rétt
við eru göngugötur með sérverslun-
um og vöruhúsum. Það má telja víst
að íslenskar húsmæður og Kristinn
eiga góða vordaga í vændum í
Sevilla. -jáhj
Gústaf Grönvold skellti sér
t ferð til Sevilla í
fyrrahaust. Meöal þess
sem hann prófaöi í ferðinni
var aö aka í hestvagni.
Séð yfir Plaza de Espana af brúnni.
er í beinu leiguflugi til Faro
í Portúgal en þaðan er rúm-
lega 2ja tíma akstur til
Sevilla. Vorferðin 24. apríl
er nánast uppseld þar sem
Orlofsnefnd húsmæðra
fyllti flest sæti.
„Ég mun taka vel á móti
íslensku húsmæðrunum,“
sagði Kristinn R. Ólafsson, farar-
stjóri í Sevilla, eða Sevilju eins og
hann kallar borgina samkvæmt ís-
lensku beygingarkerfi. í stuttu sam-
tali við DV sagði Kristinn að í flestu
væru ferðirnar með svipuðu sniði og
í fyrrahaust. Þó væri þessi vorferð
aðeins stytt og aðeins fjórir dagar í
Sevilla og fimm dagar í Albufeira í
Portúgal.
Kristinn þekkir vel sögu lands og
þjóðar og er vel heima í atburðum
dagsins í dag eins og glöggt hefur
komið fram í fréttapistlum hans í út-
varpi. Hann mælir sterklega með því
að fólk fari í skoðunarferðir. „Þar
bera hæst ferðir til Cordóba og
Granada. Cordóba var ekki í boði í
fyrra en ég lagði til að bjóða upp á
ferð til þessarar merkilegu borgar.
Þar er margt að skoða og ekki sist
hin mikla moska frá tímum Mára,
sem er algert undramannvirki. Þeir
sem ekki hafa komið til Granada
áður hafa gott tækifæri á að sjá hina
stórkostlegu Alhambrahöll og garð-
ana þar um kring,“ segir Kristinn
Err.
„Miðborg Sevilju er líka spenn-
andi og í göngufæri frá hótelunum
sem íslendingarnir dvelja á. Þar tel
ég fremsta dómkirkjuna, Los Reales
Alcázares, Maríu Lovísu garðinn,
svæði alþjóðasýningarinnar frá 1929
og heimssýningarsvæðið frá 1992.
Þar er Töfraeyjan, Isla Mágica, sem
gaman er að heimsækja að kvöldi til,
njóta þar matar og tónlistar. Þeir
sem þora taka sér ferð með rússíbön-
um og í lokin er stórkostleg sýning
Allir vildu til Sevilla
Lífæð Sevilla í gegnum aldimar var
fLjótið Guadalquivir. Upphaf Sevilla
má rekja aftur til tíma Fönikíu-
manna. Þeir kölluðu borgina Hispalis,
sem seinna breyttist í Ispalis, Ixbilia
og að lokum Sevilla. Á eftir Fönikíu-
mönnum komu Grikkir,
Karþagómenn og Vestgotar. Árið 711
markar upphaf ríkis Mára á Iberíu-
skaganum öEum og Sevilla varð ein af
helstu borgum Máraríkisins, að frá-
töldum Cordóba og Granada. Víking-
ar gerðu árás á borgina árið 844 en
guldu afhroð á bökkum Guadalquivir
þegar Máraherimir brenndu 42 skip
þeirra. Á 12. öld komst Almóhada-ætt-
in til valda í Marokkó og á Spáni.
Undir stjórn Almóhadana reis húsa-
gerðarlist og menning einna hæst í
borginni. Enn má sjá leifar þess tíma
í mannvirkjum eins og mínarettunni
við dómkirkjuna, glóaldingarðinum
þar við, Alcazarvirkinu og Gulltum-
inum; Torre Del Oro.
Kristnir menn náðu borginni árið
1247 og Sevilla varð stjómarsetur um
sinn. Menn voru stórhuga á þeim
tíma og á árið 1401 var hafist handa
við að reisa dómkirkjuna: „Við skul-
um reisa þvílíka kirkju að þeir sem sjá
hana fullbyggða munu álíta okkur
brjálaða," var upphafið að þessu mikla
mannvirki. Dómkirkjan setur mikinn
svip á borgina og Giraldatuminn, sem
áðm- var mínaretta moskunnar, sést
alls staðar að. Á kvöldin er tuminn
upplýstm eins og mörg önnur minnis-
merki borgarinnar.